23.02.1982
Sameinað þing: 56. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2600 í B-deild Alþingistíðinda. (2228)

186. mál, endurskoðun geðheilbrigðismála

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Vegna orða hæstv. félmrh. vil ég taka skýrt fram að ég tel það miklu meira virði, að þessi nefnd gefi sér góðan tíma til að vinna að þessum störfum, skili umtalsverðum árangri og skýrslu og greinargerð um aðgerðir sem verður unnt að hrinda í framkvæmd, heldur en hún hraði svo störfum sínum að frá henni komi einhverjar skýrslur eða niðurstöður sem erfitt yrði að vinna eftir. Það gera sér allir ljóst að hér er á ferðinni afskaplega flókið og viðamikið mál og ágreiningur er um ýmsa meðferðarþætti og þá ekkert síður meðal leikmanna en sérfræðinga. Kannske er meiri ágreiningur meðal sérfræðinga um það, hvernig beri að starfa að þessu máli.

Ég vil eingöngu segja að það væri mjög æskilegt hins vegar ef væri unnt og ráðh. sæi sér fært að ýta á eftir einum sérstökum þætti þessa máls, en það er aðstoð við ósakhæfa afbrotamenn. Það er sá þáttur sem er í hvað mestum lamasessi hér á landi, og verður að fara að gera gangskör að leysa úr þeim málum hið fyrsta.

Ég ætla ekki að bæta spurningum í spurningabunka ráðh., en vil eingöngu segja að ég vænti þess, að hann leggi höfuðáherslu á þennan þátt, sem ég nefndi áðan, þjónustuna við ósakhæfa afbrotamenn, og gæti þess vandlega, að þetta mál fái fyllstu og bestu meðferð sem það getur fengið. Þá er það ekki sáluhjálparatriði fyrir einn eða neinn hvort þetta tekur einum mánuði eða tveimur mánuðum lengri tíma en ella.