26.02.1982
Efri deild: 50. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2708 í B-deild Alþingistíðinda. (2334)
214. mál, framhaldsskólar
Forseti (Helgi Seljan):
Hæstv. menntmrh. hefur óskað eftir því, að málið komist sem fyrst til nefndar, og ég tek undir nauðsyn þess. Hins vegar er málum þannig háttað, að fulltrúar eins þingflokks í hv. deild hafa óskað eftir frestun nú á þessu máli, og er vani að verða við slíkum óskum þannig að menn geti kynnt sér mál betur varðandi umr. Ég mun leitast við að ná þessu máli til nefndar á næsta fundi í deildinni í samráði við fulltrúa þess þingflokks sem um frestun hefur beðið nú. Ég vænti þess, að það komi þá ekki að sök varðandi afgreiðslu að hæstv. ráðh. verði fjarverandi, og ætla ekki fresta fundi nú.