17.02.1982
Efri deild: 44. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2488 í B-deild Alþingistíðinda. (2125)

202. mál, birting laga

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Þetta tal um leyndina er algerlega út í hött. Það eru þúsundir einstaklinga og stofnana og aðila í þessu landi sem eru áskrifendur að Stjórnartíðindum. Þeir fengu allir tilkynningu um þessi brbl. Það var engu leynt í þeim efnum. Það var farið nákvæmlega eins með birtingu þessara brbl. og allra annarra laga. Ásakanir eða dylgjur eða óljóst orðalag um það, að ríkisstj. hafi verið að reyna að leyna einhverju í sambandi við þessi brbl., er satt að segja fádæma barnaskapar. Eins og ég upplýsti áðan voru þúsundir eintaka af þessum brbl. bornir út af hinni almennu póstþjónustu til heimila og stofnana um allt land. Svo koma menn í alvöru hér og fara að ásaka aðra um að vera að halda einhverju leyndu. Hvers konar fáviska er þetta eiginlega? Veit hv. þm. kannske ekki hvernig Stjórnartíðindum er háttað? Veit hann kannske ekki hvernig almenna póstþjónustu í landinu starfar? (Gripið fram í.) Það virðist vera eftir þessum málflutningi, þegar verið er að saka menn um að halda einhverju leyndu. Síðan kemur þessi flokkur fjölmiðlasnillinganna og segir: Af því að það er ekki fréttatilkynning, þá er það ekki fullgilt. Það eru sem sagt ekki hinar opinberu aðferðir til að birta lög í landinu, sem ákveðnar eru í stjórnarskrá og landslögum, sem eru fullgildar. Nei, að eru fréttatilkynningarnar sem gera málin fullgild. Það er fjölmiðlabirtingartormið sem gerir það að verkum, hvort mál eru fullgild eða ekki. Og það er kannske skiljanlegt að þessi flokkur fjölmiðlasnillinganna telji ekkert fullgilt nema það sé í fréttatilkynningu.

Hv. þm. Eiður Guðnason sagði áðan að stjórnvöld ættu að tryggja að almenningur fengi að vita þetta. Hvernig geta stjórnvöld tryggt það á annan hátt en að gefa út brbl. eftir réttum aðferðum, eins og gert var í þessum efnum? Ef hv. þm. gerir kröfu um meira, sem mér heyrðist í hans seinni ræðu og einnig í framsöguræðu, þá er hann að gera kröfu um að stjórnvöld fari á einn eða annan hátt að stjórna fjölmiðlunum. Það er a.m.k. ærið stutt í þá kröfu í þessum málflutningi.

Það getur vel verið, þó að ég ætti kannske ekki að segja það sem stuðningsmaður núv. ríkisstj., — það getur vel verið að þeim fréttamönnum hjá útvarpi og sjónvarpi og blöðum, sem fengu þessi Stjórnartíðindi í hendur, hafi ekki þótt neitt fréttaefni í þessum brbl. — það hafi enginn velt því fyrir sér — þeim hafi einfaldlega ekki þótt þetta mjög merkilegt, ríkisstj. hefði fellt gengið áður og hún hefði tekið gengismun áður. Þetta væri bara það sem segir á enskri tungu „things as usual“. Þetta væri það sem venjulega er verið að gera og það væri engin ástæða til að segja sérstaklega frá því. Það hafi engum dottið það í hug. Það getur vel verið að þeir hafi framkvæmt sitt fréttamat, og fréttamat er mismunandi. Alþýðublaðið segir frá því undir stórum fyrirsögnum, að þingflokkur Alþfl. hafi flutt tillögu um EI Salvador. Morgunblaðið segir frá því eindálka lengst inni í blaði, að Alþfl. hafi flutt till. um EI Salvador. Þannig er mismunandi mat manna á mikilvægi hinna einstöku aðgerða sem fram koma, bæði hér á Alþingi, hjá þingflokkum og ríkisstj.

Ég er hér eingöngu að vara við þeirri hugsun, að fjölmiðlum beri skylda til að þjóna ríkisvaldinu á þann hátt að það séu fjölmiðlarnir sem eigi að tryggja að fólkið viti hvað ríkisvaldið er að gera hverju sinni. Það er þessi krafa um þjónustu fjölmiðlanna við ríkisvaldið sem er grunnhugsunin í þeim tillöguflutningi sem hér kemur fram, og ég leyni því ekki, að það undrar mig að hv. þm. Eiður Guðnason skuli gerast talsmaður þeirra sjónarmiða hér. Ég man eftir því, að hann ræddi fyrir nokkuð mörgum árum hugmyndir sem hann taldi að einhverjir væru þá með um opinbera fréttastofu hér í landinu, fréttastofu íslenska ríkisins. (EG: Hér fer þm. villur vegar.) Nei, nei, það eru 13 ár síðan og ég get farið út í þá umr. hér. Í því sambandi benti hann á að það væri viss hætta hjá fréttastofum ríkisfjölmiðla og líka almennri fréttastofu, sem væri háð ríkisstyrk með einum eða öðrum hætti og ætti að vinna hér úr fréttum og aðstoða fjölmiðla á einn eða annan hátt, að fjölmiðlarnir mundu þá ekki varðveita sjálfstæði sitt gagnvart því að túlka aðgerðir stjórnvalda. Ef við eigum að fara að setja lög um það hér. hvernig stjórnvöld starfa gagnvart fjölmiðlum til þess að tryggja vitneskju almennings um stjórnvaldsaðgerðir, er þá ekki hætta á að næst skrefið verði að setja lög um það, hvernig fjölmiðlarnir eigi að segja frá slíkum fréttatilkynningum, þar eð meginástæðan að dómi flm. er að tryggja beri að almenningur viti um það sem verið er að gera?