22.02.1982
Efri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2554 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)

206. mál, orkulög

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Ég hlýt að lýsa yfir stuðningi mínum efnislega við frv. það sem hér er um að ræða, enda hefur Alþb. staðið að flutningi svipaðra mála, eins og hv. þm. Kjartan Jóhannsson gerði grein fyrir áðan. Það er kunnugt, að einnig í ræðum annarra þingflokka á þetta mál efnislegan stuðning, og má e.t.v. svo að orði kveða, að það sé orðið tímabært að stjórnmálaflokkarnir sameinist um lagasetningu af því tagi sem fram kemur í frv. þeirra Alþfl.-manna. Það kynni að verða auðveldara að ná samkomulagi um lítils háttar áherslumun, sem kann að ríkja á milli flokkanna, en virðast mætti í fljótu bragði þegar mál af þessu tagi eru flutt flokkslega.

Ég hefði látið nægja að fjalla um þetta þingmál í iðnn., þar sem ég á sæti, ef hv. flm., Kjartan Jóhannsson, hefði ekki tengt þetta mál öðrum þingmálum, sem Alþfl. flytur þessu sinni, og þá fyrst og fremst máli því sem lýtur að eignarhaldi á landinu. Ég get tekið undir öll meginatriði í málflutningi hv. þm. Mér er ljóst að það er orðið enn þá brýnna en nokkru sinni fyrr að Alþingi fjalli um þau mál. Ég vil minna á það vegna ræðu hv. þm. Þorv. Garðars Kristjánssonar, að árið 1939 fjölluðu þrír þm., bændaleiðtogar, um þetta mál á hv. Alþingi. Þetta voru bændaleiðtogar, einn þeirra úr Framsfl. og tveir úr Sjálfstfl., og höfðu samið lagafrv. sem hljóðaði upp á ríkiseign á öllu landi, hverjum ferþumlungi í bæ og byggð. Nauðsynin, sem knúði þá til þessa undirbúningsstarfs, sem aldrei varð annað og meira, voru uppkaup auðmanna á bújörðum vegna hlunninda og erfiðleikar sem þá voru þegar komnir í ljós, þó að eigi væru þeir jafnhrikalegir og nú, í sambandi við kynslóðaskipti á bújörðum vegna þess að óeðlilegu verði var haldið uppi á þessum jörðum vegna hlunnindanna af hálfu þeirra sem höfðu bolmagn til að kaupa upp hlunnindi jarðanna.

Nú er ljóst að þetta vandamál, sem lýtur að kynslóðaskiptunum, að eignatilfærslunni, er orðið mjög svo erfitt og hættulegt á stórum landssvæðum. Í grennd við þéttbýlið og þá aðallega suðvestanlands er svo komið, að bóndasonur, sem vill setjast á jörðina eftir föður sinn, verður að keppa við auðmenn og fyrirtæki og starfsmannafélög, sem vilja kaupa upp landið undir sumarbústaði, um verð og kaup á þessu landi sem í langsamlega flestum tilfellum er hlutaðeigandi einstaklingi ofviða, þannig að í það siglir að bújarðirnar fari í eyði af þeim sökum. Þá er hitt enn ótalið, sem blasir við okkur, í sambandi við hlunnindauppkaupin. Þar er við hið sama að etja, að einstaklingarnir, sem sitja vilja jarðirnar, sem eignast vilja jarðirnar, eiga samkvæmt því kerfi, sem nú ríkir, þarna við ofnrefli að etja.

Frv., sem samið var 1939, var aldrei lagt fram. Því olli fyrst og fremst tvennt. Heimsstyrjöldin skall á og hróflaði við allri rökrænni hugsun og öllum framtíðaráætlunum varðandi búskaparnytjar, svo vel á þessu landi sem annars staðar, og þó var hitt e.t.v. eins þungt á metunum í sambandi við þetta vandamál þá, að einstakar valdamiklar fjölskyldur á Íslandi höfðu lagt í þetta, að kaupa upp bújarðir vegna hlunnindanna, og þótti að sér sveigt. Þar myndaðist pólitískur þröskuldur á Alþingi sem erfitt reyndist að stíga yfir, og þá ekki síst þegar þessar tvær ástæður spiluðu saman.

Af hálfu bændaleiðtoganna, sem þá vildu ráða fram úr þessum vandræðum, var fyrirhugað að í stað eignarréttar á landi til búskapar kæmi, ef svo má segja, járnbent erfðafesta, þannig að bændurnir, þeir sem nytja landið til búskapar, misstu einskis í nema réttarins til þess að selja bújörðina. Það yrði það eina sem þeir misstu.

Það er um skamman tíma upp að rifja, að nýlega hefur fallið hæstaréttardómur, sem varðar eignarhald á hálendinu, almenningum og afréttum, þar sem áður var talið að skýr og þinglesinn eignarréttur væri a.m.k. óljós. Hæstaréttardómurinn féll á þá lund í svokölluðu Landmannaafréttarmáli, að eignarréttur ríkisins á því landi þótti ekki sannaður og Hæstiréttur skildi þannig við málið að eignarréttur á þessu hálendissvæði er óljós. Ætla ég að þm. úr öllum flokkum, sem kappkosta vilja að sneitt verði hjá átökum í tómarúmi íslenskra laga, muni vera þeirrar hyggju, að nauðsynlegt sé að kveða á um það með lögum hver sé eigandi þessara hálendissvæða.

Samtímis þessu hefur það borist mér til eyrna frá valinkunnum sómamönnum í kjördæmi mínu á Norðurlandi eystra, að einnig vegna beitarréttarins sé orðin hin brýnasta nauðsyn að kveða á um eignarrétt og eignarhald á afréttum og uppi í hálendinu.

Hæstv. Alþingi hefur látið dragast allt of lengi úr hömlu að setja skýr og ótvíræð lög um eignarhald á landi sem væru í samræmi við nútímaþörf, væru til þess fallin að styrkja búsetu í sveitum landsins, auðvelda nýjum kynslóðum að taka við búskaparréttindum, koma í veg fyrir að burst sé dregin úr nefi bændastéttarinnar til frambúðar með annarlegum eignarréttarákvæðum.

Síðast en ekki síst er nauðsynlegt að kveða á um almannarétt til landsins og nytja þess. Löggjafinn hefur ekki sinnt því af neinni alvöru eða einbeitni frá síðustu aldamótum, frá því að búseturöskunin varð á landi hér, frá því að menn áttu gagnkvæman rétt til landsins vegna þess að ýmist voru menn landeigendur, Íslendingar, eða áhangendur landeigenda lögum samkvæmt, til þess tíma að mikill meiri hluti fólksins er orðinn landleysingjar, en samt Íslendingar sem eiga þó að nafninu til þetta land — þetta er landið þeirra, en standa síðan andspænis því, að löggjöfin er með þeim hætti, að þeim er þetta land síður en svo frjálst til umferðar eða til þess að njóta — ef við megum grípa til þess orðs — útivistargæða landsins og firrast landið æ meira af þeim sökum.

Ég ítreka það, að ég er efnislega fylgjandi frv. því sem hér um ræðir. Ég er efnislega og í aðalatriðum fylgjandi ummælum hv. þm. Kjartans Jóhannssonar og grundvallarstefnu þeirra Alþfl.-manna varðandi eignarhaldið á landinu. Ég tel að það sé meira en tímabært að þm. úr öllum flokkum taki sig til og komi sér saman um bráðnauðsynlegar ráðstafanir í þessum eignarréttarmálum á þá lund, að við treystum en veikjum ekki raunverulega stöðu þess fólks sem lifir af landsins gæðum, — treystum stöðu þessa fólks með því að firra það hættunni á að þurfa að keppa við annarlega aðila um yfirráðarétt á landinu og koma því til leiðar, að löggjafinn standi a. m. k. ekki í vegi fyrir að fólkið, góðir Íslendingar, ef við leyfum okkur að nota gamla ívitnun í ágæta íslenska bók sem nýlega hefur verið kvikmynduð, — að góðir Íslendingar megi finna fyrir því, finna það í rétti sínum að þeim sé ætlað olnbogarými á Íslandi þrátt fyrir eignarréttarákvæði.