28.10.1981
Efri deild: 7. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í B-deild Alþingistíðinda. (233)

37. mál, söluskattur

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég held að óhætt sé að taka undir það með hæstv. ráðh., að það sé af hinu góða að bæta innheimtu söluskatts í ríkissjóð og setja um það reglur sem verði til þess, að sú skattheimta skili sér á endanum þangað sem lög segja fyrir um að hún skuli gera. Að því leyti er sjálfsagt og eðlilegt að standa að lagasetningu sem getur hnigið í þá átt.

Ég reyndi að kynna mér og ræddi við ráðuneytismenn í fjmrn. um þær nýju reglur sem felast í þessu frv. Því miður reyndust þeir aðilar í rn., sem höfðu lagt þarna hönd á plóginn, ekki viðlátnir, en ég fékk um þetta þær upplýsingar sem fyrir hendi voru í rn. Þar kom einmitt fram eins og hjá hæstv. ráðh., að það væri kannske ekki um miklar byltingar að ræða með þessu frv. í sjálfu sér, heldur væri hér verið að breyta þeim lögum og reglugerðum, sem fyrir eru, í það horf sem hæfir nútímanum. Þó held ég að þetta þurfi að skoða betur þegar farið verður ofan í þetta frv. í nefnd, því að mér sýnast ýmis ákvæði þarna, viðurlög og ákvæði, vera mörg nokkuð harkaleg, t. d. að gera mönnum, sem hafa brotið af sér að þessu leyti, að sæta allt að 6 ára fangavist, að mér skilst. Þetta er náttúrlega þung refsing, sérstaklega þegar þess er gætt hvernig atvik geta verið í sambandi við skil á söluskatti.

Þá vil ég aðeins koma að einu atriði í þessu sambandi og það er að söluskattsskyldur aðili, sem selur vöru sína eða þjónustu, er skyldugur að gera upp heildarveltu viðkomandi mánaðar án tillits til þess, hvort hann fær greitt fyrir vöru sina eða þjónustu fyrr en allmiklu síðar. Hann á að skila af því söluskatti. Með þessu er í rauninni ekki verið að leggja söluskatt á viðkomandi aðila, heldur er verið að leggja skatt á viðkomandi atvinnurekstur. Þarna er ekki um að ræða að viðkomandi aðili sé innheimtumaður fyrir ríkissjóð, heldur er í raun verið að leggja skatt á viðkomandi fyrirtæki þar sem menn verða að skila 23.5% í ríkissjóð af sölu sem þeir hafa ekki fengið greidda.

Það er spurning í mínum huga, þegar verið er að þyngja mjög viðurlög við vanskilum á slíkum skatti, hvort ekki þarf að setja einhver ákvæði um það, að gilt geti ákveðnar undanþágur í þeim efnum ef um er að ræða að menn gefi allsæmilegan greiðslufrest og fái ekki greidda vöru eða þjónustu fyrr en alllöngu eftir að þeir eiga að vera búnir að skila söluskatti af sölunni, — hvort ekki þurfi þá að ívilna mönnum að því leyti til. Annars er í rauninni ekki verið að leggja á söluskatt og að skylda þessa aðila til að innheimta hann, heldur í raun verið að leggja beinan skatt á viðkomandi atvinnurekstur ef þannig er að þessari innheimtu staðið.

Ég vil spyrja hæstv. ráðh. hvort komið hafi til tals í þessu sambandi að hægt væri að gefa upp veltu til söluskattsskila þannig að skilið væri á milli staðgreiðslu og lánsviðskipta, a. m. k. lánsviðskipta sem eru til lengri tíma en mönnum er gert að skila skattinum inn.

Í öðru lagi hefur stundum verið rætt um það af þeim aðilum sem gert er að innheimta söluskatt fyrir ríkissjóð, að þeim bæri einhver umbun fyrir að innheimta slíka fjármuni. Eins og fram kom hjá hæstv. ráðh. er hér um feiknalega miklar fjárhæðir að ræða. Það getur, eins og ég hef hér rakið, komið verulega niður á mönnum að þurfa að standa skil á þessum skatti 15–25 dögum eftir að viðkomandi sala hefur átt sér stað, hvernig sem á stendur með greiðslu á henni. Ég vildi spyrja hæstv, ráðh. hvort það mál hafi eitthvað borið á góma í sambandi við þetta. Það er gamalt baráttumál þeirra, sem hafa innheimt þessar fúlgur fyrir ríkissjóð, að fá einhvers konar þóknun frá ríkisvaldinu fyrir að innheimta þessar gífurlegu fjárhæðir og skila þeim í ríkissjóðinn.

Þá vil ég leggja á það áherslu, sem kom fram hjá hæstv. ráðh., að e. t. v. er meginatriði þessarar lagasetningar að ný vinnubrögð verði tekin upp um skráningu á staðgreiðsluviðskiptum. Mér skildist á hæstv. ráðh. að verði frv. samþykki óbreytt muni hann umsvifalaust setja reglugerð um að ný vinnubrögð verði tekin upp á þessu sviði. Þá er spurningin þessi: Hefur farið fram athugun hjá rn. á hvað það kosti viðkomandi innheimtuaðila, þá sem eiga að innheimta og skila söluskattinum, að koma upp hjá sér sjóðvélum, eins og hæstv. ráðh. orðaði það, sérstökum sjóðvélum sem yrðu þá þannig úr garði gerðar að rn. teldi þær þær þjóna sínum tilgangi? Það hlýtur að hafa einhvern kostnað í för með sér, og spurningin er þá: Hvað er þarna um miklar fjárhæðir að ræða og hver á að greiða þann kostnað?

Af því að hæstv. ráðh. tekur sjálfsagt aftur til máls og svarar einhverju af þessum spurningum mínum vil ég að lokum gjarnan inna hann eftir því, hvað líði ákvæðum stjórnarsáttmálans um að staðgreiðslukerfi skatta verði tekið upp innan tveggja ára frá því að ríkisstj. var mynduð, og önnur spurning sem snertir þetta alveg sérstaklega, hvort enn séu athuganir í gangi á því að taka upp virðisaukaskatt sem atvinnurekendur hafa mjög haft á orði að sé eðlilegri skattheimta að mörgu leyti, söluskattsformið sé fjötur um fót í samkeppninni og virðisaukaskattkerfið snöggtum skárra. Eru athuganir á þessu í gangi hjá ríkisstj. eða hafa menn alveg gefið það upp á bátinn?