22.02.1982
Efri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2549 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)
206. mál, orkulög
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breytingu á orkulögum. Þetta frv. felur í sér þá stefnumörkun, að sú orka, sem fólgin er í háhitasvæðum, sé sameign þjóðarinnar. Djúphiti á háhitasvæðum yrði sem sagt almannaeign. Hins vegar er gert ráð fyrir að jarðvarmi á lághitasvæðum og yfirborðshiti yrði hvarvetna háður einstaklingsrétti landeigenda.
Alþfl. hefur lengi haft á stefnuskrá sinni að binda það í lög að eignarráð íslensku þjóðarinnar á landi sínu og miðunum séu sameign, að landið verði þjóðareign, að orkulindirnar verði sameign þjóðarinnar og byggðin í landinu fái vaxtarrými án þess að þurfi að greiða okurgjald fyrir. Viðgangur byggðar og atvinnu í landinu þarfnast þess, að orkulindir fallvatna og jarðvarma séu virkjaðar í almannaþágu og landrými sé ráðstafað til mannvirkjagerðar. Það er vitaskuld gagnstætt öllu réttlæti að einstakir landeigendur geti hirt stórgróða vegna þess eins að alþjóðarþörf hafi gert lönd þeirra verðmæt án nokkurs tilverknaðar þeirra sjálfra. Sama gildir vitaskuld um þann varma sem fólginn er í iðrum jarðarinnar, að fyrir því getur varla fundist nokkur réttlætisvottur að menn skuli geta auðgast eða setið yfir hlut annarra vegna þess að á landi þeirra sé jarðskorpan eitthvað þynnri en annars staðar.
Það lagafrv., sem hér er flutt, fjallar sérstaklega um þetta efni. Alþfl. hefur áður flutt margvíslegar þáltill. og lagafrv. sem lúta að sameign þjóðarinnar á landinu, og nú á þessu þingi höfum við Alþfl.-menn áður flutt tvö lagafrv. sem varða sérstaklega sameign þjóðarinnar á landinu, gögnum þess og gæðum. Það er í fyrsta lagi frv. til l. um sameign á landi, sem mælt var fyrir í Nd. fyrr á þessu þingi, og í annan stað frv. til l. um hvernig eignarnámsbætur skuli ákveðnar, sem mælt var fyrir í þessari hv. deild fyrr á þessu þingi.
Það má segja að hugmyndin um þjóðareign landsins sé jafngömul jafnaðarstefnunni, og hún var í fyrstu stefnuskrá Alþfl. Sá hugsunarháttur hefur ríkt hér á landi til skamms tíma, að landrými sé feikinóg og náttúruauðlindir takmarkalausar. Fleiri þjóðir hafa reyndar vaðið í þeirri villu. Nú er annað komið á daginn. Allt er þetta takmarkað og þjóðin deilir um auðlindir landsins en óttast eyðingu lands og nytjafiska. Eins og ég gat um hefur Alþfl. oft áður og nú ár eftir ár flutt á Alþingi tillögur um þjóðareign landsins. Þær hafa mætt harðri mótspyrnu íhaldssamra afla, en það verður að segjast eins og er, að þessar hugmyndir hafa vakið þjóðarathygli og fengið undirtektir um land allt. Grundvallarsetning íslenskrar stjórnarskrár ætti í rauninni að vera eitthvað á þessa leið: Að íslenska þjóðin öll, einn fyrir alla og allir fyrir einn, á Ísland allt, gögn þess og gæði og miðin umhverfis það.
Æðsta stofnun þjóðarinnar, Alþingi, fer með umráðarétt á þessari helgu eign, en getur með sérstökum lögum og reglum veitt einstaklingum, fyrirtækjum og fétagsheildum, t.d. sveitarfélögum, tiltekinn rétt til þessara gæða. Við jafnaðarmenn litum svo á að það sé fráleitt að fjölmennar byggðir nái ekki að virkja nærtæk fallvötn til framleiðslu orku til hita og iðnaðar og til lýsingar vegna eignarhalds landeigenda sem eru þess ekki umkomnir að koma þessum auði í almannagagn. Við félagshyggjumenn teljum það fráleitt að einstakir landeigendur geti staðið í vegi fyrir framförum af þessu tagi. Við jafnaðarmenn litum svo á að þann jarðvarma, sem ríki og samfélagslegt fjármagn og framtak þarf til að koma til almannanota, eigi að gera að þjóðareign og taka til almannaþarfa án stórgjalds til hugsanlegra landeigenda. Við jafnaðarmenn teljum líka að það stríði gegn eðlilegri réttarkennd, að land- eða lóðareigandi grípi af því of fjár að þétt byggð hafi án hans tilverknaðar myndast í eða við landareign hans og þurfi aukið vaxtarrúm. Það er af þessum sökum sem við Alþfl. — menn höfum flutt þau lagafrumvörp sem ég gat um í upphafi. Okkur er ljóst að sameign þjóðarinnar á landinu næst einungis með margvíslegri löggjöf og hér sem á mörgum öðrum sviðum vísar jafnaðarstefnan á leið skynsemi og réttlætis.
Að því er varðar það mál sérstaklega sem ég mæli hér fyrir, breytingu á orkulögum, er það svo, að um það hafa áður verið flutt lagafrumvörp oftlega hér á þingi af fulltrúum ýmissa flokka og þm. Alþfl. hafa oft áður verið meðal flm. lagafrv. um almannaeign að jarðhita. Segja má að megindrögin í því frv., sem ég mæli hér fyrir, séu hin sömu og í þeim frv. sem áður hafa verið flutt á árunum 1972–1977, m.a.stjfrv., sem þáv. iðnrh. Magnús Kjartansson beitti sér fyrir, og þmfrv. sem síðar voru flutt af ýmsum þm. En sú veigamikla breyting er þó gerð hér frá fyrri frumvörpum, að sveitarfélög eða samtök sveitarfélaga eða fyrirtæki þeirra, sem keypt hafa sér land með vinnslu háhita í huga eða rétt til vinnslu fyrir gildistöku laganna, skuli halda rétti sínum óskertum.
Eins og ég gat um í upphafi er í þessu lagafrv. greint á milli umráða- og hagnýtingarréttar á jarðhita eftir því, hvort hann er að finna á háhitasvæðum eða lághitasvæðum. Allur jarðhiti á lághitasvæðum er háður einstaklingsrétti landeigenda, en annar jarðhiti á háhitasvæðum er í almannaeign og í umráðum ríkisins samkv. þessu frv. Þó skulu þeir, sem borað hafa eftir jarðhita á háhitasvæðum og byrjað vinnslu hans við gildistöku laganna eða keypt sér rétt til vinnslu, hafa- þann rétt óskertan áfram.
Samkv. þessu frv. er líka óheimilt að aðrir aðilar en ríkið og þeir, sem leyfi ríkisvaldsins fá, bori eftir jarðhita á háhitasvæðum. Ráðherra hefur samkv. frv. heimild til að leyfa vinnslu jarðhita á háhitasvæðum til minni háttar nota, en að öðru leyti skal skipa því með löggjöf hverju sinni. Með því er tryggt að nýting þessara orkulinda verði sem hagkvæmust fyrir þjóðina.
Í samræmi við 2. gr. orkulaga er Orkustofnun ætlað það hlutverk að ákveða nánar hver séu mörk háhitasvæða, en til að auðvelda Orkustofnun eftirlit með hagnýtingu jarðhitans er ákveðið að skylt sé að tilkynna henni allar boranir eftir jarðhita dýpri en 100 metra. Enn fremur eru sett ákvæði um heimild til eignarnáms á aðstöðu vegna borunar og vinnslu jarðhita á háhitasvæðum.
Með þessum lögum eru eignarrétti einstaklinga sett tiltekin almenn takmörk án þess að bætur komi fyrir, en heimild löggjafarvaldsins til að setja eignarréttindunum almennar takmarkanir er fyrir löngu viðurkennd af dómstólum. Það verður að segja, að nýting háhitaorkunnar telst ekki til þeirra nota af landi sem heyra til venjulegrar hagnýtingar á eignarrétti fasteigna. Verðmæti fasteigna í jörðu hafa ekki orðið til fyrir mannlega starfsemi. Það er líka ljóst, að til rannsókna á hagnýtingargildi hinna einstöku háhitasvæða þarf að kosta miklu fé, en þar sem niðurstöður slíkra rannsókna hljóta ávallt að vera óvissar er vafasamt að einstakir landeigendur hætti fé sínu til slíkra rannsókna. Fjárfesting í tækjum til rannsókna og vinnslu jarðhitans í háhitasvæðum hlýtur að verða a.m.k. flestum einstökum landeigendum ofviða, svo að ekki sé tekið dýpra í árinni.
Það er líka nauðsynlegt að nýting jarðhita á hverju einstöku háhitasvæði lúti stjórn eins aðila, þar sem skipulagslausar boranir á sama svæði af hálfu fleiri aðila mundu leiða til óþarfasóunar og árekstra, þar sem síðari boranir gætu raskað vinnslu jarðhita úr borholum sem áður hafa verið boraðar. Af þessum ástæðum hefur þótt rétt að tryggja með lögum, eins og þetta frv. gerir ráð fyrir, að jarðhiti á háhitasvæðunum verði nýttur á þjóðhagslega hagkvæman hátt, án þess þó að koma í veg fyrir eðlileg not landeigenda af fasteignum sínum. Að svo miklu leyti sem landeigandi verður fyrir takmörkunum á eignarrétti sínum á landi vegna borunar og vinnslu jarðhita á háhitasvæði ber honum að fá fullar bætur fyrir.
Í þessu lagafrv. eru þekkt háhitasvæði talin upp og gerð grein fyrir því, að líklegt sé að finnast muni fleiri háhitasvæði innan gosbeltanna á Íslandi. Flest eru þessi háhitasvæði allhátt yfir sjó, en á tveimur þekktum háhitasvæðum, Reykjanesi og Svartsengi, og líklega Eldvörpum er djúpvatnið sjór, en annars staðar ósalt grunnvatn sem hitnað hefur við djúpa hringrás í jörðu. Hvert háhitasvæði er sjálfstætt rennsliskerfi og getur vinnsla á einum stað raskað rennsli á öðrum stöðum í kerfinu. Af þessum sökum er mikilvægt að vinnsla jarðvarma á hverju svæði sé undir yfirstjórn eins aðila.
Í 1. gr. frv. er að finna skilgreiningu á háhitasvæðum og jafnframt eru talin upp þau jarðhitasvæði sem ekki falla undir þessa skilgreiningu, eru lághitasvæði. Í 1. gr. er líka tekið til um að ríkið eigi allan umráðarétt til hagnýtingar jarðhita á háhitasvæðunum, en landareign hverri fylgir réttur til umráða og hagnýtingar jarðhita á lághitasvæðum og takmarkaður réttur til nýtingar á háhita landeiganda til handa.
Það er síðan tiltekið í 2. gr., að ríkið eigi rannsóknarréttinn að því er þessi svæði varðar og að landeiganda sé skylt að leyfa þeim mönnum, er ríkið eða leyfishafi gerir út í þeim tilgangi, aðgang að landareigninni í rannsóknarskyni. En skemmdir, ef einhverjar verða, skulu bættar að fullu eftir mati. Ákveðið er að leyfi ráðh. skuli bundið þeim skilyrðum, að Orkustofnun eigi þess kost að fylgjast með rannsókninni.
Í 3. gr. er tiltekið að til vinnslu jarðhita á háhitasvæði þurfi að öllu jöfnu leyfi Alþingis, ráðh. sé þó heimilt að veita leyfi til minni háttar vinnslu, eins og nánar er tiltekið í greininni. Síðan er tiltekið að þau sveitarfélög eða samtök sveitarfélaga eða fyrirtæki sveitarfélaga, sem keypt hafa sér land með vinnslu háhita í huga eða rétt til vinnslu jarðhita á háhitasvæði fyrir gildistöku þessara laga, skuli halda rétti sínum óskertum. Nánari ákvæði eru síðan um hver sé réttur sveitarfélaganna og hvernig fara skuli með umsóknir sem berast, og þó einkum og sér í lagi það sem þegar hefur átt sér stað á háhitasvæðum áður en lögin taka gildi.
Ég sé ekki ástæðu til þess, herra forseti, að rekja efnisþætti öllu nánar. Eins og ég gat um fyrr í framsögu minni er þetta frv. í ýmsum megindráttum samhljóða frumvörpum sem áður hafa verið flutt um þetta efni. En frávikin, eins og ég vék að sérstaklega, horfa til þess að taka tillit til nýrra viðhorfa og nýrrar þekkingar sem aflað hefur verið frá því að síðast var fjallað um þessi mál hér á hv. þingi. Enn fremur er ný skilgreining á rétti sveitarfélaga, sem hér eru talin í hópi almannasamtaka og njóta vegna þess, sem þau hafa áður tekið sér fyrir hendur, sama réttar og ríkið.
Ég vil að lokum leggja áherslu á það, að með þessum þremur lagafrv. sem ég hef getið um, því frv., sem ég mæli hér fyrir, því frv., sem áður hefur verið flutt um sameign á landi sem ekki er neinn ótvíræður eigandi að, og frv. um eignarnámsbætur, — með þessum þremur frv. viljum við Alþfl.-menn leggja áherslu á það, að landið sé sameign þjóðarinnar og sniðnir verði af ýmsir þeir agnúar sem eru á núverandi skipan mála. Að þessum þremur lagafrv. samþykktum hefði verið stigið verulegt spor í réttlætisátt, í þá átt að virða það, að landið sé sameign þjóðarinnar, og sjá til þess, að það geti nýst til almannaheilla með sem allra bestum hætti.
Ég legg svo til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði frv. þessu til 1. um breytingu á orkulögum vísað til 2. umr. og hv. iðnn.