03.03.1982
Neðri deild: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2837 í B-deild Alþingistíðinda. (2385)

Umræður utan dagskrár

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég hélt satt að segja að það þyrfti ekki að fræða jafngamalreyndan fjárveitinganefndarmann og hæstv. landbrh. á því, hvernig menn leita að því sem býr á bak við fjárveitingar og fjárveitingaákvarðanir ríkisvaldsins. Í fjárlögum stendur um grænfóðurverksmiðju í Hólminum í Skagafirði, undir liðnum 992: Tekin lán 2 millj. kr. Það er sú lánveiting sem verksmiðjan tekur sjálf. Þetta er lánsfjárupphæð sem verksmiðjan aflar sjálf, hún er skýrð í fjárlagafrv. Síðan stendur undir liðnum 996: Annað 3 millj. kr. Þar telur hæstv. landbrh. að sé framlag á fjárlögum til verksmiðjunnar. Það er rangt, vegna þess að þessi fjárupphæð er skýrð í fjárlagafrv. sem heimild ríkissjóðs til greiðslu hlutafjárframlags einvörðungu.

Hæstv. landbrh. ætti að skilja þetta. Þetta er sú leið sem þm. hafa til þess að afla upplýsinga um það, til hvers á að verja tilteknum fjármunum. Þeir leita að því annaðhvort í frv. til fjárlaga, þar sem heimildin er skýrð, ellegar þá í ræðum formanns fjvn. Og þetta er sá skilningur sem ekki bara ég legg í þessa umræddu upphæð, heldur formaður fjvn. einnig. Hann leggur sama skilning í þetta, að þetta sé afgreiðsla Alþingis á umræddri fjárhæð. Ég sé að ekki verður hjá því komist að óska eftir því við fulltrúa Alþfl. í fjvn., að hann taki málið þar upp og fái um það erindi frá formanni fjvn. og fjvn. hver er skilningur nefndarinnar á þessu máli.

En söm er gerð hæstv. landbrh. Þarna fara þeir ráðherrarnir enn eina ferðina út í það að ráðstafa fé í heimildarleysi til framkvæmda í sínu kjördæmi, sem þeir ætla síðan stuðningsmönnum sínum í stjórnarliðnu að samþykkja athugasemdalaust er þeir standa frammi fyrir gerðum hlut.

En það skal þá vera alveg ljóst, að til þessa verks — hvort sem af því verður eða ekki, það á eftir að sjást — til þessa verks skortir umrædda ráðh. alla lagaheimild. Það liggur fyrir í prentuðum þinggögnum, það liggur fyrir í yfirlýsingum formanns fjvn., og hæstv. landbrh. hefur ekki getað fundið ákvörðunum sínum nema stoð í lögum.