17.02.1982
Neðri deild: 41. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2490 í B-deild Alþingistíðinda. (2130)

173. mál, útflutningsgjald af sjávarafuðrum

Frsm. (Garðar Sigurðsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um breytingu á lögum um útflutningsgjald. Þetta frv. þarf helst að fá sem skjótasta afgreiðslu. Það er Ed.-mál og var þar samþykkt samhljóða.

Frv. fjallar um það í fyrsta lagi að halda áfram að taka 5.5% útflutningsgjald af sjávarafurðum. Lögin, sem í gildi voru tóku til útflutnings sjávarafurða sem framleiddar væru 1980 og 1981, miðuðust við þau tvö ár og ef þau eru ekki framlengd núna verða útflytjendur að borga 6% í staðinn fyrir 5.5%.

Í öðru lagi fjallar það um þá breytingu, sem gerð var í fyrra vegna ákvörðunar um loðnuverð, að útflutningsgjald af loðnuafurðum var lækkað ofan í 3.5%. Þar sem nú er um framhald þessara veiða að ræða er ekki ástæða til að breyta þeirri prósentu. Við skulum láta hana gilda áfram.

Nál. sjútvn. er á þskj. 335. Þar segir að nefndin hafi rætt málið ú fundi og leggi til að það verði samþykkt. Hins vegar er því bætt við, að einstakir nm. áskilji sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.

Það er venja í hv. sjútvn. að geta þess hverjir hafi setið fund og hverjir hafi ekki átt þess kost að vera þar. Hv. þm. Páll Pétursson var fjarstaddur af sömu ástæðum og hæstv. fjmrh. er nú í dag, veðurtepptur fyrir norðan. Svo var hv. þm. Karvel Pálmason auðvitað fjarstaddur. Það var ekki hans dagur í þinginu þegar þessi fundur var haldinn. Og hv. þm. Pétur Sigurðsson var veikur.

Nefndin leggur sem sagt til að frv. verði samþykkt.