16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2453 í B-deild Alþingistíðinda. (2080)

335. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Vegna furðulegrar ræðu, sem Stefán Valgeirsson, 2. þm. Norðurl. e., flutti hér áðan, vil ég taka það alveg skýrt fram, að ég get ekki séð á hvern hátt þær skoðanir, sem ég lýsti áðan, ganga gegn vilja bænda eða gegn hagsmunum þeirra. Ég lýsti því yfir í fyrsta lagi, að bændur ættu að hafa, hver og einn bóndi og bændur í heild, sama rétt til þess að ákvarða meðferð sinna afurða eins og sjómenn og aðrir, sem afurðaframleiðslu stunda í öðrum greinum, hafa. Hvernig það getur gengið gegn hagsmunum eða vilja bændastéttarinnar er mér gersamlega fyrirmunað að skilja. Ég óska eftir að bændur hafi sama rétt og aðrar stéttir. Mér sýnist hv. þm. Stefán Valgeirsson vera talsmaður þess hér, ef á að túlka orð hans í þessu samhengi rétt, að bændur hafi ekki sama rétt og aðrar stéttir.

Í öðru lagi lýsti ég því yfir, að þegar samið er um hagsmuni á sviði landbúnaðarins varðandi afurðir bændanna og enn fremur vinnslu úr afurðum þeirra, bæði á sviði matvæla og eins iðnaðar, þá sé nauðsynlegt að þeir, sem ólíkra hagsmuna hafa að gæta, sitji sitt hvorum megin við borðið, en það sé ekki verið að rugla hagsmunum svo saman með slíku samningskerfi, að hinir ólíku hagsmunir víki fyrir undarlegu kerfi þar sem sömu aðilarnir sitja jafnvel allt í kringum borðið. Þess vegna sé tekið upp það kerfi á sviði landbúnaðarákvarðanatökunnar að skýrt og greinilega sé við meðferð málsins skilið á milli þeirra sem hafa ólíkra hagsmuna að gæta. Þeir., sem framleiða úr landbúnaðarafurðunum, hafa að hluta til ólíkra hagsmuna að gæta. Bændurnir hafa á nákvæmlega sama hátt og þeir, sem vinna úr fiskinum í frystihúsunum og fiskverkunarstöðvunum, að hluta til ólíkra hagsmuna að gæta. Hvernig þetta getur gengið gegn hagsmunum bænda held ég að hv. þm. Stefán Valgeirsson verði að hugleiða betur áður en hann endurtekur slíkar fullyrðingar.