23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2583 í B-deild Alþingistíðinda. (2200)
181. mál, íþróttaþættir sjónvarpsins
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég skal svara þessum fyrirspurnum eins og þær liggja fyrir. Fyrsta spurningin er svona: „Hve lengi var erlent efni
sýnt í íþróttaþáttum sjónvarpsins á árunum 1980 og 1981?“ Önnur spurningin er: „Hve lengi var innlent efni sýnt í íþróttaþáttum sjónvarpsins á árunum 1980 og 1981?“
Ég hef að sjálfsögðu leitað til Ríkisútvarpsins um aðstoð við að svara þessu og þau svör, sem hér verða gefin, eru byggð á þeim upplýsingum sem ég hef í bréfi frá fjármáladeild Ríkisútvarpsins, dagsettu 19. febr. 1982. Svar við fyrstu og annarri spurningu er þetta:
Sýningartími á erlendu efni árið 1980 var 8397 mín., þar af frá vetrar- og sumarólympíuleikum 3573 mín. eða 42.6% af öllu erlendu efni. Íslenskt íþróttaefni var sent út í 3483 mín. árið 1980. Árið 1981 var erlent íþróttaefni sent út í 5686 mín., þar af 2342 mín. frá ensku knattspyrnunni sem er sérstakur dagskrárliður. Íslenskt íþróttaefni var sent út í 3514 mín.
Síðan kemur þriðja spurning sem þannig hljóðar: „Hve mikið var greitt fyrir þetta efni, annars vegar erlent, hins vegar innlent?“
Svarið er: Árið 1980 voru greiddar 291 119 kr. fyrir erlent efni, eða 34.65 kr. fyrir útsenda mínútu. Kostnaður við innient íþróttaefni, utan upptökukostnaðar og vinnslu, árið 1980 var 208 062 kr. eða 58.80 kr. á útsenda mínútu. Upptöku- og vinnslukostnaður o.fl. á innlendu íþróttaefni nemur öllu hærri upphæð en réttindagreiðslur.
Árið 1981 voru greiddar 288 764 kr. fyrir erlent íþróttaefni, en 445 105 kr. fyrir innient og eru það beinar greiðslur til sérsambanda. Upptöku- og vinnslukostnaður, sem er innifalinn í greiðslum fyrir erlent efni, er ekki talinn með í greiðslu fyrir innient efni.
Fjórða spurningin hljóðar þannig: „Hvernig skiptist greiðsla fyrir innient efni milll einstakra íþróttagreina hvort ár um sig?“
Svarið er: Beinar greiðslur til einstakra sérsambanda og félaga hafa verið sem hér segir. Knattspyrnusamband Íslands: 1980 ekkert, 1981
119 500 kr., Handknattleikssamband Íslands: 1980 25 500 kr., 1981 75 500., Körfuknattleikssamband Íslands: 1980 20 710 kr., 1981 66 615 kr., Handknattleiksráð Reykjavíkur: 1980 24 304 kr., 1981 27 000 kr.,
Frjálsíþróttasamband Íslands: 1980 ekkert, 1981 8000 kr., Lyftingasamband Íslands: 1980 2230 kr., 1981 500 kr., Íþróttafélag fatlaðra: 1980 ekkert, 1981 1500 kr., Knattspyrnufélagið Þróttur: 1980 ekkert, 1981 1000 kr., Knattspyrnufélagið Víkingur: 1980 ekkert, 1981 13 750 kr., Glímufélagið Ármann: 1980 210 kr., 1981 500 kr.
Síðan kemur Íþróttasamband Íslands og allmargar aðrar greinar og þar er aðeins gefin upp upphæð fyrir árið 1980 því að ekkert hefur verið greitt fyrirárið 1981 til þeirrar starfsemi sem ég les hér á eftir:
Íþróttasamband Íslands 8860 kr., Glímusamband Íslands 800, Blaksamband Íslands 1000 kr., Golfsamband Íslands 500 kr., Sundsamband Íslands 1080 kr., Badmintonsamband Íslands 1280 kr., Fimleikasamband Íslands 3000 kr., Borðtennissamband Íslands 600 kr., Landssamband hestamanna 1790 kr., Júdósamband Íslands 650 kr., Knattspyrnufélagið Valur 10 250 kr.
Fyrir árið 1980 er þá samtals greitt 102 564 kr., en 1981 er þetta samtals 313 865 kr.
Ég skal láta hv. fyrirspyrjanda hafa afrit af þessu bréfi, sem ég hef hér í fórum mínum, ef hann æskir.
Þetta eru sem sagt þær upplýsingar sem ég hef fengið hjá útvarpinu, og held ég að óhætt sé að segja að þarna séu raktar þær fsp., sem fyrir liggja, og svörin afdráttarlaus eins og þau liggja fyrir.