03.03.1982
Efri deild: 51. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2815 í B-deild Alþingistíðinda. (2365)

208. mál, sveitarstjórnarlög

Frsm. (Salome Þorkelsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á sveitarstjórnarlögum nr. 58 29. mars 1961. Allshn. hefur haft þetta frv. til umfjöllunar, reyndar tvö frv. um breytingu á sveitarstjórnarlögum, að hluta til samhljóða. þ.e. varðandi það afbrigði að færa kosningar til sveitarstjórna yfir á laugardaga.

Fyrra frv., sem er á þskj. 321, var flutt af fjórum þm. sem sæti eiga í allshn. Ed., þeim Salome Þorkelsdóttur, Stefáni Jónssyni, Stefáni Guðmundssyni og Eiði Guðnasyni. Fjallar það frv. eingöngu um breytingu á 17. gr. sveitarstjórnarlaganna, þ.e. að færa kjördag yfir á laugardaga til samræmis við lög um kosningar til Alþingis, en sömu flm. fluttu frv. um það efni sem varð að lögum í des. s.l.

Síðan var svo lagt fram á þskj. 347 stjfrv. um breytingar á sveitarstjórnarlögum, nr. 58 29. mars 1961. 1. gr. þess er samhljóða fyrra frv. varðandi breytingu á 17. gr., en einnig er í 2. gr. þess frv. lögð til breyting á 18. gr. sömu laga. Með tilliti til þess, að nefndin er sammála um að báðar þessar breytingar nái fram að ganga, er lagt til að afgreiða málið á þann veg að mæla með samþykkt þess frv. sem felur í sér báðar breytingarnar. Jafnframt flytur nefndin brtt. við 2. gr. frv. á sérstöku þskj. Sú brtt. er til komin vegna ábendinga sem fram komu hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. við umr. þegar mælt var fyrir þessu frv. Einstakir nm. áskilja sér einnig rétt til að flytja brtt. við þetta frv., og ég sé að brtt. er nú þegar komin fram á þskj. 402. Ég hefði viljað mælast til þess að allshn. fengi þessa brtt. til athugunar. Ég tel að þarna sé svo stórt mál á ferðinni, að ekki væri óeðlilegt að nefndin fjallaði um það.

Það er jafnframt rétt að skýrá frá því, að nokkrar umr. urðu innan nefndarinnar um það, hvort hafa ætti sama kjördag um allt land í stað þess að kosið er í júnímánuði í dreifbýlishreppum. Það kom fram í nefndinni að ekki væri rétt að tefja þetta mál með því að kanna það frekar nú, en rétt að taka það til athugunar síðar og þá jafnvel hvort færa ætti kjördag t.d. fram á haustið. Sú skoðun kom fram hjá ýmsum, að það gæti verið hagkvæmt, með tilliti til þess þegar mannabreytingar verða við kosningar, að nýjar sveitarstjórnir hefðu tækifæri til að byrja á því að undirbúa og afgreiða fyrstu fjárhagsáætlun sína sem væri þá eitt af fyrstu störfum nýrrar sveitarstjórnar ef kosið væri þegar komið er fram á haust. Ég vil benda mönnum á þetta til íhugunar.