26.02.1982
Efri deild: 49. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2686 í B-deild Alþingistíðinda. (2313)
205. mál, tekjuöflun vegna ráðstafana í efnahagsmálum
Frsm. 1. minni hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Það væri vissulega tilefni til þess að hér færi fram ítarleg umræða um efnahagsmál. En það er varla tími til þess nú í vikulokin þar sem ætlun manna er að afgreiða þetta frv. fyrir helgina. Ég vil þó aðeins vekja athygli á örfáum atriðum sem mér finnst nauðsynlegt að komi hér fram, vegna þess að ýmislegt í málflutningi manna hér fannst mér varla hægt að láta standa með þeim hætti sem þar kom fram. Á ég þá sérstaklega við ræðu hv. þm. Kjartans Jóhannssonar.
Það er auðvelt að búa til talnadæmi þar sem erlendar lántökur eru reiknaðar inn í húsakost í kjördæmum og annað slíkt. En ég held að það sé ekki hægt að gera með réttu og gagnrýna það nema menn bendi um leið á hvaða framkvæmdir, sem verið er að taka lán til, eigi að bíða eða með hvaða hætti menn vilja þá efla innlenda lánsfjáröflun á móti.
Ég greip fram í fyrir hv. þm. og spurði hvort Alþfl. vildi minnka orkuframkvæmdir eða draga úr þeim, vegna þess að mér hefur skilist að það væri stefna hans — sem og Sjálfstfl. í stjórnarandstöðu — að hér væri virkjað stórt og mikið og byggð hér upp stóriðja jafnvel mun hraðar en áform eru um nú. Það hafa ekki komið fram hugmyndir um að slíkar framkvæmdir eigi að vera í eigu útlendinga eða fjármagnaðar af þeim. Ég spyr þess vegna: Þegar menn eru að gagnrýna erlendar lántökur, eru menn þá að krefjast þess, að lántökur vegna orkuframkvæmda dragist saman? Meginhluti þess láns, sem hæstv. fjmrh. er nú að taka og gert var að umræðuefni áðan er vegna framkvæmda í orkumálum, er vegna hitaveituframkvæmda, er virkjunarframkvæmda, er til þess að reisa byggðalínur og raforkulínur um landið og til annarra framkvæmda á þessu sviði. Það er meginuppistaðan í þessari lánsfjárþörf.
Við getum leikið okkur hér að því fram og aftur að umreikna þessar tölur yfir í fasteignamat á húsum í tilteknum kjördæmum eða heildarárslaun einstakra manna. Ég held að það þjóni tiltölulega litlum tilgangi í umræðum um það efni sem ég tel mjög alvarlegt um ræðuefni, þ.e. hinar erlendu lántökur.
Ég vil aðeins vekja athygli á því hér, án þess að ég fari að gera það að miklu umræðuefni, að ef ásakanir eru uppi um það, að erlendar lántökur séu of miklar, þá sýnist mér nauðsynlegt ef við stjórnarliðar eigum að geta tekið þátt í þeirri umræðu á einhverjum grundvelli, að fram komi tillögur annaðhvort um að dregið verði úr framkvæmdum — og þá hvaða framkvæmdum, eða þá að innlend lánsfjáröflun verði efld — og þá með hvaða hætti. Ég er reiðubúinn í þær umræður við annað tækifæri, þegar deildin hefur lengri tíma, en þessar umreikningsumræður finnst mér ekki þjóna einum eða neinum tilgangi í þessum efnum.
Annað atriði, sem ég vil nefna, kom fram hjá hv. þm. Lárusi Jónssyni varðandi atvinnuástandið. Það er út af fyrir sig rétt hjá honum, að fyrr á árum var hin mikla aflaaukning, sem varð í landinu, að nokkru leyti skýringin á því, hvers vegna Íslendingum tókst að viðhalda hér ákveðnu atvinnuástandi. Nú hefur hins vegar sú breyting orðið á síðasta ári og yfirstandandi ári, að annars vegar hefur dregið m jög úr þeirri aukningu, þó hún sé að vísu nokkur, — aflaaukningu í ýmsum meginstofnum sem við nýtum, og til viðbótar hefur orðið alvarlegur brestur í loðnustofninum sem hefur verið mikil uppistaða í hinni miklu sókn Íslendinga til aukinna verðmæta á þessu sviði. Og þó að sú skýring, sem hv. þm. Lárus Jónsson gaf hér, kunni að hafa verið góð og gild fyrr á árum, þá tel ég að hún gildi ekki varðandi árið 1981 og það sem af er þessu ári hvað gott atvinnuástand í landinu snertir.
Í þriðja lagi vil ég aðeins vekja athygli á því, að fyrir ári fór fram umræða um hvað tekjur hefðu hækkað milli ára og um skattvísitölu í því sambandi. Þá voru fluttar hér í þingsölum ýmsar tölur sem fólu í sér að hækkun tekna milli ára væri allmiklu meiri en sú skattvísitala sem gert var ráð fyrir. Það er að vísu rétt, að fyrsta athugun Þjóðhagsstofnunar á þeim tíma gaf til kynna að slíkt gæti orðið. En þegar hins vegar nánari athugun fór fram á vegum Þjóðhagsstofnunar og úrtak var tekið úr skattframtölum í fleiri byggðalögum kom í ljós að svo var ekki. Mér er ekki kunnugt um að nú þegar hafi farið fram svo ítarleg eða áreiðanleg könnun á skattframtölum að hægt sé að kveða upp úr með það, hver tekjuhækkunin hefur orðið milli ára. Ég rifja upp í þessu sambandi að þær fyrstu tölur, sem menn fengu um þetta leyti í fyrra, reyndust ekki gefa rétta mynd af því sem endanlega varð niðurstaðan.
Að lokum, herra forseti, án þess að ég geri það nú að ítarlegu umræðuefni, er ljóst að ef fulltrúar stjórnarandstöðunnar hér, sérstaklega Sjálfstfl., vilja gera allt i senn sem boðað hefur verið hér í dag og áður: að draga verulega úr sköttum í landinu og draga verulega úr niðurgreiðslum, ef eftir þessum aðferðum yrði farið mundi a.m.k. á fyrsta áfanga slíkrar efnahagsstefnu verða hér stórfelld verðbólguholskefla og umtalsverðari en orðið hefur í langan tíma. Það er umdeilanlegt hver yrði niðurstaðan eftir einhver misseri eða einhver ár slíkrar stefnu, en á fyrstu mánuðum og misserum hennar er alveg augljóst, ef þessar tillögur eru lagðar saman, að það yrði einhver stórfelldasta verðbólguaukning sem orðið hefur í langan tíma.
Mér er ljóst, herra forseti, að þetta kann að leiða til eitthvað lengri umræðna hér í deildinni en menn reiknuðu með. En það var ekki ætlun mín að svo yrði. Ég flutti hér mjög stutta og greinargóða ræðu fyrir nál. sem varð tilefni þeirra löngu ræðna sem tveir talsmenn 2. minni hl. fluttu. Mér finnst ástæða til þess, að við gefum okkur tíma hér í deildinni einhvern tíma síðar til þess að fara nokkuð ítarlega yfir þetta efnahagsmálasvið.