11.02.1982
Sameinað þing: 52. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2402 í B-deild Alþingistíðinda. (2018)
118. mál, alþjóðleg ráðstefna um afvopnun á Norður-Atlantshafi
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Það er auðvitað alltaf jákvætt að taka til umræðu með hvaða hætti við getum aukið öryggi okkar hér á landi, því að satt best að segja hafa ýmsir þeir atburðir gerst á síðustu misserum, ekki síst í Evrópu, sem valda því, að menn hljóta að vera mjög uggandi um hversu reiðir af þeim hugmyndum sem uppi hafa verið um afvopnum.
Nú hefur oft verið um það rætt að friðlýsa Norður-Atlantshafið. Ég man eftir að Jónas Árnason talaði mikið um þetta á sínum tíma hér í þinginu, og þessi hugmynd hefur oft komið upp. En í raun hefur þessi hugmynd strandað á því, að annað stórveldanna, sovétríkin, hefur talið nauðsynlegt vegna útþenslustefnu sinnar að auka mjög þrýsting á Norður-Atlantshafinu með síauknum ferðum kjarnorkukafbáta og herskipa af öllu tagi, eins og raunar er viðurkennt í þessari till. Ef ég man rétt hefur t. d. Eystrasaltið verið yfirlýst friðlýst kjarnorkuvopnalaust svæði. En það fór ekki betur en svo að þar strandaði við Svíþjóð kafbátur búinn kjarnorkuvopnum án þess að Svíar væru nokkuð um spurðir. Þetta er þess vegna mjög vandasamt mál og síst á færi smá þjóða að ráða þar nemum úrslitum. En auðvitað er eðlilegt að smáþjóðirnar láti til sín heyra um það, að þær ætlist til að í alvöru sé um það rætt, með hvaða hætti okkur megi takast að gera heiminn friðvænlegri, ekki aðeins þar sem við erum sjálf stödd, heldur alla veröldina, líka Pólland, líka Afganistan. (Gripið fram í: Líka Tyrkland, líka El Salvador.) Ég heyri að hv. 11. þm. Reykv. ætlar að fara að telja upp öll þjóðlönd veraldarinnar. Það er ágætt, það er nógur tími fram að kvöldi. Auðvitað er það gott. Fögur er rödd hans svo það er gott að heyra í honum annað slagið úr því að ég á ekki sæti í Ed. En það er auðvitað mikið alvörumál hvernig að þessum málum skuli staðið.
Við erum ýmsir — ekki aðeins ég, heldur ýmsir aðrir menn sem svipað hugsa — þeirrar skoðunar, að forsendan fyrir því, að um raunverulega afvopnun geti orðið að ræða, ekki aðeins hér um slóðir, heldur í veröldinni allri, sé sú, að mannréttindi verði aukin, að virðingin fyrir mannslífinu og réttur mannsins — ekki aðeins hverrar þjóðar, heldur hvers einstaklings, innan hvaða landamæra sem er — sé í raun meira tryggður en nú er. En á þessu eru margvíslegir örðugleikar. Hér í lýðræðisríkjunum — þar sem einstaklingurinn er mest metinn og við lifum við þá lífsskoðun og þau trúarbrögð sem halda í heiðri rétti hins smæsta — hefur gengið svo vel að má líkja við kraftaverk, vegna aukinna samgangna, aukinnar verslunar, með því að landamærin hafa verið opnuð. Af þessum sökum er óhugsandi nú að t. d. ríki eins og Vestur-Þýskaland og Frakkland mundu berast á banaspjót. Með sama hætti væri óhugsandi nú að ríki eins og Norður- og Suðurríki Bandaríkjanna mundu berast á banaspjót og ýmis önnur þau ríki sem hefur tekist að opna landamærin, auka mannréttindin og gera fólkið sem frjálsast. Það er í raun og veru kjarni þessa máls.
Ástæðan fyrir hinum aukna vopnabúnaði, ekki aðeins hér á Norður-Atlantshafi, heldur í veröldinni allri, er sú, að sum ríki hafa vegna ástandsins innanlands orðið að fara út í það að hervæðast, ekki aðeins út á við, heldur einnig inn á við. Þetta er gömul saga um þau ríki sem stjórna þegnum sínum með hervaldi og lögregluvaldi. Í dag eru skýrustu dæmin um þetta Sovétríkin og atburðirnir í Póllandi. Því miður held ég að á meðan ástandið er ekki betra en það er á þessum slóðum séu litlar líkur til þess, að okkur muni takast að sannfæra Sovétmenn um að þeir eigi að senda sína kjarnorkukafbáta í öll önnur höf en Norður-Atlantshaf. Vissulega væri það mikill og góður árangur, ef okkur tækist eitthvað þvílíkt, og ekki skal ég draga úr því, að þetta sé rætt. Hitt þykir mér að drepa málinu á dreif, þegar hv. 11. þm. Reykv. er að tala um það sem einhvern sérstakan stóratburð að afvopnunarmál verði rædd á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, því að satt best að segja hef ég ekki orðið var við að Sameinuðu þjóðirnar hafi staðið undir þeim vonum sem menn gerðu til þeirra á sínum tíma í þessum efnum. En einmitt vegna þess að Sameinuðu þjóðirnar brugðust urðu lýðræðisríkin sjálf að taka þessi mál, öryggismálin, í sínar hendur. Ein afleiðing þess var sú, að friðarbandalagið, Atlantshafsbandalagið var á sínum tíma stofnað og hefur náð mjög miklum árangri. Öryggi þjóðanna og einstaklinganna er hvergi meira en í þeim ríkjum við Norður-Atlantshaf sem eru aðilar að þessu bandalagi eða í skjóli þess. Þar á ég við öll Norðurlöndin. Þetta er auðvitað kjarni málsins.
Ég veit ekki hvort ástæða er til að tala um þetta miklu víðar. Hvorki við né nein önnur þjóð í veröldinni getur lengur verið „stikkfrí“. Norður-Atlantshafið getur ekki heldur verið „stikkfrí“. En það breytir ekki hinu, að það er ástæða til að gefa því gaum, hvort við getum með einhverjum hætti aukið öryggi okkar hér á Íslandi. Eins og hv. 6. þm. Norðurl. e. vék að áðan, má vera að okkur sé hætta búin af kjarnorkunni þó ekki komi til stríðs, og þyrfti í þeim efnum að athuga hvort við höfum gert þær öryggisráðstafanir t. d. á sviði almannavarna sem nauðsynlegar geta talist.