23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2585 í B-deild Alþingistíðinda. (2203)
181. mál, íþróttaþættir sjónvarpsins
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Hér er auðsjáanlega hið merkasta auglýsingamál í uppsiglingu. Hv. 12. þm. Reykv., þm. Framsfl., spyr flokksbróður sinn, hæstv. menntmrh., framsóknarmanninn, um mál og skorar á hann að uppfylla samning sem ein af helstu stofnununum, sem falla undir hans rn., hefur gert. En hæstv. ráðh. upplýsir að hann hafi ekki séð samninginn og sér sé ekki kunnugt um að rn. hafi fengið til umsagnar umræddan samning. Samt skorar hv. flokksbróðir hans á hann að beita sér nú fljótt og vel fyrir því, að þessi samningur verði uppfylltur. Má ég sem óbreyttur dáti hér á hv. þingi, herra forseti, biðja um að við þm. fáum þennan samning í hendur svo að við fáum að skoða hann líka, en þetta verði ekki einkamál Framsfl.