18.02.1982
Efri deild: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2499 í B-deild Alþingistíðinda. (2151)

208. mál, sveitarstjórnarlög

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir stjfrv. um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 58 29. mars 1961. Frv. þetta er til orðið í fyrsta lagi í framhaldi af þeim viðhorfum, sem komið hafa fram á hv. Alþingi varðandi breytingar á lögum um alþingiskosningar, og í öðru lagi vegna samninga og reglna, sem skapast hafa í samskiptum íbúa Norðurlandanna.

1. gr. frv. kveður á um það, að almennar sveitarstjórnarkosningar í bæjum og þeim hreppum, þar sem fullir 3/4 hlutar íbúanna eru búsettir í kauptúni, fari fram síðasta laugardag í maímánuði. Hér er um að ræða breytingu á sveitarstjórnarlögum sem er hliðstæð þeirri, sem áður hefur komið fram í lögum um alþingiskosningar, og hliðstæð þeirri, sem gerð var grein fyrir nýlega í hv. deild í frv. sem flutt var af hv. þm. Salome Þorkelsdóttur og fleirum.

Þó er sú undantekning frá þessu með síðasta laugardag í maímánuði, að beri hann upp á laugardaginn næstan fyrir hvítasunnu eigi sveitarstjórnarkosningar að fara fram næsta laugardag þar á undan. Hér er verið að taka tillit til laga um helgidagahald þjóðkirkjunnar. Í þessum efnum er rétt að geta þess, að mjög sjaldan ber svo við að laugardag næstan fyrir hvítasunnu beri upp með þeim hætti sem nú er. Það mun vera fjórum sinnum á þessari öld sem það kemur fyrir. Engu að síður þótti rétt og sjálfsagt að hafa þetta undantekningarákvæði þarna beinlínis í lögunum, eins og hér er gerð tillaga um, en ekki í ákvæði til bráðabirgða, sem hefði annars verið hugsanlegt.

Í þessari grein er gert ráð fyrir að sveitarstjórnarkosningar fari fram síðasta laugardag júnímánaðar þar sem þannig háttar til að færri en 3/4 hlutar íbúanna eru búsettir í kauptúnum. Í umræðum um þetta mál innan ríkisstj. og innan þeirrar nefndar, sem ég skipaði á síðasta ári til að endurskoða sveitarstjórnarlögin, var í fyrstu gert ráð fyrir að kosningadagur yrði sá sami alls staðar, bæði í þéttbýli og dreifbýli, seint í maímánuði. Þegar málið var til meðferðar og sveitarstjórnarlaganefndin undir forustu Steingríms Gauts Kristjánssonar borgardómara hafði samþykkt að gera tillögu um sama dag í dreifbýll og þéttbýll komu fram aths. frá ýmsum aðilum, einkum þeim sem töldu sig þekkja vel til í landbúnaði, og niðurstaðan varð sú sem hér er gerð till. um, að þarna verði óbreytt skipan frá því sem verið hefur, að kosið verði í dreifbýlinu framvegis síðasta laugardag eða mánuði seinna en í þéttbýlinu. — Þetta var um 1. gr. frv.

Í 2. gr. frv. er kveðið á um hvernig 18. gr. laganna um sveitarstjórnir skuli orðast. Í fyrstunni er ekki um að ræða neinar verulegar breytingar aðrar en þær, að í b-lið er aðeins talað um íslenska ríkisborgara, en í lögunum, eins og þau eru nú, er orðalagið þannig, að menn þurfa að vera íslenskir ríkisborgarar eða hafa jafnan rétt á við þá. Þykir þarflaust að hafa þetta ákvæði með því að það nær fyrst og fremst til útlendinga sem falla undir síðari ákvæði frv. þessa. Ákvæðið mun hafa orðið til fyrst og fremst vegna Dana sem var áskilið fullkomið jafnrétti við íslenska ríkisborgara í 1. gr. laga nr. 85 frá 1946, um ráðstafanir í sambandi við skilnað Íslands og Danmerkur. Má því segja að hér sé gerð tillaga um að fella niður eitt síðasta lagaákvæðið í íslenskum lögum sem átti stoð í því sambandi sem forðum var með Íslandi og Danmörku.

Í 2. mgr. 2. gr. þessa frv. er mjög mikilvæg brtt. Hún gerir ráð fyrir því, að þó að maður hafi útfyllt svokallað samnorrænt flutningsvottorð teljist hann ekki hafa firrt sig kosningarrétti við sveitarstjórnarkosningar, enda fullnægi hann að öðru leyti skilyrðum 1. mgr. 18. gr. laganna. Hér er um að ræða mál sem hefur einkum komið niður á okkar námsmönnum sem dvalist hafa lengi á Norðurlöndum og útfyllt svokallað samnorrænt flutningsvottorð. Þeir hafa misst kosningarrétt hér á landi við sveitarstjórnarkosningar, en hér er gert ráð fyrir að það verði lagað. Hér er sem sagt lagt til að réttarstaða þessara manna, sem dveljast á Norðurlöndum, varðandi sveitarstjórnarkosningar verði hin sama og þeirra sem af sömu ástæðu dveljast utan Norðurlandanna.

Í 3. mgr. 2. gr. frv. er eitt veigamesta nýmæli þessa frv. Þar er gert ráð fyrir að kosningarrétt eigi einnig hér á landi danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem fullnægja skilyrðum a-, c- og d-liða hér að framan, enda hafi þeir átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfellt miðað við 1. des. næsta fyrir kjördag. Þessi skipan mála hefur um hríð verið í gildi á hinum Norðurlöndunum. Hún var ákveðin að frumkvæði Norðurlandaráðs og að undangenginni athugun starfshóps á vegum norrænu ráðherranefndarinnar. Ólafur W. Stefánsson skrifstofustjóri í dómsmrn. átti sæti í starfshópi, sem hér er um að ræða, fyrir Íslands hönd. Þessi starfshópur skilaði áliti í mars 1975 og var lógum annarra Norðurlanda breytt þannig að norrænir ríkisborgarar höfðu kosningarrétt og kjörgengi við sveitarstjórnarkosningar í Finnlandi og Svíþjóð 1976, í Danmörku 1978 og í Noregi 1979. Gilti þetta þá þegar einnig um íslenska ríkisborgara í þessum löndum.

Í grg. eru rakin helstu rökin fyrir breytingu þessari. Þar kemur m.a. fram að 1. des. 1980 voru hér á landi 3240 útlendir ríkisborgarar eða 1.4% af íbúatölunni. Danskir ríkisborgarar voru þá 950, finnskir 45, norskir 275 og sænskir 90. Útlendir norrænir ríkisborgarar voru 1360 talsins eða 0.6% af íbúatölunni. Af þeim voru 907 á kosningaraldri og er ætlað að 670 þeirra uppfylli það dvalarskilyrði sem hér er gert ráð fyrir að sett verði. Eins og menn taka eftir er dvalarskilyrðið hér samfellt þrjú ár fyrir 1. des. næsta á undan sveitarstjórnarkosningunum.

Loks er að geta hér 4. og síðustu mgr. sem er ákaflega mikilvæg. Þeim málum hefur verið þannig háttað, að menn hafa átt kosningarrétt í því sveitarfélagi sem þeir hafa verið búsettir í á kjördag, þannig að menn hafa í raun og veru getað flutt kosningarréttaraðsetur sitt alveg til kjördags. Í þessu frv. er gert ráð fyrir að hér verði breyting á þannig að hver maður eigi kosningarrétt í því sveitarfélagi sem hann á lögheimili í þegar tvær vikur eru til kjördags. Þetta er gert til að draga úr þeim mikla vanda sem sveitarstjórnir og aðrir eiga í síðustu dagana fyrir kosningar eins og þetta hefur verið. Margs konar óvissa og ruglingur vill koma upp og þess vegna verður það þannig, að kjörskrárstofn verður auðvitað miðaður við 1. des. næstan á undan kjördegi, en breytingar verði síðan gerðar á stofninum fyrir þá sem flytja lögheimili sitt eftir þann tíma þangað til tvær vikur eru til kjördags. Það kom til álita að miða þetta við 1. des. næstan fyrir kjördag, en ég taldi óeðlilegt að leggja þau bönd á menn og þess vegna er þetta hér takmarkað við tvær vikur.

Herra forseti. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv. Ég fer fram á það við hv. deild — og mun gera það einnig í Nd., að þingið afgreiði þessi mál hið skjótasta vegna þess að nauðsynlegt er að fara að birta senn tilkynningar vegna sveitarstjórnarkosninganna sem mundu samkv. þessu fara fram 22. maí. Ég hef rætt það við formenn stjórnarandstöðuflokkanna að þeir ræði það í sínum flokkum að reynt verði að tryggja að málið fái skjótan framgang. Ég tek það fram, að forsenda þess er vitaskuld sú, að um málið verði samstaða hér. Um einhver þau atriði, sem eru í frv., kann að vera ágreiningur. Þó hygg ég að það sé varla, nema það sé hugsanlega 4. mgr. 2. gr. sem menn vildu skoða betur. Mér þætti mikilvægt engu að síður að fá inn ákvæði þarna um vissa takmörkun.

Mér skilst, herra forseti, að frv. um breytingu á sveitarstjórnarlögum, sem hér var til meðferðar, hafi farið til allshn. Er það rétt? Eðlilegra væri að svona mál færu til félmn. og ég mundi gera það að tillögu minni ef svipað mál væri ekki áður komið til allshn. Þetta er sveitarstjórnarmál sem heyrir undir félmrn. og ætti þar af leiðandi að vistast í félmn. En rökin fyrir því, að málið sé sett í allshn. hér í deildinni, eru fyrst og fremst þau, að breyting á lögum um alþingiskosningar koma til meðferðar í allshn., eins og eðlilegt er, og sjálfsagt hefur það viðhorf verið hér uppi, að betra væri að sama nefnd reyndi að sjá þessum málum farborða til þess að fulls samræmis væri gætt.

Ég legg til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr., en læt það forseta eftir að flytja tillögu um í hvaða nefnd málið fer.