18.02.1982
Neðri deild: 42. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2547 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)
190. mál, almannatryggingar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég fagna því, að þetta frv. er fram komið. Hér er bætt úr mjög brýnni þörf.
Óneitanlega hefur það verið svo á undanförnum árum, áð þau kjör, sem sjómenn á opnum bátum eða þilfarsbátum undir 12 brúttólestum, þeir sem eru komnir til ára sinna, hafa búið við, eru ekki mannsæmandi. Hér er um bæði menningarlegt mál að ræða og mikið nauðsynjamál, og ég vil beina því til þeirrar nefndar, sem tekur málið til meðferðar, að láta það fá fljóta afgreiðslu og í íhuga hvort 25 ár séu eðlilegur tími eða kannske megi lækka mörkin niður í 20 ár. Jafnframt þætti mér sanngjarnt að þessi lög yrðu afturvirk að því leyti að þau næðu a.m.k. til áramóta.