16.02.1982
Sameinað þing: 53. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2475 í B-deild Alþingistíðinda. (2107)
350. mál, smáiðnaður í sveitum
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. forsrh. fyrir þær upplýsingar sem fólust í svari hans við þessari fsp. Ég hef að sjálfsögðu ekkert við það að athuga, að þessi meðferð málsins er höfð, að yfir þessa áætlun er farið af öðrum aðila en þeim sem byggði hana upp. En ég verð þó að segja það, að mér þykir þetta vera farið að taka of langan tíma frá því að áætlunin barst frá Framkvæmdastofnuninni og til dagsins í dag, að ekki hefur orðið af neinum framkvæmdum í þessu efni.
Það er að vísu gott til þess að vita, að iðnrn. hefur haft um þetta starfshóp, og vonandi kemur meira út úr því en bara skýrsla. Ég vona að sá starfshópur og iðnrn. séu í það góðum tengslum við þá iðnráðgjafa sem þegar starfa í landinu, að menn geti vænst þess, að eitthvað komi út úr þessari áætlunarstarfsemi.
Hv. 2. þm. Austurl. hafði orð á því, að hann hefði orðið var við áhuga fyrir þessu víða í sveitum landsins. Mér er einnig kunnugt um það, að hann er fyrir hendi. Þann áhuga þarf að virkja. Frumkvæðið er að mínu mati rétt að komi heiman að og slíkar stofnanir og slík fyrirtæki séu sett upp að frumkvæði heimamanna. En víða þarf til þess stuðning, bæði í ráðgefandi formi og að því er fjármögnun varðar. Það er það sem ég hafði ætlað að væri fyrst og fremst það sem að ríkisstj. sneri, að hún yrði að taka ákvörðun um með hverjum hætti sá stuðningur gæti orðið, einkum fjármagnslega séð, og þess vegna hefði þurft að kynna þessar áætlanir um leið og þær voru tilbúnar.
Ég hef ítrekað vakið athygli á því á stjórnarfundum í Framkvæmdastofnun ríkisins, að það hefur ekki verið tekin afstaða til þeirra áætlana sem unnar hafa verið hjá Framkvæmdastofnuninni. Mér skilst að fæstar þeirra hafi fengið endanlega afgreiðslu hjá ríkisstj., hvorki fyrr né síðar. Reynslan af þeim sumum er sú, að þó að leitast hafi verið við að hrinda þeim fram hefur fjármögnunarþáttur þeirra oft legið eftir, vegna þess að hin sameiginlega afstaða til fjármögnunarinnar, sem eðlilegast er að ríkisstj. komi á milli þeirra lánastofnana sem til greina koma, það leiðandi starf hefur vantað vegna þess að afstaða hefur ekki verið tekin. Ég er þeirrar skoðunar, að það þurfi að ráða bót á þessu. Ég vona að sú umr., sem hér hefur orðið um áætlunina um smáiðnað í sveitum, verði til þess, að menn líti þannig á að það þurfi að færa þessar áætlanir betur út en gert hefur verið enn þá. Ég vil svo þakka fyrir svörin.