16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2453 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

335. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. undraðist orð mín hér áðan.

Ég lagði í fyrsta lagi aðaláherslu á það, að hæstv. ráðherrum bæri að fara að samþykktum hins háa Alþingis. Ég hélt að enginn þyrfti að undrast yfir þeirri afstöðu minni, og ég var að vænta þess, að allir hefðum við þá afstöðu, hv. alþm.

Í öðru lagi lagði ég áherslu á það, að bændastéttin ætti að sitja við sama borð og aðrir sem rekstur stunda í þessu þjóðfélagi, njóta sömu kjara í viðskiptum og allir aðrir. Ég hélt satt að segja að allir gætum við verið sammála um það atriði.

Hv. 2. þm. Suðurl. hefur svarað skilmerkilega hinni einkennilegu upphrópun hv. 6. þm. Norðurl. e. um hvar peningarnir væru. Að sjálfsögðu eru veitt afurðalán og rekstrarlán í dag og þar eru miklir fjármunir á ferðum sem bændastéttin á ekki aðgang að.

Og enn að lokum þetta: það skyldi þó ekki vera, að einstaka aðilar hafi hafið framkvæmd á þessu, að fjármunirnir renni nokkurn veginn beint til bænda? Þá mætti gjarnan kynna sér hvernig til hefði tekist. Mér skilst, þar sem ég hef spurnir af þessu, að báðir aðilar telji sig hagnast á þeirri aðferð.