24.02.1982
Neðri deild: 46. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2654 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)

205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Mér er nauðsyn að taka til máls aftur þar sem 6. þm. Norðurl. e. hefur ekki enn áttað sig á meginatriðum þessa máls. Ég hef hugsað mér að tala hægt, en stutt, því ella gæti ég ofboðið eftirtekt hv. þm. (AG: Hafðu engar áhyggjur af því.)

Ég sagði áðan að frv. hefði ekki verið lagt fyrir þingflokk Framsfl. í endanlegri mynd. Hv. 1. þm. Norðurl. v. sagði að málið hefði verið afgreitt. Ég vona að hv. 6. þm. Norðurl. e. geri sér grein fyrir að hér er ekki verið að tala nákvæmlega um það sama. — Vonandi hef ég ekki ofboðið athygli hv. þm.

Það er hægt að afgreiða mál á ýmsa vegu. Það er hægt að afgreiða þau á þann veg að mönnum sé falið að ganga frá vissum atriðum. Þeir hafa þá vissulega formlegan rétt til að ganga frá þeim atriðum geri þeir það í samræmi við þær samþykktir sem gerðar hafa verið.

Ég vænti þess, að hv. 6. þm. Norðurl. e. geri sér grein fyrir öllum meginatriðum þessa máls og ég þurfi ekki að koma hér upp í þriðja skiptið, herra forseti, til að bera af mér sakir.