26.02.1982
Neðri deild: 47. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2742 í B-deild Alþingistíðinda. (2347)
211. mál, verðlag og samkeppnishömlur
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það hefur margt verið sagt hér málefnalegt og fróðlegt af síðustu ræðumönnum. Vegna þess hvað liðið er á starfstíma þingsins í dag ætla ég ekki að fara hér almennum orðum meira um frv. sem er nú á dagskrá. Ég held að málefnastaða manna hafi skýrst mjög vel hér í dag og þó alveg sérstaklega málefnafátækt hv. síðasta ræðumanns.
Ég hef aldrei vitað til þess áður í þingsölum að menn reyni að verja pólitískt snögga bletti á sjálfum sér með því að ræða um skólagöngu annarra manna né heldur hvað þeir hafi gert í sumarleyfum sínum. Þetta málefnalega þrotabú, sem gekk úr stólnum áðan, hv. þm. Friðrik Sophusson, hefur ekki öðru til að tjalda og honum er það vorkunnarefni. Það mál er hins vegar með þeim hætti að það er ekki ástæða til að ræða það hér mikið eða nákvæmlega úr þessum ræðustól.