22.02.1982
Efri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2552 í B-deild Alþingistíðinda. (2184)

206. mál, orkulög

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég vil byrja á að taka það fram, að ég hef ekki hugsað mér að ræða þetta frv. núna efnislega. Þetta frv. varðar stórmál. Um það getum við öll verið sammála.

Hv. 2. þm. Reykn. talaði í þessu sambandi um að landið væri þjóðareign og ekki væri hægt að una því, að ekki væri hægt að virkja orkulindir landsins vegna eignarhalds á þeim. Fleira í þessa átt sagði hv. þm., og hann nefndi Alþfl. og jafnaðarstefnuna sérstaklega í þessu sambandi. Honum er að sjálfsögðu frjálst að gera það. En ég vil vekja athygli á því, að ég veit ekki til þess, að neinn ágreiningur sé um að landið allt sé þjóðareign né að ágreiningur sé um það, hvort leyfa eigi að eignarhald á orkulindunum stöðvi virkjunarframkvæmdir eða ekki. Ég held að það sé ekki neinn ágreiningur um slíkt og það eigi jafnt við um aðra flokka og Alþfl.

Ég minnist þess og ætla nú að koma að því, að í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar setti þáv. iðnrh., núv. hæstv. forsrh., sérstaka nefnd til þessa verkefnis. Ég minnist þess ekki, að í þau 12 ár sem Alþfl. átti aðild að ríkisstj., viðreisnarstjórninni, væri neitt gert í þessum efnum. Þetta segi ég ekki til þess að gera litið úr áhuga Alþfl. á þessu máli. Ég segi þetta til þess að undirstrika orð mín um það, að ég álít að þetta sé ekki frekar mál Alþfl. en annarra flokka.

Ég sagði áðan að ég ætlaði ekki nú að ræða þetta frv. efnislega. En mér þykir rétt að víkja nokkuð að formshlið þessara mála.

Hér er um að ræða frv. til l. um breytingar á orkulögum. Við höfum fyrr fjallað í þessari hv. deild um frv. til orkulaga. Þetta er annað þingið í röð sem það frv. er borið fram. Ég vek athygli á þessu. Það er frv. til heildarlaga, nýrra orkulaga. Hins vegar er í því frv., sem ég ásamt nokkrum samflokksmönnum mínum flyt nú í annað sinn, ekki að finna það efni sem er í þessu frv. Mér þykir nauðsynlegt og rétt að skýra hvernig á því stendur.

Ég sagði áðan að fyrrv. iðnrh., núv. hæstv. forsrh., hefði á sínum tíma skipað sérstaka nefnd til að semja frv. um það efni sem þetta frv. fjallar um, en frv. okkar félaga til nýrra orkulaga fjallar ekki um. Það frumvarp til nýrra orkulaga er byggt á starfi svokallaðrar skipulagsnefndar í orkumálum, annarrar nefndar sem hæstv. núv. forsrh. skipaði 1977 sem þáv. iðnrh. Ég var formaður þeirrar nefndar svo að mér er þetta mál mjög hugleikið. Það fyrsta, sem við athuguðum í þeirri nefnd, sem skipuð var 1977, var hvort við ættum að fjalla um jarðhitaréttindi eða ekki. Ákveðið var að sú nefnd fjallaði ekki um þau efni vegna þess að önnur nefnd væri starfandi í því máli. Sú nefnd var skipuð hinum færustu sérfræðingum lögfræðilega séð í þessum efnum. Formaður nefndarinnar var Ármann Snævarr hæstaréttardómari. Það var samhljóða álit þeirrar nefndar sem ég veitti forstöðu, að við skyldum ekki snúa okkur að þessu verkefni.

Með tilliti til þessa er gert ráð fyrir því í frv., sem ég ásamt félögum mínum úr Sjálfstfl. hef borið fram til orkulaga, að III. kafli orkulaganna, sem fjallar um vinnslu jarðhita og verndun jarðhitasvæða, standi áfram. Það var með það í huga, að beðið yrði eftir niðurstöðum umræddrar nefndar sem fjallar sérstaklega um þetta mál. Auk þess lítum við svo á í hinni svokölluðu skipulagsnefnd orkumála, að það færi betur á því að hafa sérlög um jarðhitaréttindi. En þetta frv., sem nú er á dagskrá, fjallar einmitt um þetta efni. Það efni er sérstaks eðlis og mjög þýðingarmikið í sjálfu sér. Það ætti ekki að vera í almennum orkulögum.

Þetta vildi ég að kæmi fram nú þegar við þessar umr. Það er gert ráð fyrir að frv. komi til iðnn., þar sem ég á sæti, og mun að sjálfsögðu verða athugað þar.

Mér þykir rétt á þessu stigi að gera fyrirspurn til hæstv. iðnrh. um það, hvort hann hafi eitthvað fram að færa núna um störf þeirrar nefndar sem hæstv. forsrh. tilnefndi á sínum tíma til þess að .fjalla um það efni sem þetta frv. fjallar um. Ég sagði að sú nefnd hefði verið skipuð færustu sérfræðingum, og ég tel að það sé ákaflega mikill fengur að vita hvort eitthvað liggur fyrir frá þeirri nefnd um þessi þýðingarmiklu mál og á hvaða stigi sú málsmeðferð er. Ég tel mjög þýðingarmikið að fá vitneskju um það, ef hæstv. iðnrh. getur veitt hana nú, því að allt slíkt þarf að hafa í huga þegar fjallað er um þetta frv. og það þýðingarmikla mál sem það fjallar um.