18.02.1982
Neðri deild: 42. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2521 í B-deild Alþingistíðinda. (2168)
205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Það kerfi, sem við höfum búið við um alllangt skeið og enn er verið að lappa upp á með þeim aðgerðum sem hér eru boðaðar og eru til umr., hefur skilað okkur litlu.í lífskjarabótum, en miklu í verðbólgu, litlu í lífskjarajöfnuði, en miklu í misrétti hvers konar. Kauphækkunin. sem launþegar fengu nýlega, 3.25%, er nú tekin til baka með niðurgreiðslum sem lækka verðlag, eins og framfærsluvísitalan mælir það, um 6%, en þýðir um leið 4% kaupmáttarskerðingu í reynd eða nokkru meira en kauphækkunin frá s.l. hausti nam. Á síðasta ári gerðist þetta með svipuðum hætti. Þá voru launin lækkuð með lagasetningu um 7%. Í báðum tilvikum fylgdi þetta beint í kjölfar hóflegra launasamninga, sem ríkisvaldið stóð að, en ógilti engu að síður litlu síðar. Verðhækkanir, gengisfellingar og launahækkanir elta hver aðra í eilífri hringrás. Ein bráðabirgðalausnin rekur aðra. Enginn varanlegur árangur, engar raunhæfar framfarir eru í þessum efnum. Með þeim aðgerðum, sem hér eru til umr. eru enn farnar sömu troðnu slóðirnar og áður og aðeins hugsað til næstu þriggja mánaða. Enn er haldið áfram að nota kolvitlausa framfærsluvísitölu til að koma aftan að fólki til að skerða verðbætur á laun. Nú eru tollar lækkaðir um 23 millj. kr., en hækkaðir um leið um 54 millj., og niðurgreiðslur eru stórauknar. Í reynd þýðir þetta, eins og ég áður sagði, 4% kjaraskerðingu þótt ekki mælist það þannig í úreltri framfærsluvísitölu. Útkomur verða allar rangar þegar málstokkurinn, sem mælt er með, er rangur.
Sem dæmi um, hve framfærsluvísitalan er vitlaus orðin sem málstokkur á verðbólgu í landinu og þá jafnframt sem málstokkur á kaupmátt launa, bendi ég á að hún segir að meðalfjölskylda í landinu, þ.e. vísitölufjölskyldan, noti 1.8% af ráðstöfunartekjum sínum í upphitunarkostnað. Svo til alls staðar utan Reykjavíkursvæðisins er þessi kostnaður 5–10 sinnum hærri. Þar er hann ekki 1.8% af ráðstöfunartekjum fólks, heldur 9–18% af ráðstöfunartekjum, og hjá láglaunafólki miklu meira en það. Áherslan á að notfæra sér þessa hrikalegu skekkju í grundvelli framfærsluvísitölunnar, sem tekur til svo til allra landsmanna annarra en þeirra sem á stór-Reykjavíkursvæðinu búa, er svo þung hjá hæstv. ríkisstj. að afkomu Hitaveitu Reykjavíkur, líklega hagkvæmasta fyrirtækis landsins, er ógnað. Ríkisstj. hefur litlar sem engar áhyggjur af kostnaði fólks utan Reykjavíkursvæðisins við upphitun húsa sinna — og það sem verra er: verkalýðsforingjarnir hér í Reykjavík virðast heldur engar áhyggjur hafa af því, þó að þeir séu í forsvari fyrir landssamtök launafólks. Þeir virðast vera hinir ánægðustu með þennan blekkingaleik. Hæstv. ríkisstj. hefur af því mestar áhyggjur að eðlileg hækkun á gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur muni leiða til kauphækkunar fólks úti á landi, en það er óþarfi að mati hæstv. ríkisstj. því að það fólk greiðir ekki gjöld til Hitaveitu Reykjavíkur. Hæstv. ríkisstj. hefur sem sagt mestar áhyggjur af því, ef fólk á landsbyggðinni fengi tekið tillit til örlítils brots af þeim viðbótarkostnaði við upphitun húsa sem það hefur orðið að þola óbætt um árabil,óbætt í framfærsluvísitölu, óbætt í verðbótavísitölu.
Ég neita því ekki, að stundum þarf að skerða verðbætur á laun, t.d. ef viðskiptakjör fara mjög versnandi og þjóðartekjur minnka að ráði, að ekki sé talað um, eins og nú á sér stað, að fjármagni þjóðarinnar er beinlínis varið til að skerða lífskjör hennar, t.d. með hóflausum innflutningi fiskiskipa, þótt afkastageta flotans, sem fyrir er, sé mun meiri en fiskstofnar okkar þola, og með hóflausri fjárfestingu í landbúnaði, þótt framleiðsla landbúnaðarvara háfi til skamms tíma og sé á flestum sviðum enn miklu meiri en hagkvæmt er frá þjóðhagslegu sjónarmiði, og er þá vægilega til orða tekið. Ef nauðsynlegt er talið að skerða verðbætur á laun, t.d. sem lið í slagnum við verðbólguna, á að koma framan að fólki og segja því sannleikann, en hætta þessum endalausa feluleik og yfirklóri. Almenningur skilur gang þessara mála og samhengi þeirra miklu betur en ýmsir stjórnmálamenn virðast halda, og á ég þá einkum við Alþb.-menn.
Þótt ég sé sammála því, að samkeppnisiðnaður okkar eigi ekki að greiða hærri skatta en fiskiðnaður og þá ekki heldur hærri launaskatt, kemst ég ekki hjá því að benda á að enn er haldið áfram á þeirri braut núv. hæstv. ríkisstj. að stórlækka skattlagningu fyrirtækja á kostnað launþega í landinu, eins og hv. 3. þm. Vestf. lýsti áðan. Frá árinu 1979 hefur tekjuskattur félaga minnkað um fullan helming, frá því að vera 25% heildarskattsins í 12% á þessu ári samkv. fjárlögum, og nú á að lækka launaskatt. Allt er þetta gert undir forustu þeirra sem áður gátu vart vatni haldið vegna of litillar skattlagningar fyrirtækja og birtu langa lista yfir tekjuskattslaus fyrirtæki máli sínu til stuðnings. Gaman væri að sjá sambærilegan lista nú.
Þótt nú sé stefnt að enn einni bráðabirgðalausninni þykist ég vita að meiri hluti Alþingis sé tilbúinn til raunhæfari aðgerða. Ég gæti t.d. trúað því, að meiri hl. Alþingis mundi styðja ýmsar af tillögum framsóknarmanna eins og þeim hefur verið lýst í blöðum að undanförnu. En Alþb. bannar þær. Það bannar framsóknarmönnum að leggja fram þær tillögur. Það bannar framsóknarmönnum að leggja fram sínar tillögur. Þess er neitunarvaldið. Undir það jaðarmen ganga framsóknarmenn að því er virðist af næsta fúsum vilja. Tillögur Alþb. ganga ævinlega út á það og það eitt að gefa sjúklingunum meiri deyfilyf, en fresta læknisaðgerðum. Í bili er það sársaukaminna. Ef litið er til lengri tíma er þó ólíkt skynsamlegra að beita róttækari læknisaðgerðum þótt undan kunni að svíða í bili.
Þótt langt sé frá því að við Alþfl.-menn séum ánægðir með þær ráðstafanir, sem hér eru til umr., og teljum þær einbert hálfkák, eins og glögglega kom fram hjá hv. 3. þm. Vestf., og reyndar felast þær fyrst og fremst í því einu að blekkja fólk, þær felast í því að fela raunverulega 4% kaupmáttarlækkun, þá munum við Alþfl.-menn ekki bregða fæti fyrir afgreiðslu þeirra hér á hinu háa Alþingi, enda varla von til þess, eins og nú standa sakir, að skynsamlegri vinnubrögð verði upp tekin.