24.02.1982
Neðri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2647 í B-deild Alþingistíðinda. (2272)

205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég er ekki sammála kollega mínum um að þetta hafi komið á óvart hjá hv. 12. þm. Reykv. Það er ein leið að leggja fram till. sjálfur og greiða henni atkv. sjálfur. Það er hin leiðin að leggja fram till. og greiða svo atkv. á móti eigin till. Auðvitað aðhyllist Framsfl. „hina leiðina.“ Þess vegna kom mér ekkert á óvart þó að hv. 12. þm. Reykv. legði fyrst fram till. og greiddi síðan sjálfur atkv. á móti henni. Það er að sjálfsögðu framsóknarleiðin. Það er „hin leiðin“.

Sá háttur, sem hv. þm. er farinn að tileinka sér, að flytja hér till. með fyrirvara um að þær verði ekki samþ. er auðvitað alveg nýtt framlag af hans hálfu til vinnubragða hér á þinginu. Það er auðvitað ljóst, að um leið og hann tók að óttast um að það kynni að vera að till. fengi samþykkt hér á þinginu flýtti hann sér að ná samkomulagi við meiri hl. fjh.- og viðskn. um að till. yrði ekki samþykkt. Þetta er í fullu samræmi við stefnu þess flokks sem hv. þm. tilheyrir. Ég er viss um að eftir þessi afrek í þingsögunni verða menn ekki lengur í miklum vandræðum með að skýra það fyrir útlendum aðilum, sem spyrjast fyrir um það, hvers konar fyrirbæri Framsfl. eiginlega sé. Menn geta bara sagt þessa sögu af hv. þm. Guðmundi G. Þórarinssyni til að skýra fyrir erlendum áhugamönnum um stjórnmál á Íslandi hvaða fyrirbrigði Framsfl. sé í íslenskri pólitík. Það er flokkur sem leggur fram till., en greiðir síðan atkvæði gegn eigin till., vegna þess að það er „hin leiðin“ í íslenskum stjórnmálum. Það er síðan afrek út af fyrir sig sem hv. þm. hefur unnið með þeim skýringum sem hann hefur reynt að gefa á þessari afstöðu sinni. Ég verð að segja eins og er, að það væri kannske umhugsunarvert fyrir þá ágætu þm., sem fréttastofa útvarpsins kallar „fjallkónga“ stjórnarliðsins, að fela rannsóknarlögreglunni að reyna að komast til botns í þessum röksemdafærslum hv. þm. Guðmundar G. Þórarinssonar á meðan götulögreglan er upptekin við annað.

Herra forseti. Það kom glögglega fram áðan hjá hæstv. fjmrh., að hann er ekki enn búinn að leggja niður fyrir sér hvernig hann hyggst framkvæma þetta tollafgreiðslugjald, og er það raunar ekkert undarlegt því að í þeim tilraunum, sem við höfum gert til að fá upplýst um framkvæmdina hjá starfsmönnum fjmrh., höfum við nánast engin svör fengið. Það allt er eftir að útkljá enn. Menn segja þar að þm. verði að bíða þægir og rólegir og sjá til hvernig framkvæmdin verði, á þessari stund sé ekkert um hana hægt að fullyrða. Þess vegna getur hæstv. ráðh. engu svarað um þá einföldu spurningu sem til hans er beint um hvort hann hyggist innheimta tollafgreiðslugjald af þeim sérstöku vörum sem Alþingi fellir niður aðflutningsgjöld af, svo sem gjöfum til menningarstofnana og líknarfélaga vegna ýmiss konar tækja og tóla sem flutt eru inn fyrir fatlaða, öryrkja og aðra slíka. (Fjmrh.: Ég er búinn að svara þessari spurningu.) Nei, hæstv. ráðh. er ekki búinn að svara þeirri spurningu vegna þess að eins og frá tollafgreiðslugjaldinu er gengið í frv. stendur í 1. gr. að greiða skuli tollafgreiðslugjald í ríkissjóð vegna tollmeðferðar á innfluttum vörum og í 2. gr. að þetta tollafgreiðslugjald skuli nema 1% af tollverði. Síðan er gerð ákveðin undanþága frá þessari skyldu um tiltekna vöruflokka, sem taldir eru upp í 1. gr. í alls fimm liðum. Það er eina undantekningin sem lögin munu heimila hæstv. ráðh. að gera frá skylduliðum tollafgreiðslugjalds. (Gripið fram í.) Þær vörur, sem ég taldi upp áðan, herra torseti, og varða sérstaklega málefni þeirra þjóðfélagshópa sem ég nefndi, falla ekki undir þessa upptalningu. Síðan kemur, að ég held í 5. málsgr. þessarar sömu greinar, að ráðh. sé þó heimilt að innheimta tollafgreiðslugjald, annaðhvort 200 eða 50 krónur, af þeim vöruflokkum sem eru felldir út úr skyldu tollafgreiðslugjaldsins. En það er ekkert í þessari grein sem heimilar hæstv. ráðh. að fella niður tollafgreiðslugjald af vörum sem samkv. frv. er skylt að innheimta tollafgreiðslugjald af.

Það er alveg fráleitt ef hæstv. fjmrh. hugsar sér að hafa þann háttinn á, eins og virtist af hans máli, að innheimta ekki tollafgreiðslugjald t.d. af 350 bifreiðum sem fluttar eru til landsins og felld eru niður aðflutningsgjöld af og ætlaðar eru fötluðu fólki og lömuðu, en að ætla sér síðan að innheimta tollafgreiðslugjald af gervilimum og öðrum slíkum búnaði sem fluttur er inn á svipuðum kjörum fyrir sambærilega þjóðfélagshópa eða að innheimta tollafgreiðslugjald af heyrnartækjum fyrir heyrnarskerta, sjóntækjum fyrir sjónskerta o.s.frv. Þetta á ekki að vera háð duttlungum hæstv. ráðh. Hafi Alþingi ákveðið að fella niður tollafgreiðslugjald af slíkum varningi, eins og Alþingi hefur gert, á að ganga nákvæmlega sama yfir þessar sömu vörutegundir varðandi tollafgreiðslugjaldið. Það á ekki að vera háð geðþóttaákvörðunum ráðh. hvort hann leggur tollafgreiðslugjald á einhvern hluta af þessum varningi eða ekki. Við það bætist að ekki er ljóst, eins og frá frv. er gengið, að hæstv. ráðh. hafi í lögunum neina heimild til að fella niður tollafgreiðslugjald, en sé samkv. lögunum skylt að leggja það á og innheimta það. Ég fæ ekki séð að frv. veiti hæstv. ráðh. nema slíka heimild þó svo að hann feginn vildi. Það veitir honum enga aðra heimild en að innheimta ákveðinn nefskatt, ef svo má segja, af innflutningi sem fellur undir undanþáguákvæði frv. Þess vegna held ég fast við þá till. mína, sem ég ásamt nokkrum fleiri þm. hef flutt, að, við látum þessa afgreiðslu vera samhljóða, þ.e. hafi verið ákveðið að fella niður aðflutningsgjöld af tilteknum búnaði til hjálpar- og björgunarsveita, til fatlaðs fólks og lamaðs og annarra sjúklinga, þá skuli slíkt hið sama gilda varðandi tollafgreiðslugjald, en hæstv. fjmrh. sé ekki í sjálfsvald sett af hvaða slíkum búnaði hann innheimtir slíkt gjald og af hvaða búnaði ekki.

Það er alger sparðatíningur hjá hæstv. ráðh. að vera að hafa á móti slíkri afgreiðslu, vegna þess að hér er um að ræða innflutning sem ekki skiptir neinu máli fyrir tekjuöflun ríkissjóðs. Það skiptir engu máli fyrir tekjuöflun ríkissjóðs þó svo að niðurfelling aðflutningsgjalda og niðurfelling tollafgreiðslugjalda verði látin verða samferða þarna. Það er hins vegar hneyksli ef á að framkvæma þessi lög þannig, að til dæmis sé ætlast til að líknar-, hjálpar- og björgunarsveitir í landinu séu látnar greiða tollafgreiðslugjald af ýmsum varningi til sinnar starfsemi, sem Alþingi hefur ákveðið að fella tolla alfarið niður af, og það sé háð duttlungum embættismanna i rn. hvort slíkt gjald sé innheimt.