23.02.1982
Neðri deild: 44. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2608 í B-deild Alþingistíðinda. (2234)

205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Einu sinni áður höfum við þurft á því að halda nú á síðustu vikum að afgreiða frv. frá hæstv. ríkisstj. í tengslum við aðgerðir hennar í efnahagsmálum. Það var frv. um nokkra lækkun á tollum á tilteknum rafmagnstækjum sem þurfti að afgreiða á tímabilinu frá 3. febr. til 5. febr. Málið varð að verða að lögum fyrir 5: febr. því ella fóru vísitöluáhrif þeirrar aðgerðar forgörðum svo að Alþingi varð að afgreiða málið með miklum hraða.

Þetta er annað mál sem kemur til kasta hv. Alþingis frá ríkisstj. og þá þarf enn að hafa sérstakan hraða á, að þessu sinni ekki vegna vísitöludagsetningar, heldur vegna þess að hæstv. fjmrh. liggur lífið á að komast til útlanda. Einmitt þess vegna þurfum við nú að afgreiða málið með afbrigðum og keyra málið í gegn svo það hljóti afgreiðslu á þingi í þessari viku, þar eð hæstv. fjmrh. verður ekki á Alþingi í næstu viku, heldur að sinna störfum í útlöndum. Ekki er nú virðingin fyrir starfsemi Alþingis meiri hjá þessum herramönnum sem þó stofnuðu núv. ríkisstj. — að því er þeir sögðu sjálfir — vegna ofurástar á virðingu og heiðri þessarar stofnunar.

Það er eins og áður að við fáum engin frekari svör um hvað ríkisstj. hyggst fyrir í efnahagsmálum. Þaðan kemur ekkert annað en þau tvö mál sem við höfum hér fjallað um og varða bæði þá gamalkunnu aðferð að greiða niður vísitöluna. Í fyrra var eina aðgerð ríkisstj. í efnahagsmálum fólgin í því að fresta greiðslum á 7 stigum vísitölu, því sem launafólk átti áð fá 1. mars á því ári til að bæta því upp verðhækkanir sem orðið höfðu í nóvember- og desembermánuði árið áður og í janúarmánuði á því ári, Síðan er liðið eitt ár. Þá kemur hæstv. ríkisstj. með efnahagsaðgerð nr. tvö. Hún er ekki fólgin í því að fresta greiðslu vísitölustiga hinn 1. mars, heldur að greiða niður nokkur vísitölustig, sem launþegar hefðu átt að fá til þess að bæta sér upp verðhækkanir sem þeir hafa nú þegar borið bótalaust í nóvember- og desembermánuði á s.l. ári og í janúarmánuði á þessu ári. Annað felst ekki í þessum aðgerðum. Og margt af því, sem boðað var í þeim vísitöluleik, hefur enn ekki fengist frá hæstv. ríkisstj. Nokkur hluti af kostnaðinum vegna niðurgreiðslu vísitölunnar er þannig að sögn ríkisstj. fólginn í niðurskurði og sparnaði í opinberum rekstri. Þrátt fyrir ráðstafana í efnahagsmálum. 2610 ítrekaðar fyrirspurnir hefur hins vegar ekkert fengist frá hæstv. ríkisstj. um hvernig þeim niðurskurði eigi að beita, hvaða framkvæmdum á að fresta, ef fresti á að veita, hvaða sparnað á að framkvæma, hvaða samdráttur er fyrirhugaður. Engin svör hafa við því fengist. Menn verða að láta sér nægja að horfa aðeins á þau tvö takmörkuðu þingmál sem þegar hafa komið fram, og hvorugt þeirra veitir nein svör við þessum spurningum, hvað þá að þau svari öðru af því sem fram hefur komið hjá hæstv. ríkisstj. um hvað hún hugsi sér að gera í íslenskum efnahagsmálum. Það er því næsta takmarkað sem hægt er að ræða um stefnu ríkisstj. út frá þeim gögnum sem hæstv. ríkisstj. hefur lagt fyrir Alþingi. Hún er að tína þetta upp úr sínum 10 pokum, og kemur innan við eitt mál fram frá hæstv. ríkisstj. á viku. Virðist ganga mun erfiðar að koma þessum málum í gegnum hina 10 manna ríkisstj. heldur en það gengur að koma þessum sömu málum í gegnum þrjár umferðir í hvorri deild Alþingis, þar sem sitja þó 60 þm. Hin 10 manna ríkisstj. vinnur því mun hægar að sínum málum en þó þessi stofnun sem sex sinnum fleiri menn skipa.

Meginatriðið í þeim breytingum, sem hafa orðið og eru að verða fyrir tilstuðlan hæstv. fjmrh., er að tollar á nokkrum tegundum heimilistækja hafa verið lækkaðir um 22 millj. kr. samtals. Þetta var gert fyrir 5. febr., eins og ég sagði áðan, og varð að hafa náðst fyrir 5. febr. til þess að þessi aðgerð gæti skilað þeim eftirsótta árangri að lækka nokkuð þær verðlagsbætur, sem launþegar áttu að fá 1. mars til þess að bæta upp verðhækkanir í nóvember og desember á fyrra ári og í janúar á þessu ári.

Nú er þessi dagsetning liðin og aðgerðir hæstv. ríkisstj. í tollamálum munu ekki koma fram í vísitölu fyrr en 1. maí n.k. Þegar svo er komið grípur hæstv. ríkisstj. til þess ráðs að hækka tolla um meira en tvöfalda þá upphæð sem hæstv. ríkisstj. lækkaði tolla á fyrir 5. febr. s.l. Nú er verið að hækka tolla um 54 millj. með álagningu hins svokallaða tollafgreiðslugjalds, en tollalækkunin á nokkrum tegundum rafknúinna heimilistækja nam um það bil 22 millj. kr. 5. febr. s.l. eða innan við helmingi af þeirri upphæð sem verið er að hækka tollana um núna. Vegna þess, hvenær þessar dagsetningar eru valdar, önnur aðgerðin er framkvæmd fyrir 5. febr. og hin ekki fyrr en eftir 5. febr., verður árangurinn sá, að þegar að því kemur að greiða fólki laun í landinu 1. mars n. k. mun sú launahækkun, sem fólk á að fá vegna verðhækkana sem þegar hafa orðið, verða 0.2–0.3% minni en ella. Og fólk getur ekki átt von á því að fá bætur fyrir þær tollahækkanir, sem hér eru ráðgerðar, fyrr en í fyrsta lagi 1. júní n.k. M.ö.o.: vegna þess hvernig dagsetningarnar eru valdar verður fólk nú þegar að taka á sig launalækkun vegna 22 millj. kr. lækkunar á tollum heimilistækja, en mun í fyrsta lagi 1. júní n. k. geta átt von á einhverri launahækkun til að bera uppi almennar verðlagshækkanir sökum 54 millj. kr. tollahækkunar sem nú á að eiga sér stað.

Þá er einnig þess að geta, að menn þurfa að skoða áhrif þessara tveggja breytinga á vísitöluna, sem á að mæla launþegum í landinu launahækkanir til þess að bæta fólki upp verðhækkanir sem orðið hafa. Nú skyldu menn ætla að það ætti ekki að skipta miklu máli hvaða heiti tollaaðgerðunum væri gefið. Ef tollur væri lækkaður um 22 millj. kr. og hækkaður aftur um sömu upphæð, þá ættu launþegar að standa nokkuð jafnréttir eftir, þá hefðu engar breytingar verið gerðar sem hefðu áhrif á afkomu þeirra. En það er ekki aðeins að hæstv. ríkisstj. hafi valið dagsetningarnar þannig, að tollalækkunin verkar tafarlaust til kauplækkunar, en tollahækkunin mun engin áhrif hafa á kaupgjald í landinu fyrr en 1. júní n.k., það eru ekki aðeins dagsetningarnar sem hafa verið þannig valdar, heldur hafa vörurnar, sem annars vegar tollalækkunin og hins vegar tollahækkunin eru lagðar á, verið þannig valdar að tollalækkun upp á 22 millj. kr. og tollahækkun upp á 54 millj. kr. standast ekki á. Vísitalan mælir að fólk hafi fengið meiri kjarabætur af 22 millj. kr. tollalækkun en nema á væntanlegri kjararýrnun sem fólk á að verða fyrir vegna 54 millj. kr. tollahækkunar. Það þarf að leggja ofan á þessa 54 millj. kr. tollahækkun einnig áhrif sérstaks tímabundins innflutningsgjalds á sælgæti og kex, sem nemur um 8 millj. kr., til þess að vísitöluáhrifin af þessum aðgerðum standist á. M.ö.o.: aðgerðirnar eru valdar þannig saman, að tollalækkunin um 22 millj. kr. skilar kauplækkun upp á rúmlega 0.2% og samanlögð tollahækkun upp á 54 mill j. kr. og áhrif af sérstöku gjaldi á sælgæti og kex upp á 8 millj. kr., eða skattahækkun upp á 62 millj. kr., skila sama árangri í vísitölumálum. M.ö.o.: Þetta er valið þannig saman að ríkissjóður geti með hækkaðri skattheimtu sótt sér 40 millj. kr. nýjar tekjur án þess að það komi nokkurs staðar fram í mælingu hinnar opinberu vísitölu á lífskjörin í landinu. Það er sem sé leikinn sá leikurinn í fyrsta lagi að velja dagsetningar aðgerðanna þannig, að þó að ekki liði nema um það bil 20 dagar á milli tollalækkunar og tollahækkunar merki tollalækkunin tafarlausa kaupskerðingu, en tollahækkunin mun ekki koma fram í verðlagsmælingum og til hækkunar á kaupgjaldi fyrr en eftir næstum 4 mánuði. Þetta er annar þáttur aðgerðanna.

Hinn þáttur aðgerðanna er að velja vörutegundir, sem tollarnir eru lækkaðir á annars vegar og hækkaðir á hins vegar, þannig að skattalækkun, sem nemur 22 millj. kr., og skattahækkun, sem nemur 62 millj. kr., eyðast út í vísitölumælingum á lífskjör í landinu. Það er m.ö.o. látið líta svo út að fólk standi jafnrétt eftir þegar búið er að hækka tolla og skatta á því um 62 millj. kr. og það stendur þegar búið er að hækka tolla og skatta á því um 62 millj. kr og það stendur þegar búið er að lækka sambærilega skatta um 22 millj. Það er verið að búa til tekjur fyrir ríkissjóð upp á 4 milljarða gkr. án þess að vísitölumælingarnar segi að þær tekjur séu frá nokkrum teknar. Með þessum hætti hefur hæstv. ráðh: búið til nokkurs konar eilífðarvél sem hingað til hefur ekki verið hægt að finna upp. Hæstv. ráðh. hefur búið til slíka eilífðarvél með þessum aðgerðum sínum að hann getur leikið sér að því að búa til nýjar tekjur fyrir ríkissjóð, sem að sjálfsögðu koma frá borgurum þessa lands í formi hærri skatta, án þess að opinberar mælingar á lífskjörum mæli að um hafi orðið að ræða nokkra minnstu lífskjaraskerðingu hjá því fólki sem hina hækkuðu skatta borgar.

Þetta, herra forseti, kallar Alþb. auk þess að skipta á sléttu, vegna þess að vísitölugrundvöllurinn er orðinn svo rangur að það er hægt að leika þann ljóta leik að hækka skatta á almenningi um 62 millj. kr., lækka skatta um 22 millj. á sama fólki og vísitalan mælir enga breytingu. Þá segir Alþb. við verkalýðshreyfinguna: „Nú höfum við skipt á sléttu.“ „Við höfum ekkert gert,“ segir Alþb., „ til að rýra kjör eða kaupmátt launa. Við höfum tekið svolítið af ykkur með einum hættinum, en við höfum bara borgað ykkur það til baka með öðrum hætti.

Og vísitölumælingin, sem á að segja til um hvort þið hafið orðið fyrir nokkurri kjaraskerðingu, reynist vera núll.“ Hún segir: „Við höfum skipt á sléttu. Þið hafið látið okkur fá 62 millj., við höfum látið ykkur fá 22 millj., og þið hafið ekki orðið fyrir neinni kjaraskerðingu.“

Svona, herra forseti, segir Alþb. að eigi að standa vörð um launakjörin í landinu. Verkalýðshreyfingin á að sjálfsögðu ekki að kvarta yfir því að hafa látið taka af sér 62 millj., en fá ekki nema 22 millj. á móti, vegna þess að þetta er að skipta á sléttu. Svona skipta menn á sléttu. Svona stjórna menn íslenskum efnahagsmálum án þess að nokkur finni fyrir því. Svona auka menn tekjur íslenska ríkisins án þess að nokkur finnist sem þarf að borga, vegna þess að mælingin segir okkur að það hafi enginn greitt þessar auknu tekjur sem verið er að fá inn í ríkissjóð. Þessir 4 mill jarðar gkr., sem þannig eru fengnir, eru búnir til úr engu. Þetta er annar þáttur þeirra aðgerða sem hér eru á ferðinni.

Auðvitað hefði hæstv. ríkisstj. getað tekið þessa auknu skattheimtu með einhverjum öðrum aðgerðum en hún leggur til með þessu tollafgreiðslugjaldi. Mér er nær að halda að sérfræðilegir ráðunautar hæstv. fjmrh. í fjmrn. hafi einfaldlega ráðlagt þá leið, fyrst hann þurfti á frekari tekjum að halda, að nota einhverja af þeim gömlu tekjustofnum sem hann hefur yfir að ráða, að hækka t.d. vörugjald, söluskatt eða beinu skattana. En hæstv. ráðh. vildi það að sjálfsögðu ekki. Hann vildi finna eitthvert nýtt gjald, einhvern nýjan „skítaskatt“, ef nefna mætti það orð í þessum virðulegu salarkynnum, einhverja nýja aðferð til skattlagningar sem gæti tryggt honum að hann gæti sagt við flokksbróður sinn, Ásmund Stefánsson, að hér væri um að ræða slétt skipti á 22 og 62 millj. kr. Og það fann hæstv, hæstv. fjmrh. með því að búa til nýjan skatt á innfluttar vörur sem kallast tollafgreiðslugjald.

Þessi nýi skattur á innfluttar vörur, þetta tollafgreiðslugjald hæstv. ráðh., svífur svo í lausu lofti að hvorki hann sjálfur né starfsmenn hans í fjmrn. geta nokkuð um það fullyrt, hvernig þessu gjaldi verður beitt í raun. Hæstv. fjmrh. fær það sem fjármálaráðherrar yfirleitt hafa ekki fengið. Hann fær hjá Alþingi heimild til að leggja þennan skatt á og fella hann niður að eigin geðþótta með reglugerð. M.ö.o.: það er mjög vafasamt að þetta ákvæði, þetta valdaafsal Alþingis samrýmist þeim ákvæðum íslenskrar stjórnarskrár, að skatta megi aðeins leggja á og afnema með lögum. Fjmrn.-menn með hæstv. fjmrh. í fararbroddi vita svo lítið um það, hvernig þeir ætla að beita þessu gjaldi, að þeir biðja Alþingi um að heimila ráðh. að fá sjálfdæmi um það, hvernig þetta verður lagt á og hvernig það verður fellt niður.

Ég vil aðeins vekja athygli hv. alþm. á því, að það er ekki aðeins að það séu blessunarlega ýmsar vörur sem fluttar eru til landsins án þess að greiddur sé af þeim tollur, þ. á m. ýmsar vörur sem eru fyrir sérstaka hópa í okkar samfélagi sem Alþingi hefur viljað liðsinna, með þeim hætti að fella niður tolla af vörum til þeirra, heldur afgreiðir Alþingi sjálft jafnan í hverjum fjárlögum heimildir til ríkisstj. til að fella niður m.a. aðflutningsgjöld af ýmsum vélum og tækjum til sérþarfa, sérstaklega þó til alls konar neyðarþjónustu í landinu, af tækjum eins og sjúkrabifreiðum, snjóbílum, snjótroðurum og öðrum slíkum hjálpartækjum. Eins og frá tollafgreiðslugjaldinu er gengið í l. kafla þessa frv. er Alþingi að veita fjmrh. heimild til þess að leggja þennan toll — því þetta er tollur þó það heiti tollafgreiðslugjald — m.a. á vörur sem Alþingi hefur sjálft gefið ráðh. fyrirmæli um að fella niður öll aðflutningsgjöld af. Alþingi er með þessari afgreiðslu að selja hæstv. fjmrh. sjálfdæmi í þessu máli. Honum er heimilað að leggja þennan toll á vörur sem Alþingi sjálft hefur gefið honum fyrirmæli um að fella aðflutningsgjöld af. Ég vil af þessu tilefni sérstaklega spyrja hæstv. fjmrh. hvernig hann hyggist haga framkvæmdinni varðandi þessa málaflokka sérstaklega. En hæstv. fjmrh. er ekki í salnum. Ég held að hann sé í landinu enn þá. Ég vil þess vegna biðja hæstv. forseta að gera tilraun til þess að fá hæstv. fjmrh. til þingsins. (Forseti: Já, svipist um eftir fjmrh. fyrir mig.)

Herra forseti. Ég kem þá með fsp. sem ég ætlaði að beina til hæstv. fjmrh. Í I. kafla þessa frv. er gert, eins og ég sagði áðan, ráð fyrir að hæstv. fjmrh. geti með reglugerð ákveðið ýmist að innheimta umrætt tollafgreiðslugjald eða fella það af ákveðnum vörum og vöruflokkum. Nú eru fjölmargar vörur sem ekki ber að greiða tolla eða önnur aðflutningsgjöld af, en samkvæmt þeirri afgreiðslu, sem hér á að hafa, er Alþingi að selja hæstv. fjmrh. sjálfdæmi í því máli, hvort hann hyggst leggja á og innheimta þetta sérstaka tollgjald af þeim vörum sem annars eru tollfrjálsar. En látum það nú vera. Það er kannske ekki ástæða til þess að gera það sérstaklega að umræðuefni. Það, sem ég vildi spyrja hæstv. fjmrh. um, er einfaldlega hvort hann geti eitthvað um það sagt og vilji eitthvað um það segja, hvernig hann muni beita þeirri reglugerðarheimild sem hann fær gagnvart þeim vörum sem Alþingi leggur fyrir hæstv. ráðh. að fella niður aðflutningsgjöld af í 3. gr. fjárlaga sem afgreidd eru hér á hverju ári. Þar eru taldir upp, eins og hæstv. fjmrh. veit, fjöldamargir vöruflokkar og einstök tæki, aðallega í sambandi við hvers konar hjálpar- og neyðarþjónustu i landinu, hvers konar vélar og tæki sem lagt er raunverulega fyrir fjmrh. að fella niður aðflutningsgjöld af. Það má skilja það svo, eins og hann leggur til að tollafgreiðslugjaldið sé ákveðið, að hann fái heimild þrátt fyrir það til þess að leggja á og innheimta tollafgreiðslugjald af þeim vörum. Ég vildi gjarnan fá yfirlýsingu frá hæstv. fjmrh. um að það standi ekki til að innheimta þetta tollafgreiðslugjald af þeim vörum sem Alþingi hefur lagt fyrir hæstv. ráðh. að fella aðflutningsgjöld af við afgreiðslu fjárlaga.

Herra forseti. Talsmaður meiri hl. fjh.- og viðskn. hefur að öðru leyti gert grein fyrir afstöðu okkar í meiri hl. þeirrar nefndar til einstakra greina frv. Í viðbót við það, sem hann sagði, vil ég aðeins leyfa mér að benda á annað meginatriði í þessum ráðstöfunum ríkisstj. Ég hef þegar rætt um fyrra meginatriðið í ráðstöfunum hennar, sem lýtur að því að velja tímann til annars vegar tollalækkana og hins vegar tollahækkana, og hins vegar vöruflokkana sem ráðstöfununum er beint að þannig að áhrifin til tjóns fyrir launafólk í landinu verði sem mest. Það er annar tilgangurinn með þessum ráðstöfunum, að tjónið, sem launþegar verða fyrir af þeirra völdum, verði sem allra mest, að ráðstafanirnar hafi sem mest áhrif til að lækka kaupgjald í landinu. Það er annar þáttur ráðstafananna.

Hinn meginþáttur ráðstafananna er sá, að í þeim samvirku aðgerðum skattahækkana og skattalækkana, sem verið er að gera, eru skattstofnar valdir þannig að skattarnir eru hækkaðir á fólkinu sjálfu með hækkun á aðflutningsgjöldum og með því að taka upp sérstakt tollafgreiðslugjald sem leggst á venjulegar neysluvörur allra íslenskra launþega. Það ráðrúm, sem þannig fæst, er síðan notað til að lækka að nokkru skatta á atvinnufyrirtækjum. Þetta er hinn meginþáttur ráðstafana hæstv. ríkisstj., að haga sínum afskiptum af skattamálum þannig að hækka að mínu viti allverulega skatta á venjulegu launafólki í landinu til þess m.a. að geta nokkuð lækkað skattlagningu á atvinnurekstri. Ég verð að segja eins og er, að allnokkur er nú orðin endurhæfingin á Alþb. í hæstv. ríkisstj., að fjmrh. þess skuli haga aðgerðum sínum þannig í skattamálum annars vegar, að það verði til eins mikils tjóns fyrir launafólk og framast er kostur, og hins vegar, að skattalækkanirnar skuli verða á atvinnurekstrarsköttunum en skattahækkanirnar á skattheimtunni hjá láglaunafólkinu.

Þáttur framsóknarþingmannsins hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar er svo kapítuli alveg út af fyrir sig. Það er svo mikill framsóknarsvipur af hans afskiptum af þessu máli, að það ætti, herra forseti, að gefa þingflokki Framsfl. bæði ræðu hans og tillögu í málinu sem sérstakt innrammað þskj., helst áritað af þingflokknum öllum. Ég hef áður vakið athygli á því, að hv. þm. er einn af þeim þm. Framsfl. sem leikur jafnan þann leik þegar til umr. eru efnahagsaðgerðir ríkisstj. hér á Alþingi og ljóst er að ekki stendur til að samþykkja neinar till. frá Framsfl. um slíkar aðgerðir, m.a. vegna þess að þm. flokksins hafa aldrei einurð í sér til þess að standa við till. sínar eða fylgja þeim eftir. Þá skunda þeir af og til, nokkrir þingmenn þessa flokks, ávallt sömu mennirnir, annaðhvort upp í ræðustóla hér á þinginu, í kjallaragreinar í Dagblaðinu eða í forsíðuviðtöl í Tímanum og koma með alls konar yfirlýsingar og gervitillögur um hvað þeir mundu hafa viljað gera ef þeir hefðu fengið að ráða og ef einhver hefði tekið mark á þeim.

Hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson flutti eina slíka till. við 1. umr. þessa máls, þar sem hann lagði til — það var ekki lengra seilst hjá hv. þm. en það — að ríkisstj. stæði við þá yfirlýsingu sem hún gaf í tengslum við boðaðar efnahagsaðgerðir um það leyti sem þing kom saman, þ.e. að launaskatti yrði létt af iðnaði. Hv. þm. leyfði sér ekki meira, þegar ljóst var að ríkisstj. hafði ekki í hyggju að standa við þessa yfirlýsingu sína, en að leggja til hér á hinu háa Alþingi að þetta yrði gert, og hafði í því sambandi sérstaklega í huga iðnaðarstarfsemi í byggingariðnaði og verktakaiðnaði, sem er mjög mikið stunduð í hans eigin kjördæmi. Hafði hv. þm. að sjálfsögðu mikinn áhuga á að geta stuðlað að framgangi þeirrar starfsemi sem hann ber mjög fyrir brjósti. Það vantaði ekki að formælendur þessa iðnaðar voru mjög hrifnir af þessu framtaki þingmannsins. M.a. birtist í Morgunblaðinu í morgun opið bréf til alþingismanna þar sem þeir eru sérstaklega beðnir að styðja þessa brtt. þm. og sérstaklega vakin athygli á því i þessu opna bréfi, hvaða misrétti væri verið að bjóða iðnaðinum upp á ef till. þm. yrði ekki samþykkt og ef til stæði að halda byggingariðnaði og verktakastarfsemi fyrir utan þá leiðréttingu sem hér væri verið að gera fyrir iðnaðinn.

Ég átti þess kost ásamt nokkrum fleiri þm. Alþfl. að sitja hádegisverðarfund með stjórn Landssambands iðnaðarmanna í dag, þar sem menn óskuðu mjög eindregið eftir að við hjálpuðum hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni að fá þessa till. sína fram. En auðvitað þurftu þessir menn ekki að láta sér til hugar koma að þessi till. hv. þm. væri í alvöru lögð hér fram. Hún var bara lögð hér fram til að sýnast. Það er búið að gera þá breytingu frá upphaflega frv. um launaskattinn, að til viðbótar við þær iðngreinar, sem þar voru taldar upp og lækkun launaskattsins átti að ná til, hefur verið bætt örfáum öðrum, þ. á m. að mér skildist mjólkuriðnaði og kjötvinnslu. En þau fyrirtæki og sá iðnrekstur, sem sérstaklega er rætt um í opnu bréfi stjórnar Landssambands iðnaðarmanna og einkum vöktu fyrir hv. þm. með flutningi till. sinnar, þau eru hvergi nefnd.

Menn voru, bæði í gamni og alvöru, að geta sér til um hvað hv. þm. hygðist gera miðað við fyrri afskipti hans í svipuðum dúr af sambærilegu máli. Þeir, sem gerst þóttust þekkja til, töldu að hv. þm. hefði í hyggju að greiða till. sinni atkv., en sitja síðan hjá að henni fallinni. Ég held að jafnvel þeir, sem þekkja málflutning hv. best, hafi ekki látið sér detta í hug það sem ætlar nú að verða reyndin á, að hv. þm. geri sér bara lítið fyrir og dragi till. sína til baka þannig að hún fái aldrei að ganga til atkv. og það fái aldrei að reyna á það, hvort stuðningur sé hér á Alþingi við málflutning hv. þm. Þetta er auðvitað hámark tvöfeldninnar og dæmigert fyrir störf og stefnu Framsfl. á síðustu tveimur árum.

Þetta er það sem lætur þessum flokki orðið best, að hegða sér svona, leggja fram till. eins og þá sem hv. þm. lagði hér fram, fá áskoranir utan úr bæ til alþm. um að standa við bakið á hv. þm. og reyna að hjálpa honum til að ná till. í gegn, sem síðan þegar á á að herða og till. á að koma til atkvæða dregur flm. hana bara til baka. Hann er búinn að ná tilgangi sínum. Hann er búinn að sýna fram á hvað hann mundi hafa gert ef einhver í stjórnarliðinu hefði tekið mark á honum.

Ég veit ekki, herra forseti, hvað hægt er að draga fólk lengi á asnaeyrunum með svona málflutningi. En ég held að þessi málflutningur verði hv. þm. ekki til mikils álitsauka hér á Alþingi, og þá ekkert frekar hjá flokksbræðrum hans en andstæðingum hans. Ég held að flokksbræður hans séu manna minnst hrifnir af svona framkvæmd, séu manna ólíklegastir til þess að styðja að því, að svona málflutningur skili viðkomandi einstaklingi einhverjum árangri, enda býst ég við að það hafi verið fyrir samtakamátt flokksbræðra hans sem hv. þm. hefur fengist til að draga umrædda till. til baka.