23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2597 í B-deild Alþingistíðinda. (2223)
355. mál, réttarstaða fólks í óvígðri sambúð
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Hv. þm., sem hér var að ljúka máli sínu, hafði að sjálfsögðu fjögur árin sem Sjálfstfl. átti aðild að ríkisstjórn með Framsfl. sama tækifæri til að vinna að þessu og ég. Hins vegar held ég að ég megi fullurða að til sjómannasamtakanna hér á landi hafi ekki komið vitneskja um að það væri búið að samþykkja þetta af íslenskum yfirvöldum fyrr en nokkru eftir 1974, og alla vega var ekki farið að hreyfa þessu innan sjómannasamtakanna fyrr en á árunum 1975 —1976. Inn á Alþingi kom þetta ekki fyrr en löngu síðar.
Hvað um það, þetta finnst mér aukaatriði, óþarft að kýta um það sem liðið er. Mér finnst aðalatriðið að menn taki höndum saman um að hrinda því í framkvæmd að SOLAS- 1974 komist til þeirra aðila, sem við þá samþykkt eiga að búa, og henni verði komið í gagnið fyrir þá.