03.03.1982
Neðri deild: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2832 í B-deild Alþingistíðinda. (2380)
Umræður utan dagskrár
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Dagblaðið og Vísir skýra frá því á forsíðu í gær, að haldinn hafi verið sveitarfundur í Seyluhreppi í Skagafirði fyrir skömmu um málefni fyrirhugaðrar virkjunar við Blöndu. Út af fyrir sig eru það ekki tíðindi að slíkur fundur sé haldinn norður þar, en það mun hafa gerst á þeim fundi, að þar var lesin upp yfirlýsing undirrituð af hæstv. landbrh. Pálma Jónssyni og hæstv. fjmrh. Ragnari Arnalds. Í yfirlýsingunni segir að ríkissjóður skuli bera kostnað af rafleiðslum og spennistöðvum til að koma rafmagni til graskögglaverksmiðju sem í undirbúningi er að reisa í Vallhólmi í Skagafirði.
Ólafur Dýrmundsson landnýtingarráðunautur hjá Búnaðarfélagi Íslands sat þennan fund. Hann segir í viðtali við Dagblaðið og Vísi í gær að enginn vafi leiki á því að hans áliti, að með þessu hafi verið reynt, eins og segir í blaðinu orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „að stinga dúsu upp í heimamenn til að fá þá til að fallast á virkjun Blöndu samkv. þeirri tilhögun sem ríkisstj. hefði lagt til.“ Ólafur segir orðrétt í viðtali við blaðið, með leyfi forseta: „Það var ekki verið að ræða annað á þessum fundi en málefni Blönduvirkjunar og að lesa upp upplýsingar um að veita ætti þessari verksmiðju ákveðnar ívilnanir eða fyrirgreiðslu þjónar ekki öðrum tilgangi en að þagga niður í heimamönnum.“
Nú er það að sjálfsögðu mál út af fyrir sig, hvaða erindi svona yfirlýsing á inn á umræddan fund um Blönduvirkjun og hvort rétt sé sú fullyrðing Ólafs Dýrmundssonar, að með þessu hafi átt að hafa áhrif á afstöðu manna til þeirrar virkjunar. Ég ætla ekki að ræða það mál hér, enda má segja að það komi ekki við þeirri fyrirspurn sem ég hyggst gera til hæstv. ráðh.
Hitt er allt annað mál, efni þeirrar yfirlýsingar sem þarna er gefin. Á forsíðu Dagblaðsins er birt mynd af hluta umræddrar yfirlýsingar með undirskriftum hæstv. landbrh. Pálma Jónssonar og hæstv. fjmrh. Ragnars Arnalds fyrir hönd sinna ráðuneyta. Í yfirlýsingu þessari stendur m.a. orðrétt, með leyfi hæstv. forseta, „að ríkissjóður mun bera kostnað af rafleiðslum og spennistöðvum til að koma raforku, miðað við 500 kw. spennistöð, til verksmiðjunnar“.
Þessi yfirlýsing er tilefni þess að ég kveð mér hljóðs, vegna þess að í fjárlögum fyrir árið 1982 er ekkert fjármagn sem hæstv. ráðh. gætu varið til þessara hluta. Þegar fjárlagafrv. fyrir árið 1982 var lagt fram hér á Alþingi var gert ráð fyrir að framlag til grænfóðurverksmiðja yrði 1 177 þús. kr. og ætti að skiptast þannig, að til grænfóðurverksmiðju í Flatey í A.-Skaftafellssýslu eigi að renna 427 þús. kr., en framlag ríkissjóðs til Hólmsins í Skagafirði falli niður, því framlagi verði hins vegar breytt í lántöku sem eingöngu verði bundin við hlutafjárframlög ríkissjóðs til verksmiðjunnar. Ríkisframlagið er sem sé fellt niður, en aðeins heimiluð lántaka til hlutafjárframlags af hálfu ríkissjóðs. Nokkrar breytingar voru gerðar á þessum fjárlagalið við 3. umr. fjárlaga, en engar að því er tók til grænfóðurverksmiðju í Vallhólmi í Skagafirði.
M.ö.o.: hæstv. Alþingi afgreiðir þetta mál þannig frá sér, að engin króna er á fjárlögum sem gæti skoðast ríkisframlag til umræddrar verksmiðju, aðeins heimild til lántöku sem verja á til greiðslu á hlutafjárframlagi til verksmiðjunnar. En í yfirlýsingu umræddra ráðherra er sagt orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Verður kostnaðurinn greiddur sérstaklega af framlögum á fjárlögum, sem veitt eru til verksmiðjunnar, og er sú greiðsla óháð hlutafjárframlagi.“ Umrædd gjöf á spennistöðvum og leiðslum á samkv. þessu ekki að hafa nein áhrif á hlutafjárframlag til verksmiðjunnar, en á engu að síður að greiðast úr ríkissjóði af einhverju framlagi til umræddrar verksmiðju sem ekki er á fjárlögum. Umrætt framlag var fellt niður úr fjárlögum. Ég hef spurt hv. þm. Geir Gunnarsson, formann.fjvn., hvort honum sé kunnugt um þetta mál. Hann hefur upplýst að um þetta mál hafi aldrei verið rætt við sig, hann kannist ekkert við það og hann fái ekki séð að á fjárlögum sé nokkur liður sem hægt sé að verja í þessu skyni. Ég hef einnig spurt fulltrúa Framsfl. í fjvn., hv. þm. Alexander Stefánsson, hvort málið hafi komið til hans kasta eða hann hafi af því vitað. Hann upplýsti mig um það í gær að svo væri ekki.
Herra forseti. Það er því alveg ljóst að umrædda hæstv. ráðh., þá Pálma Jónsson og Ragnar Arnalds, brestur allar fjárlagaheimildir fyrir þeirri yfirlýsingu sem þeir hafa hér gefið. Ég óska eftir því, að hæstv. ráðherrar geri Alþingi grein fyrir því, hvernig að þessu máli hefur verið staðið af þeirra hálfu og hvaða heimildir þeir hafa fyrir umræddri yfirlýsingu. Ef þetta væru fjármunir sem hæstv. ráðherrar ættu persónulega, þá væri ekkert við því að segja þó að þeir gæfu yfirlýsingar um að þeir hygðust verja þessum fjármunum til að gefa tilteknu fyrirtæki, sem enn á eftir að stofna, einhverjar gjafir. En nú er það einu sinni svo, að ríkissjóður er ekki eign hæstv. ráðh. Ragnars Arnalds og Pálma Jónssonar. Þó svo að þessum hæstv. ráðherrum hafi um skeið verið sýndur sá trúnaður að fela þeim að gegna þeim störfum sem þeir gegna, þá geta þeir ekki gert ráð fyrir að þeir geti í heimildarleysi gengið í ríkissjóð og úthlutað úr honum fjármagni til hinna og þessara aðila og því síður ef það er í þeirra eigin kjördæmi, þessara hæstv. tveggja ráðh., þó svo að þeir hafi báðir áður gerst sekir um að ráðstafa peningum ríkisins með þeim hætti og fengið síðan heimild Alþingis til slíkrar ráðstöfunar eftir á.
Nú ber svo vel í veiði, hæstv. forseti, að hæstv. landbrh. gegnir ekki aðeins sínu ráðuneyti, heldur er hann jafnframt fjmrh., dómsmrh., forsrh., iðnrh. og félmrh. Hann gegnir sem sé ráðherrastörfum allra ráðh. Alþb. auk ráðherrastarfa forsrh. og dómsmrh. Hann er því í senn bæði tvisvar sinnum tvöfaldur og tvisvar sinnum einfaldur í sínu starfi. Það ætti því að standa honum mjög nærri að svara bæði sem landbrh. og fjmrh. og einnig sem forsrh., þeirri spurningu hvort málið hafi verið tekið upp og rætt í ríkisstj.
Landbrh. (Pálmi Jónsson): Herra forseti. Hv. 3. þm. Vestf. hefur hér vakið máls á tilteknu atriði, sem gert er að umtalsefni í Dagblaðinu og Vísi í gær, og virðist mikið niðri fyrir af litlu tilefni. E.t.v. er það byggt á einhverjum misskilningi eins og mér virtist koma fram í hans máli.
Graskögglaverksmiðjur eru fimm í landinu. Þar af eru fjórar í eigu ríkisins en ein í einkaeign. Árið 1972 var ákveðið að koma upp tveimur graskögglaverksmiðjum til viðbótar og hafa þær verið í undirbúningi síðan. Þessar graskögglaverksmiðjur eru verksmiðjan í Vallhólmi og verksmiðjan í Saltvík í Suður-Þingeyjarsýslu. Það hefur verið að því stefnt og að því unnið nú upp á síðkastið að koma þessum verksmiðjum upp með hlutafélagsformi, með hlutafjáreign ríkisins annars vegar og heimaaðila hins vegar.
Hinn 17. júlí s.l. var haldinn undirbúningsstofnfundur að hlutafélagi um graskögglaverksmiðjuna í Vallhólmi. Þar var ákveðið að hlutafé skyldi verða 10 millj. kr. og gefin fyrirheit um það af hálfu landbrh. og fjmrh. fyrir hönd ríkisins, með fyrirvara um samþykki Alþingis, að ríkissjóður legði fram 75% af þessu hlutafé, heimaaðilar legðu fram 25%. Það, sem hér er spurt um, er eitt atriði í því máli, hvernig eigi að koma þessu fyrirtæki á laggirnar. Hér er um tiltölulega smátt atriði að ræða, en í sumum tilvikum getur verið álitamál hvað eigi að teljast til hlutafjár og hvað ekki af þeim undirbúningi sem þegar hefur verið ráðist í til stofnunar og starfsemi tiltekins fyrirtækis.
Sú yfirlýsing, sem hér er vitnað til og gefin er hinn 11. febr. s.l. af okkur hæstv. fjmrh., sem munum væntanlega fara með hlutdeild ríkisins í þessu hlutafélagi þegar það verður stofnað — en gert hefur verið ráð fyrir að stofnfundur verði haldinn áður en þessum mánuði lýkur — felur það í sér, gert er ráð fyrir að ríkissjóður beri kostnað af raflögn og spennistöð við þessa verksmiðju án þess að það komi fram í hlutafjáreign fyrirtækisins. Kostnaður af þessari ráðstöfun er talinn samkv. lauslegri áætlun verða 300–400 þús. kr. Það er kostnaður við um 700 m raflögn og spenni við verksmiðjuna sem að hámarki verður 500 kw. Vera kann að þessi kostnaður verði minni, ef ekki telst nauðsynlegt að hafa 500 kw spenni heldur dygði minni spennir, sem ekki hefur endanlega verið tekin ákvörðun um. Hér er um hámark að ræða.
Hv. þm. sagði, að ekki væru heimildir fyrir slíkri ráðstöfun, og vitnaði til fjárlagafrv. og fjárlaga. Það er rétt hjá honum, að í fjárlögum er gert ráð fyrir að til þessa fyrirtækis verði tekið 2 millj. kr. lán og því láni verði ráðstafað í hlutafjáreign fyrirtækisins. Hins vegar eru einnig á fjárlögum 3 millj. kr. sem fjárveiting, og af þeirri fjárveitingu tel ég — án þess að rækileg athugun hafi verið gerð á því af minni hálfu — að heimilt sé að ráðstafa þeim 300–400 þús. kr. sem hér er um að tefla.
Ég vænti þess, að hv. þm. telji þessar upplýsingar fullnægjandi. Til þess að skýra þetta enn frekar get ég lesið úr þeim fjárlagalið sem hér er um að tefla. Þar segir að gert sé ráð fyrir til fjárfestinga 5 millj. kr. Það sé í fyrsta lagi tekið lán, 2 millj. kr., og í öðru lagi er fjárveiting 3 millj. kr. Hér er því um fjármuni að ræða á fjárlögum sem unnt er að verja í þessu skyni, og þarf ekki að hafa neinar vífilengjur um að heimilt sé að verja fé af þessum fjárveitingum í þessu skyni. Þess er svo enn fremur að geta, að fyrri fjárlagaheimildir til þessa fyrirtækis hafa ekki enn verið að fullu nýttar. Eru enn fyrir hendi fjárlagaheimildir til þessa fyrirtækis á fjárlögum frá árinu 1981 sem ekki er að fullu eytt.
Varðandi það, eins og verið er að gefa í skyn, hvort hér sé um eitthvert mál að ræða sem eigi að láta nota sem dúsu“ til þess að þagga niður í heimamönnum, eins og það er svo smekklega orðað, þá vísa ég því á bug. Það höfðu borist frá tilteknum sveitarstjórnarmanni í Seyluhreppi fyrirspurnir um þetta mál og var eðlilegt að svara þeim á þessum sveitarfundi.