16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2455 í B-deild Alþingistíðinda. (2083)

335. mál, rekstrar- og afurðalán landbúnaðarins

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég vil vekja athygli á því, að þessi fsp. er einvörðungu um afurðalán, en ekki rekstrarlán, þannig að umfjöllun í sambandi við afurðalánin er fyrir utan mörk þessarar fsp.

En ég vil út af ummælum hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar bara segja það, að honum veitir ekki af að athuga það kerfi sem er í landbúnaðinum, miðað við þau orð sem hann lét falla áðan, því að það er alveg greinilegt að hann hefur ekki hugmynd um hvernig þetta kerfi er. Bændurnir sjálfir eiga t.d. flestar vinnslustöðvarnar og þeir fá út úr sínu verði eftir því hvernig sá rekstur gengur, þannig að þeir yrðu þá að sem ja við sjálfa sig í sambandi við þetta. Þeir hafa ekki við aðra að semja. Það fer alveg eftir því, hvernig vinnslustöðvarnar eru reknar, t.d. mjólkursamlögin og sláturhúsin. Það eru að vísu til vinnslustöðvar sem bændurnir reka ekki, t.d. kjötvinnslustöðvarnar sumar hverjar, en sumar reka þeir. Þetta er því ekki einfalt mál. Menn verða að athuga hvernig þetta kerfi er byggt upp.

Ég skal ekkert segja um hvort hagkvæmt er að breyta þarna eitthvað um. Eitt er alveg vist, svo að ég komi aðeins með eina setningu í sambandi við rekstrarlánin, að þau eru komin úr öllu samhengi við þá þörf sem er í þeim málum, og þar á ég við rekstrarlán til sauðfjárbúskaparins. Það er mál sem þyrfti að fjalla um, en er ekki tími til í fyrirspurnatíma.