16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2468 í B-deild Alþingistíðinda. (2096)

121. mál, rannsóknir og viðvörunarkerfi í Mývatnssveit

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Í sambandi við þau eldsumbrot, sem orðið haf í Leirhnjúk og nágrenni, og hættu á frekari umbrotum hafa Almannavarnir komið fyrir eða hlutast til um ýmsar ráðstafanir til öryggis íbúum í Mývatnssveit. Má þar til nefna og er hér byggt fyrst og fremst á upplýsingum frá dómsmrn. og Almannavörnum:

1. Viðvörunarkerfi. Fyrirkomulag viðvörunarkerfis var framan af þannig, að Orkustofnun hafði með höndum svokallaða skjálftavakt, þ.e. rekstur jarðskjálftamæla og stöðuga vöktun þeirra í Reynihlíð. Orkustofnun lagði þá vakt niður þegar byggingarframkvæmdum við Kröflu lauk. Tóku Almannavarnir ríkisins þá í samvinnu við vísindastofnanir að annast öryggisvöktun og viðvörunarkerfi þegar komið var hættuástand. En þegar landris hafði náð tiltekinni hæð séð frá sjálfritandi hallamælum var talið að komið væri hættuástand. Var jarðfræðingur þá fenginn til að vera á vakt til að meta þróun og hættu á umbrotahrinum og ráðnir menn til að fylgjast með mælum allan sólarhringinn svo að flýta mætti viðvörun. Almannavarnir ríkisins greiddu ferða- og dvalarkostnað vísindamanna. Hins vegar báru vísindastofnanir launakostnað sinna starfsmanna.

Á s.l. sumri var svo komið að vísindastofnanir þær, sem hlut eiga að máli, þ.e. Norræna eldfjallastöðin, Orkustofnun og Raunvísindastofnun Háskólans, töldu sig ekki geta sinnt skjálftavaktinni vegna manneklu og fjárskorts. Almannavarnir ríkisins hlutuðust þegar til um að vöktun vísindamanna hélst áfram meðan unnið var á endurbótum á viðvörunarkerfinu. Keyptar voru viðvörunarbjöllur og komið fyrir skjálftavakt í Kísiliðju, en áður hafði slíkum búnaði verið komið fyrir í Kröfluvirkjun. Tryggð var vöktun mæla í skjálftavakt, en sólarhringsvakt var fyrir í Kísiliðju og Kröfluvirkjun. Keyptur var síriti fyrir hallamæli í vaktherbergi Kísiliðju, komið á fjarskiptasambandi vegna tengingar vöktun í Kísiliðju við mælikerfi og starfsmönnum Kröfluvirkjunar og Kísiliðju veitt nauðsynleg þjálfun til að geta lesið af mælum og metið þær upplýsingar er fram koma.

Það er mat Almannavarna, að viðvörunarkerfin hafi öll reynst vel í upphafi síðustu goshrinu og viðvörun skilað sér til vaktstöðvanna þriggja. Umsjónarmönnum mælitækja tókst tiltölulega fljótt að áætla hvernig umbrotin væru að þróast. Þá tókst þolanlega með aðstoð flugvéla að afla og koma á framfæri upplýsingum um hraunrennsli. Komu ekki upp sérstök vandamál í þessum eldsumbrotum sem ekki voru þekkt fyrir.

2. Almannavarnanefnd Mývatnssveitar hefur til umráða húsnæði fyrir stjórnstöð með nauðsynlegum fjarskiptatækjum o.fl.

3. Viðvörunarkerfi til samtímis hringingar á öllum símum í Reykjahlíðarhverfi, Kröfluvirkjun og Kísiliðju.

4. Símasamband við byggðina hefur verið treyst með tvöföldu kerfi.

5. Varnargarðar hafa verið reistir. Þeir eru þrír: einn til varnar byggð, einn til varnar Kísiliðjunni og einn til varnar Kröfluvirkjun. Sá síðast nefndi var reistur á vegum Kröfluvirkjunar og Rafmagnsveitna ríkisins, en hinir á vegum Almannavarna.

6. Vatnsdælukerfi er fyrir hendi við Kísiliðjuna. Hugmyndin er að nota dælukerfi Kísiliðjunnar til kælingar á hrauni vegna góðrar reynslu í Vestmannaeyjum. Engar tilraunir hafa verið gerðar, en kerfið er til og vatnsmagn fyrir hendi til dælingar.

7. Vegir hafa verið hækkaðir og lagfærðir á snjóþyngstu stöðum og tryggð tæki til snjóruðnings.

8. Komið fyrir ljósum til að nota á flugvelli.

9. Komið fyrir viðlegubúnaði að Skútustöðum ef til brottflutnings íbúa kæmi.

10. Haldnir fræðslufundir fyrir íbúa og fræðsluritum dreift og hjálparlið þjálfað.

Þetta eru í stórum dráttum þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið til öryggis íbúum í Mývatnssveit samkv. upplýsingum og greinargerð Almannavarna og dómsmrn.

Varðandi 2. fsp. vil ég taka þetta fram: Norræna eldfjallastöðin er sameiginleg stofnun allra Norðurlanda. Kostnaður við hana er greiddur af þeim öllum eftir föstu hlutfalli sem gildir um slíkar norrænar stofnanir. Nú hefur eldfjallastöðin farið fram á aukafjárveitingu frá ríkissjóði Íslands vegna kostnaðar undangengin tvö ár og nemur sú fjárhæð um 200 þús. kr. Ríkisstj. hefur samþykkt að verða við þessari beiðni.