16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2461 í B-deild Alþingistíðinda. (2089)
336. mál, beinar greiðslur til bænda
Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans sem voru að vissu leyti greinargóð eins og ég átti von á. Ég gat ekki gert mér vonir um að hann gæti svarað öllu mjög ítarlega á örstuttum tíma, en einstök atriði eru þó sem mig langar aðeins að víkja að fáum orðum.
Ráðh. gat þess, að þegar athugað var að greiða orlof beint til bænda hefðu verið á því annmarkar. Hann taldi þar ýmislegt upp, eins og t.d. að bústofn skipti um eigendur, afurðir skiptu um eigendur o.s.frv., og svo er einnig hitt, sem er aðalatriðið að mér skilst, að dýrara væri fyrir ríkissjóð að fara þessa leið til áhrifa á verðlags-, þróunina, og hann gat þess einnig síðar að því er varðaði beinar greiðslur að öðru leyti, eins og niðurgreiðslur beint til bændanna, að það hefði minni áhrif á verðlagsþróun og væri því óhagstæðara. En þetta er náttúrlega kjarninn í málinu.
Það er alltaf verið að tala um að það sé óhagstæðara fyrir ríkissjóð að láta fé það, sem bændurnir eiga — þeir eiga afurðirnar, ganga beint til þeirra vegna þess að þá sé ekki hægt að haga vísitölusvindlinu jafnsnilldarlega; þá sé ekki hægt að taka út einstakar vörutegundir og greiða þær niður og segja: Nú gátum við ráðið við verðbólguna. — Verðbólgan er nefnilega alls ekki það sem stjórnvöld telja hana vera. Þau reikna út ákveðna framfærsluvísitölu sem er svindlað á í bak og fyrir. Þá er ekkert verið að hugsa um hag bændanna. Það er óhagstæðara að gera þetta svona. Það er óhagstæðara að bændurnir fái peningana beint til sín, en hagstæðara að láta þá staðna einhvers staðar annars staðar vegna þess að þá er hægt að fullkomna svindlið í vísitölukerfinu. — Þetta er umbúðalaust það sem bæði hæstv. landbrh. var að segja áðan og menn hafa áður sagt, m.a. í skriflegum greinargerðum. En auðvitað nýtast þessir peningar betur, bæði fyrir bændur og þar með neytendur, þegar til lengdar lætur með því að bændurnir fái peningana strax og geti hagrætt búrekstri sínum með því að hafa fjármunina undir höndum í stað þess að þurfa að bíða eftir þeim lengur eða skemur. Þetta er auðvitað hagstæðara bæði fyrir bændur og neytendur, fyrir þjóðina í heild, en alls ekki óhagstæðara. Það er óhagstæðara aðeins fyrir stjórnvöld á hverjum tíma. Það er erfiðara fyrir þau að svindla á vísitölunni ef þau hafa ekki þetta tæki til að hafa peningana í afurðasölufélögunum, en ekki hjá eigendum fjárins, bændunum sjálfum. Þetta er umbúðalaust það sem verið er að segja.
Að því er varðar aftur á móti ummælin um kvótakerfið annars vegar og beinar greiðslur hins vegar voru settar fram mjög ítarlegar tillögur um hvernig hægt væri að nota beinu greiðslurnar til þess að hafa áhrif á framleiðslumagn, eins og ég gat um í minni frumræðu, og þess vegna held ég að það væri hægt að ná sama árangri í því efni með beinu greiðslunum, en hins vegar að losna við óteljandi annmarka af kvótakerfinu, sem er náttúrlega nokkurs konar lénsskipulag sem verið er að færa yfir landbúnaðinn, enda kemur það auðvitað í ljós, eins og lesið var hér upp úr bréfi Gunnars Guðbjartssonar, að ýmsir erfiðleikar hafa verið við ákvörðun búmarks. Þá eru náttúrlega leikur einn þeir erfiðleikar sem koma í ljós miðað við það sem verða mun þegar allir eru farnir að svindla á kerfinu, sem auðvitað verður þegar fram í sækir, þegar menn læra hvað slíkt kerfi hlýtur að vera götótt. — En reynslan af framkvæmd kvótakerfisins er auðvitað ekki með öllu komin í ljós og bréfið, eins og ráðh. gat um, skrifað í nóvember og við fáum sjálfsagt að frétta meira af þessu síðar.
Hvað varðar 6. liðinn, þ.e. fóðurbætisskattinn, fannst mér rétt að spyrja þeirrar spurningar. Ég átti ekki von á að hæstv. ráðh. gæti svarað með öðrum hætti en hann gerði. En það er vissulega áhyggjumál ef svo kynni að fara að þessi skattur yrði dæmdur ólögmætur og yrði að greiðast til baka. Ég veit ekki hvar er hægt að taka það mikla fé. Merkir lögfræðingar telja að þetta gjald sé ólögmætt og þegar er búið að stefna, ef ég hef skilið það rétt, í einu máli sem er prófmál í þessu efni. Þess vegna er engin ástæða til annars en að veita því athygli og gera sér grein fyrir hvaða úrræði þá væru til.
En þegar líka er farið að taka erlend lán til að greiða niður afurðir innanlands — og ekki eingöngu innanlands, heldur líka raunar að greiða niður afurðir erlendis, langaði mig í því sambandi og í sambandi við allar þessar fjárreiður og allt þetta, sem verið er að velta á undan sér í landbúnaðinum, eins og gert var á síðasta ári í sjávarútveginum þangað til blaðran sprakk, að fá að vita nánar um þessar 29 millj. sem ég spurði hæstv. ráðh. um, en honum gafst ekki tími til að svara áðan, en ég veit að hann svarar nú á eftir, hvort það er einnig þannig vaxið að það muni verða tekið núna lán eða greitt úr ríkissjóði fyrir fram til að dylja að einhverju leyti vanda landbúnaðarins og til að greiða fyrir afurðasölufélögunum og hvort þeir peningar að einhverju leyti, eins og aðrir peningar, staðni í afurðasölufélögunum, en bændur fái þá ekki strax í hendur.
Herra forseti. Ég skal ekki syndga meira upp á náðina.