03.03.1982
Neðri deild: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2844 í B-deild Alþingistíðinda. (2393)

216. mál, ábúðarlög

Magnús H. Magnússon:

Herra forseti. Ég er sammála þeirri breytingu á ábúðarlögum sem lögð er til í því frv. sem hér er til umr., m.a. vegna þess að ég tel fráleitt að þvinga menn til að framleiða vöru sem þeir vilja ekki framleiða og of mikið er framleitt af í landinu og öll aukning þeirrar framleiðslu því vægast sagt þjóðhagslega óhagkvæm. Þau atriði, sem hér á að breyta, eru löngu úrelt orðin.

Ég kynntist því árið 1979 sem félmrh., hvílík hringavitleysa getur komið upp í þessum málum þar sem einn aðili af mörgum, sem um málin eiga að fjalla samkv. hinum ýmsu lögum, getur stöðvað framgang máls þótt flestir eða allir hlutaðeigendur aðrir séu framgangi þess sammála. Ég vitna þá sérstaklega í það mál sem upp kom þegar Landssamband ísl. útvegsmanna ætlaði að byggja orlofsheimili fyrir félaga sína og starfsfólk sambandsins vestur á Snæfellsnesi á jörð sem sambandið hafði keypt á fyllilega lögmætan hátt eftir að viðkomandi sveitarfélag hafnaði forkaupsrétti sínum. Það mál er enn í algjörum hnút eftir þó svona mörg ár. Með hliðsjón af því máli og því, að jafnt eigi yfir alla aðila vinnumarkaðarins að ganga, hef ég og hv. 1. þm. Vestf. lagt fram brtt., sem, reyndar er ekki búið að útbýta, við þetta frv. Brtt. gengur út á það, að allir aðilar vinnumarkaðarins séu í þessum efnum settir við sama borð. Í stað þess að í frv. er talað um stéttarfélög höfum við sett inn: félög launþega og vinnuveitenda.

Sams konar brtt. höfum við líka lagt fram við frv. til laga um breytingu á jarðlögum, þ.e. 217. mál. Það er auðvitað svo, að ýmis önnur ákvæði ábúðarlaga og jarðalaga þyrftu endurskoðunar við, en hér er látið við það eitt sitja að rýmka það efnisatriði sem umrædd frumvörp taka til.