23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2584 í B-deild Alþingistíðinda. (2201)
181. mál, íþróttaþættir sjónvarpsins
Fyrirspyrjandi (Guðmundur G. Þórarinsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir þessi svör. Hann hefur lesið fyrir okkur upp nokkuð mikið af tölum sem ég hef verið að reyna að skrifa hjá mér, en það þarf auðvitað að skoða þær betur til þess að geta fjallað um þær.
Það vekur hins vegar nokkra athygli í sambandi við þessar tölur, að ÍSÍ hefur enga greiðslu fengið fyrir sjónvarpsefni á árinu 1981, en þó dálitla árið 1980. Ég heyrði reyndar dálítið illa til hæstv. menntmrh. vegna þess kliðs sem hér var í salnum og stöðugs umgangs um dyr, en ég tók ekki eftir að hann gæfi neina skýringu á því, hvernig á þessu stendur. Ég vil þess vegna alveg sérstaklega brýna það fyrir menntmrh. sem yfirmanni Ríkisútvarpsins að hann sjái til þess, að Ríkisútvarpið uppfylli þau ákvæði rammasamningsins frá 22. jan. 1981 að gerður skuli sérsamningur við hvert sérsamband. Það hlýtur öllum að vera ljóst að slíkt er ákaflega mikilvægt fyrir íþróttafélögin og íþróttasamböndin. Þau eru í erfiðri stöðu, annars vegar að reyna að knýja á að fá sitt efni inn í íþróttaþættina til að kynna sína starfsemi, sína íþrótt og hins vegar að krefjast einhverrar greiðslu fyrir til þess að geta styrkt þá starfsemi sem þau standa fyrir.
Í 5. gr. rammasamningsins segir, með leyfi forseta: „Ríkisútvarpið skal greiða hverju sérsambandi fyrir flutningsréttinn skv. 2. gr. gjald, sem skal vera föst fjárhæð fyrir hvern hellan leik eða mót sem flutt er frá, án tillits til tímalengdar flutningsins, sbr. þó ákvæði 3. gr.“ Og síðan segir: „Skal hvert sérsamband semja sérstaklega við Ríkisútvarpið fyrir hver áramót um fjárhæð gjalds þessa á næsta ári, bæði fyrir flutning í útvarpi og sjónvarpi.“ Það virðist augljóst að þessi ákvæði hafa ekki verið uppfyllt. Og einhvern veginn slær það mig að það muni meira vera af áhugaleysi Ríkisútvarpsins heldur en sérsambandanna. Jafnframt segir í lok þessarar greinar: „Í lok hvers ársfjórðungs skal Ríkisútvarpið taka saman yfirlit um gjaldskyldan flutning hjá hverju sérsambandi.“ Ljóst virðist vera að af einhverjum ástæðum hafa þessi ákvæði rammasamningsins ekki verið uppfyllt. Það er ákaflega brýnt að gerður sé sérsamningur við hvert sérsamband.
Ég vil ljúka máli mínu hér með því að hvetja hæstv. menntmrh. sem yfirmann Ríkisútvarpsins til þess að hafa frumkvæði að því, að þessi rammasamningur sé uppfylltur og slíkir samningar verði frágengnir og undirritaðir.