03.03.1982
Efri deild: 51. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2819 í B-deild Alþingistíðinda. (2369)

208. mál, sveitarstjórnarlög

Guðmundur Vésteinsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hv. 4. þm. Vestf. fyrir góð orð í minn garð. En í tilefni orða hans um það, að hér væri kastað fram brtt., eins og tekið var til orða, vil ég aðeins minna á það, eins og fram kom í minni framsöguræðu, að þetta mun ekki vera nýtt mál hér á hv. Alþingi. Að vísu hefur það verið nokkuð umdeilt, en ég sem varamaður hér á Alþingi og nýkominn taldi ástæðu til þess — og það fullkomna ástæðu vegna þess að í vor fara fram sveitarstjórnarkosningar — að hreyfa þessu máli og fá fram afstöðu til þess, og í þeim tilgangi stend ég að umræddri tillögu. En ég vil aðeins ítreka það, áður en ég hverf úr ræðustól, að ég dreg till. til baka til 3. umr. svo að nefnd gefist færi á því að fjalla um hana.