26.02.1982
Efri deild: 50. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2710 í B-deild Alþingistíðinda. (2336)
214. mál, framhaldsskólar
Salome Þorkelsdóttir:
Herra forseti. Það eru aðeins örfáar athugasemdir.
Hæstv. ráðh. minntist á að það væri ekki óeðlilegt að umr. um skólamál tækju langan tíma. Ég er honum alveg sammála um það. Sjálf er ég svo gömul í hettunni á sveitarstjórnarvettvanginum að ég var með í umr. á grunnskólafrv. á sínum tíma á þeim vettvangi og man vel eftir hvernig þær fóru fram. En það er einmitt meginástæðan fyrir því, að þm. telja sig þurfa nokkuð góðan umþóttunartíma áður en þeir geta gert sér grein fyrir einstökum atriðum þessa frv. eða fjallað um það að einhverju gagni.
Hæstv. ráðh. minntist á það, sem ég tel vera jákvætt jafnframt, að með þessu frv. eigi að dreifa frumkvæðinu, þ.e. frá miðstýringunni hér í menntmrn. og út til sveitarfélaganna, til heimamanna. Vissulega er þetta mikilsvert atriði og það sem sveitarstjórnarmenn yfirleitt berjast fyrir: að fá sem mest að fjalla um eigin mál á heimavettvangi. En hann minntist ekki einu orði á fjármagnshliðina sem ég nefndi að væri meginatriðið í þessum efnum. Það er alls ekki aukaatriði hvernig fjármálakaflinn verður saminn, einmitt með tilliti til þessa, því að ef þarna á að koma til fjármálaleg ábyrgð sveitarfélaganna verða að sjálfsögðu að koma tekjustofnar á móti. Öðruvísi geta sveitarfélögin ekki staðið undir slíku. Þetta var það sem ég var fyrst og fremst að leggja áherslu á. Það má ekki ske að ríkisvaldið sýni — mér liggur við að segja: valdhroka gagnvart sveitarfélögunum að þessu leyti, að það sé talið vera algert aukaatriði, sem ekki þurfi að fjalla um samhliða þessu frv., hvernig fjármálakaflinn verður. Þetta vil ég ítreka að er aðalatriði, og það er ekki hægt að taka þetta frv. til afgreiðslu öðruvísi en þetta hvort tveggja fylgist að.