16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2440 í B-deild Alþingistíðinda. (2066)

335. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Viðskrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Hv. 5. landsk. þm. hefur beint til mín þeirri fsp., hvort reglur

hafi verið settar um rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins sem tryggi að bændur fái fjármuni sína í hendur um leið og lánin eru veitt, í samræmi við ályktun Alþingis frá 22. maí 1979 um beinar greiðslur til bænda.

Eins og kunnugt er skipaði landbrh. nefnd í okt. 1978 sem falið var að gera tillögur um breytingar á afurða- og rekstrarlánum þannig að bændur gætu fengið laun sín greidd og óhjákvæmilegan rekstrarkostnað svipað og aðrir aðilar. Í nefndina voru skipaðir Árni Gunnarsson alþm., Geir Magnússon gjaldkeri Sambands ísl. samvinnufélaga, Gunnar Guðbjartsson fyrrv. formaður Stéttarsambands bænda, Kjartan Ólafsson fyrrv. alþm., Sveinn Jónsson fyrrv. aðstoðarbankastjóri seðlabanka Íslands, en síðar tók Garðar Ingvarsson forstöðumaður lánadeildar við störfum hans í nefndinni. Magnús Jónsson bankastjóri Búnaðarbanka Íslands, Helgi Bergs bankastjóri Landsbanka Íslands og Vilhjálmur Hjálmarsson fyrrv. ráðh., sem jafnframt var skipaður formaður nefndarinnar.

Með bréfi landbrh., dags. 20. mars 1980, var þessari nefnd jafnframt falið að gera tillögur svo sem fært þykir um tilhögun afgreiðslu rekstrar- og afurðalána landbúnaðarins sem tryggi að bændur fái í hendur þá fjármuni sem þeim eru ætlaðir um leið og lánin eru veitt, sbr. ályktun Alþingis, dags. 27. maí 1979, um beinar greiðslur til bænda, eins og segir orðrétt í bréfinu.

Í skýrslu þeirri, sem nefndin skilaði ráðh., var lýst í stuttu máli gildandi tilhögun á greiðslu rekstrar- og afurðalána og þess getið, að nefndin hefði fengið í hendur bréflegar umsagnir Seðlabankans, Landsbankans, Búnaðarbankans og Stéttarsambands bænda á framkvæmd þál., og fylgja umsagnir með skýrslu nefndarinnar með fskj.

Í fyrri umr. um þál. á Alþingi hefur efni þessarar skýrslu og fskj. verið rakið. Hér skal aðeins á það minnst, að algjör samstaða varð um það í nefndinni að leggja ekki til breytta tilhögun á greiðslu rekstrar- og afurðalána. Verður sú niðurstaða tæplega skilin öðruvísi en svo, að nefndin hafi nánast talið útilokað að hrinda þál. í framkvæmd. Þennan skilning staðfesti einn nm., Árni Gunnarsson alþm., í umr. á þingi í maímánuði á síðasta ári. Hann sagði þá, með leyfi hæstv. forseta:

„Eftir marga fundi og viðræður við sérfróða menn á þessum sviðum komst nefndin að þeirri niðurstöðu í stuttu máli, að miðað við núverandi sölukerfi landbúnaðarafurða á Íslandi væri tæknilega ógerlegt að koma á beinum greiðslum til bænda.“

Það skal tekið fram, að þrátt fyrir þessa niðurstöðu vakti nefndin athygli á leið sem Seðlabankinn benti á í umsögn sinni til þess að framkvæma þál., en ljóst er að nefndin hefur ekki talið fært að mæla með þeirri leið.

Þrátt fyrir að þál. væri talin nánast óframkvæmanleg í þeirri skýrslu, sem lýst hefur verið, ákvað ég sem ráðh. bankamála að athuga hvort hægt væri að reyna til þrautar að framkvæma ályktunina. Var þremur embættismönnum falið að athuga hvort þess væri kostur að setja reglur um rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins sem tryggðu að bændur fengju í hendur þá fjármuni, sem þeim eru ætlaðir,um leið og lánin eru veitt,sbr. fyrrgreinda þingsályktun.

Umfangsmikið starf hefur verið unnið í þessu skyni. Má t.d. nefna að farið var út í viðamikla upplýsingaöflun hjá sláturleyfishöfum til þess að sem gleggst mynd fengist af gildandi greiðslufyrirkomulagi rekstrar- og afurðalána. Könnunin var talin nauðsynleg forsenda þess, að hægt væri að gera sér ítarlega og nákvæma grein fyrir leiðum til breytinga. Jafnframt hefur verið farið rækilega ofan í saumana á afstöðu bændasamtakanna og viðskiptabankanna til framkvæmdar á þál. Hvort tveggja hefur reynst afar tímafrekt, en þess er þó að vænta, að athugunum verði lokið áður en þessi mánuður er á enda.

Óhætt er að fullyrða að sú könnun og öflun gagna um þetta mál, sem fram hefur farið, mun ekki réttlæta breytingar í þá átt sem fyrirspyrjandi hefur unnið að og getur sætt sig við. Einkum á þetta við um afurðalánin. Skal ég nú víkja að þessu nokkru nánar og tek þá fyrst fyrir afurðalánin.

Samkv. þál. er gert ráð fyrir að hin svonefndu afurðalán landbúnaðarins greiðist bændum beint af bankakerfinu án milligöngu vinnslustöðva eða heildsöluaðila. Afurðalánin eru veitt út á birgðir sauðfjárafurða, mjólkurafurða og ýmissa afurða aukabúgreina til þess að standa undir þeim kostnaði sem í afurðirnar hefur verið lagður.

Það liggur í augum uppi að óraunhæft er að greiða beint til bænda afurðalán sem til komin eru vegna mjólkurafurða. Hér er einkum um að ræða lán vegna framleiðslu og birgða af smjöri og ostum og engin leið að gera upp hlut einstakra bænda í fyrirliggjandi birgðum hverju sinni. T.d. er hugsanlegt að farið hafi fram fullnaðaruppgjör við bændur á mjólk, sem búið er að umbreyta í osta sem eru í birgðum, og búið sé að greiða fullt verð til bænda fyrir mjólkina. Óraunhæft væri að láta þeim einnig í té hluta afurðalána vegna sömu mjólkur.

Afurðalán vegna aukabúgreina verða einnig að ganga til þess aðila sem hefur vinnslu eða sölu vörunnar með höndum. Annað yrði illframkvæmanlegt. Framleiðendur hrossakjöts eru t.d. bæði margir og smáir og sumir hverjir þéttbýlisbúar. Beinar greiðslur afurðalána til þessara framleiðenda, jafnvel út á eitt til tvö hross, mundu leiða til allt of mikils kostnaðar og skriffinnsku.

Hvað varðar lán vegna sauðfjárafurða, sem mestmegnis eru veitt út á sláturafurðirnar, er nauðsynlegt að fara nokkrum orðum um hvernig uppgjör við bændur vegna þessara afurða hefur farið fram.

Eins og mönnum er kunnugt falla sláturafurðir sauðfjár til á haustmánuðum ár hvert. Framleiðsluráð landbúnaðarins hefur sett þá meginreglu að sláturleyfishafar greiði bændum a.m.k. 80% af verðmæti afurðanna á haustin. Á þessum tíma er meginhluti afurðanna enn þá í birgðum og sláturleyfishöfum ekki mögulegt að inna áðurnefnda greiðslu af hendi fyrr en afurðalánin hafa verið veitt. Seðlabanki Íslands og viðskiptabankarnir veita afurðalán út á sauðfjárafurðir, sem er á bilinu 71–75% af kostnaðarverði afurðanna án sjóðagjalda. Þessi lánveiting er forsenda þess, eins og áður er nefnt, að sláturleyfishafar geti greitt bændum tilskilinn hluta afurðaverðsins samkv. tilmælum Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Það má öllum vera ljóst, að sláturleyfishafar yrðu að lækka útborgunina um það sem lánafyrirgreiðslunni nemur ef þeir fengju ekki afurðalánin og þau greiddust beint til bænda. Það hlýtur einnig öllum að vera ljóst, að bændum væri óþökk gerð með því að ætla þeim að sækja haustútborgun sauðfjárafurða að hluta til bankakerfisins í formi afurðaláns og að hluta til sláturleyfishafans, en það mundi einmitt leiða af framkvæmd þál. um beinar greiðslur á afurðalánum til sauðfjárbænda.

Þau atriði, sem hér hafa verið rakin, útiloka að mestu þann möguleika að greiða afurðalánin beint til bænda. Er þó ekki allt upp talið.

Hagsmunasamtök bændanna sjálfra, Stéttarsambandið, hafa alfarið lýst sig mótfallin beinni greiðslu afurðalánanna. Afstaða Stéttarsambandsins er einkum á því byggð, að beinar greiðslur muni reynast flóknar og erfiðar í framkvæmd og kostnaðarsamar fyrir bændur. Þessari afstöðu Stéttarsambandsins er vert að veita athygli, sérstaklega þegar haft er í huga að fyrirspyrjandi telur sig berjast fyrir hagsmunum bænda.

Í þessu sambandi má t.d. ekki gleyma því, að bændur yrðu að taka á sig kostnað í formi lántöku og stimpilgjalda ef beinar greiðslur væru teknar upp. Því má ekki heldur gleyma, að mjög erfitt gæti orðið og kostnaðarsamt að halda tryggilega skrá yfir þá sem senda ætti greiðslurnar. Ekki mætti reiða sig á vinnslustöðvar og heildsöluaðila í því efni. Ætti t.d. að senda greiðslur til allra þeirra sem eiga búfé, en þeir eru margfalt fleiri en hinir eiginlegu bændur og búa oft í þéttbýli? Varla hefur þessi hugsun legið að baki þál. Ef ætti að senda greiðslur til þeirra, sem hafa lögbýli til umráða, ef þessi viðmiðun væri notuð, rækju menn sig fljótt á þá staðreynd, að margir telja sig bændur, þó þeir hafi ekki lögbýli til umráða, af því að þeir lifa af búvöruframleiðslu. Þetta dæmi varpar nokkru ljósi á það, hversu miklum örðugleikum er bundið að setja almennar reglur um beinar greiðslur sem menn yrðu ásáttir um.

Afstaða viðskiptabankanna, Landsbankans og Búnaðarbankans, til þál. um beinar greiðslur rekstrar- og afurðalána til bænda hefur alltaf verið fremur neikvæð. Einkum á þetta við um greiðslur afurðalána. Í nóvembermánuði s.l. voru bankarnir spurðir álits á því, hvort þeir teldu þá leið tæknilega framkvæmanlega sem Seðlabankinn hefur lagt til að farin verði til þess að ná tilgangi umræddrar þál. Leið sú, sem hér um ræðir, er í því fólgin, að bankar þeir, sem veita rekstrar- og afurðalán, mundu tilkynna bændum að þeim stæði til boða að taka lán sín sjálfir að uppfylltum þeim skilyrðum sem bankarnir settu, og stæði þá þeim bændum, sem þannig væri ástatt um, opið að taka lánin. Fyrir hina, sem annaðhvort ekki æsktu þess eða gætu ekki uppfyllt sett skilyrði, mundu sláturleyfishafar eða vinnslustöðvar vera lántakendur eins og nú er.

Svar viðskiptabankanna tekur fyrst og fremst mið af afurðalánum sem veitt eru út á sláturafurðir. Afstaða þeirra til beinna greiðslna á öðrum afurðalánum liggur þó alveg ljós fyrir. Af svari bankanna verður ekki önnur ályktun dregin en sú, að þeir telji ógerlegt að fara leið Seðlabankans til að ná tilgangi þál. Þeir segja að um afurðalánin gildi þær reglur, að þau verði að vera með veð í afurðunum sjálfum og afurðirnar í vörslu veðsalans. Við núverandi aðstæður sé útilokað fyrir bóndann að veðsetja sláturafurðir því hvergi sé aðstaða til að halda afurðum hans aðskildum og þar með sjálfsvörslu hans á veðinu. Þetta gerir það óhjákvæmilegt, að sláturleyfishafar, sem hafa vörurnar til sölumeðferðar, taki afurðalánin og veðsetji afurðirnar líkt og verið hefur. Jafnframt lýsa bankarnir þeirri skoðun sinni, að veðsetning á afurðum sé forsenda þess, að hægt sé að tala um afurðalán samkv. núgildandi lögum.

Það, sem hér hefur verið sagt á undan, ætti að skýrast enn frekar þegar embættismennirnir, sem ég fól að athuga þál., hafa lokið verki sínu, sem ætti að geta orðið fyrir lok þessa mánaðar, eins og áður hefur verið sagt. Þó er óhætt að fullyrða, þegar litið er til þeirra atriða sem drepið hefur verið á hér að framan, að fátt getur réttlætt setningu reglna um beinar greiðslur afurðalána til bænda. Sérstaklega má minna á afstöðu bænda sjálfra sem fyrirspyrjandi vill berjast fyrir.

Þá er komið að rekstrarlánunum. — Ég á eftir, herra forseti, örlítinn kafla. Þetta er viðamikið mál og ekki unnt að svara því nema á nokkrum tíma, en það er ekki langt eftir af svarinu.

Seðlabanki Íslands veitir landbúnaðinum hin svokölluðu rekstrarlán. Rekstrarlánin eru veitt vegna framleiðslu sauðfjárafurða á vori og fram eftir sumri og endurgreiðast með afurðalánum að hausti þegar sláturtíð er lokið og veðsetning birgða kindakjöts hefur farið fram. Af þessu leiðir að sláturleyfishafar taka þessi lán og ábyrgjast endurgreiðslu þeirra. Spurningin er sú, hvort þeir fjármunir, sem Seðlabankinn veitir til þessa, nái til bændanna sjálfra eða dagi uppi í kassa sláturleyfishafanna. Í því sambandi er vert að minna á hverjir eru sláturleyfishafar í landinu. Það eru kaupfélögin með alhliða viðskipti við bændur, sláturfélög og slátursamlög, auk einkaaðila eða hlutafélaga sem reka sláturhús án annarra viðskipta við bændur.

Af þessari upptalningu má ljóst vera að möguleikar bænda til að rekstrarlánin komi til fjármögnunar í búrekstri þeirra er mismunandi eftir því hvaða aðli á í hlut. Sé rekstur kaupfélaganna skoðaður er enginn vafi á að þau veita sauðfjárbændum mun meiri lánsviðskipti frá vordögum og fram á haust en rekstrarlán frá Seðlabankanum nema. Að sjálfsögðu er lánaviðskiptaþörf bænda misjöfn eftir efnahag. Stéttarsamband bænda hefur því vakið athygli á að greiddust þessi lán bændum beint væri hugsanlegt að margir bændur mundu ekki taka lánin af einni eða annarri ástæðu. Þá yrði minna til að miðla hinum efnaminni sem einkum hafa þörf fyrir lánafyrirgreiðslu þar til afurðainnlegg fer fram. Þeir sláturleyfishafar, sem ekki hafa alhliða viðskipti við bændur, hafa takmarkaðri möguleika til að láta rekstrarlánin ganga til fjármögnunar í búrekstri sauðfjárbænda gegnum viðskipti. Þó er það svo, að í mörgum tilfellum hafa þeir séð um að greiða áburðarkaup bænda, og einnig eru dæmi til um að þeir leysi út víxla fyrir bændur með ávísun á sauðfjárinnlegg að hausti. Í þeim tilfellum fá einstakir bændur meiri fyrirgreiðslu hjá þessum sláturleyfishöfum en nemur upphæð rekstrarlána er svarar haustinnleggi bóndans.

Af því, sem hér hefur verið sagt, kemur fram að rétt mun vera að kanna mjög ítarlega alla möguleika á umbótum í fyrirkomulagi á rekstrarlánveitingum til sauðfjárbænda. Að því er nú unnið á vegum ráðuneytisins þó niðurstöður liggi ekki fyrir enn.

Hér skal aðeins nefnt að nokkur kaupfélög hafa þann hátt á að greiða rekstrarlán inn á reikning hjá bændum um leið og þau eru veitt, t.d. Kaupfélag Borgfirðinga og að ég hygg Kaupfélag Eyfirðinga að verulegu leyti. Ekki skal um það fullyrt, hvort þessi leið verður talin fær eða einhver önnur, því vissulega eiga ýmsir þeir annmarkar, sem eru á beinni greiðslu afurðalána, einnig við um rekstrarlán. Breytingar á þessum málum munu óhjákvæmilega valda sumum bændum auknum erfiðleikum. Þess ber sérstaklega að gæta, að það verði ekki þeir bændur sem hafa þrengri fjárráð fyrir og bágari afkomu. Það væri varla til góðs fyrir bændastéttina.

Að lokum vil ég víkja að atriði sem oft hefur borið á góma í umræðum um greiðslufyrirkomulag rekstrar- og afurðalána í landbúnaðinum, en það er tilvísun til fyrirkomulags þessara mála í sjávarútvegi. Vinnsla sjávarafurða er ætlað að greiði að fullu aflaverðmæti til sjómanna þegar veiting afurðalána fer fram. Það mætti hugsa sér að sama skilyrði væri sett vinnslustöðvunum í landbúnaði. Á þessu er þó sá munur, að hráefnisverð í unninni vöru í sjávarútvegi er um helmingur af verðmætinu, en í landbúnaði er hráefnisverðið nær 'Is hlutar verðmætisins. Afurðalán þessara atvinnugreina eru ámóta hlutfall heildarverðmætis og því augljóslega erfiðara fyrir vinnslustöðvar landbúnaðarins að gera upp afurðaverð við bændur en fiskvinnsluna að gera upp fiskverð við sjómenn.