18.02.1982
Efri deild: 45. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2504 í B-deild Alþingistíðinda. (2155)
208. mál, sveitarstjórnarlög
Guðmundur Bjarnason:
Herra forseti. Nokkrar umr. hafa orðið hér um 1. gr. þessa frv. til l. um breytingar á sveitarstjórnarlögum vegna þeirrar tvískiptingar sem þar er kveðið á um sveitarstjórnarkosningar eftir því hversu fjölmennir hrepparnir eða sveitarfélögin eru. Ég hygg að enn sé nokkur ástæða til þess, að kosningar í fámennum sveitarhreppum fari ekki fram í maímánuði, vegna þess að þá eru miklir annadagar í þeim hreppum. Einnig vill oft bera við að vegakerfi okkar sé því miður ekki enn á því stigi sem æskilegt væri og best væri á þeim tíma. En ég viðurkenni að hitt væri miklu æskilegra og betra, að þarna væri aðeins um einn kjördag að ræða fyrir alla landsmenn. Ég tek undir það með hv. 5. þm. Vesturl., að það væri æskilegt að kanna það og leita álits sveitarstjórna í því sambandi. En tíminn er vissulega orðinn nokkuð naumur til þess nú.
En ástæðan til þess, að ég kvaddi mér hljóðs, er fremur sú, að vegna þessarar tvískiptingar, sem kveðið er á um í 1. gr., finnst mér að sé ástæða til að benda á 4. mgr. í 2. gr. þar sem sagt er: „Hver maður á kosningarrétt í því sveitarfélagi þar sem hann á lögheimili þegar tvær vikur eru til kjördags.“ — Ég vil beina því til nefndar, sem kemur til með að athuga þetta, og e.t.v. varpa til hæstv. félmrh. þeirri fsp., hvort ekki sé rétt skilið hjá mér, að verði frv. samþ. svona geti maður, sem kýs í einhverjum kaupstað í maímánuði, flutt lögheimili sitt fyrir miðjan júní og kosið aftur á löglegan hátt í einhverjum litlum sveitahreppi. Það kann að vera að þetta sé í lagi, en ég vil benda á þetta, gera þá aths. að menn skoði þetta og velti því fyrir sér. Vafalaust verður það athugað nánar í nefndinni.