23.02.1982
Neðri deild: 44. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2619 í B-deild Alþingistíðinda. (2239)

205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Aðeins örstutt leiðrétting út af orðum hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar áðan.

Meðal þeirrar iðnaðarstarfsemi, sem ekki fellur undir þá breytingu sem gerð hefur verið á frv., er allur byggingariðnaðurinn og verktakastarfsemin. Áfram verður innheimtur hámarkslaunaskattur af þeim þætti iðnaðarins. Ekki er þar heldur að finna ljósmyndaiðnað og kvikmyndaiðnað og ekki heldur hárskurð og hárgreiðslu, og eru þetta aðeins nokkrar iðngreinar sem greiða iðnlánasjóðsgjald, en felldar eru út úr þeirri lækkun sem verið er að gera á launaskattsheimtu af iðnaði. Hins vegar eru teknar með þeirri breytingu, sem samþykkt hefur verið af hálfu minni hl. fjh.- og viðskn., iðngreinar sem ekki greiða iðnlánasjóðsgjald, svo sem mjólkuriðnaður og kjötiðnaður.

Ég held að það sé alveg ljóst hvað vakti fyrir hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni með þeim tillöguflutningi, að þessi lækkun skyldi ná til alls iðnaðar, þ.e. sú lækkun á launaskatti sem átti að framkvæma.