15.02.1982
Efri deild: 43. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2423 í B-deild Alþingistíðinda. (2039)

172. mál, olíugjald til fiskiskipa

Guðmundur Karlsson:

Herra forseti. Ég geri ekki ráð fyrir að við þm. Sjálfstfl. í Ed. verðum til þess að tefja að þetta mál megi ná fram að ganga frekar en sjálfstæðismenn í Nd. Við stöndum hér frammi fyrir orðnum hlut. Það er þegar búið að ákveða þetta olíugjald 7%. Þar sem ég á sæti í sjútvn. og sjútvn. mun fjalla um þetta mál mun ég gera grein fyrir okkar sjónarmiðum þar og þegar kemur að því að við skilum nál.