15.02.1982
Efri deild: 43. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2420 í B-deild Alþingistíðinda. (2034)

167. mál, almannatryggingar

Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):

Herra forseti. Heilbr.og trn. hefur fjallað um þetta frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og það var afgreitt frá Nd. Það voru gerðar smávægilegar breytingar á frv. í Nd. Ég tel ekki ástæðu til að gera grein fyrir þeim í smáatriðum, en hins vegar er meginefni þessa frv. af því tagi að það eru gerðar tilfærslur í samræmi við barnalög. Það stönguðust á m.a. aldursákvarðanir. Það stendur í grg. með frv. að það sé flutt fyrst og fremst með það sjónarmið í huga að nauðsynlegt sé að fulls samræmis gæti í ákvæðum almannatryggingalaga og annarra lagaákvæða er leggja skyldur á Tryggingastofnun ríkisins. Þetta frv. er einmitt af því tagi.

Það var um það getið í nál. Nd.-nefndar að hún fékk til fundar við sig aðila frá Tryggingastofnun ríkisins. Við sáum ekki ástæðu til að kalla sérfræðinga til fundar við okkur.

Við leggjum til að frv. verði samþykki eins og það er afgreitt frá Nd.