23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2585 í B-deild Alþingistíðinda. (2204)

181. mál, íþróttaþættir sjónvarpsins

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Það er svo sem óhætt að taka undir það, að þetta mál er kannske dálítið óvenjulegt hér, eins og síðasti hv. ræðumaður sagði. Ég get tekið undir það. Enn skrýtnara þykir mér þegar hæstv. ráðherrar koma hér í ræðustól og lesa upp langa talnalestra sem engin leið er fyrir þm. að átta sig á samtímis því sem lesið er. Auðvitað er fsp. af þessu tagi dæmigerð fsp. þar sem menn ættu að óska skriflegs svars og þar sem í rauninni ætti ekki að vera þörf á umr. En það, sem varð þess valdandi að ég kvaddi mér hl jóðs, var að vikið var að því að Ríkisútvarpið uppfyllti ekki skyldu sína í sambandi við samninga.

Ég held að nauðsynlegt sé að það komi fram í þessum umr., að hjá Ríkisútvarpinu starfar ekki lögfræðingur. Ríkisútvarpið hefur haft á sínum snærum í einhvers konar aukastörfum lögfræðinga, en það starfar enginn lögfræðingur hjá þeirri stofnun sem hefur þó svo umfangsmikla erlenda og innienda samningagerð, bæði við flytjendur, höfunda og raunar ýmsa fleiri, að þar er fullt starf fyrir einn mann og kannske fleiri. Sé einhvers staðar pottur brotinn í því að samningar hafi ekki verið uppfylltir svo sem vera skal, þá hygg ég að það eigi fyrst og fremst rætur sínar að rekja til þess skilningsleysis sem þessi stofnun á jafnan að mæta hjá stjórnvöldum og að ekki er eins vel að henni búið fjárhagslega og æskilegt væri.

Það er fyrir löngu orðið brýnt að hjá Ríkisútvarpinu starfi sérstakur lögfræðingur sem annist samningagerð. Ýmsir starfsmenn, deildarstjórar og framkvæmdastjórar, annast þetta í hjáverkum og hafa ekki lögfræðimenntun til að bera. A.m.k. held ég að svo sé ekki. Ég hygg að þetta kunni að vera skýringin á þeim ákúrum sem fara hér milli flokksbræðranna hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar og hæstv. menntmrh.