03.03.1982
Neðri deild: 48. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2845 í B-deild Alþingistíðinda. (2395)

217. mál, jarðalög

Landbrh. (Pálmi Jónsson):

Herra forseti. Frv. þetta á sér sama aðdraganda og frv. til laga um breytingu á ábúðarlögum. Nefnd, sem að þessu verki starfaði, skilaði áliti 2. febr. s.l. Nefndin varð sammála um þær breytingar sem í frv. felst, svo sem einnig var um frv. það til laga um ábúðarlög sem ég mælti fyrir áðan.

Þær breytingar, sem lagt er til að gerðar verði á jarðalögum, felast í því, að tekin eru upp ákvæði um að jarðanefndum sé ætlað það verkefni að gera tillögur um úthlutun lands undir orlofshús stéttarfélaga til viðbótar við fyrri verkefni. Einnig er gert ráð fyrir að jarðanefnd geti heimilað not á landbúnaðarlandi undir orlofshús stéttarfélaga og væntanlega þar sem um skipulögð svæði er að ræða, þótt aðalreglan sé sú, að eigi megi taka land, sem notað hefur verið til landbúnaðar, til annarra nota nema með samþykki Landbrh. og að fenginni umsögn jarðanefndar og Landnáms ríkisins.

Þær breytingar, sem hér er lagt til að gerðar verði á jarðalögum, fela í sér rýmkun á starfsemi stéttarfélaga varðandi orlofsbyggðir og hafa, eins og áður sagði, þeir aðilar, sem um málið fjölluðu, orðið sammála um þessar breytingar.

Ég heyrði í ræðu hv. þm. Magnúsar H. Magnússonar hér áðan, að boðuð er brtt. við þetta frv. með svipuðum hætti og hann skýrði frá varðandi frv. til laga um ábúðarlög. Að sjálfsögðu eru mýmörg atriði í þessum lögum sem orkað geta tvímælis og hv. þm. haft misjafnar skoðanir á. En ég vek aðeins athygli á því, að hér er um að ræða mál sem snertir hagsmuni margra aðila og það er mjög æskilegt að takist að afgreiða þessi mál með þeim hætti að um það sé samkomulag við þá aðila sem hagsmuna eiga að gæta. Það frv., sem hér er flutt, og frv. til laga um breytingu á ábúðarlögum fela það í sér sem samkomulag varð um milli þeirra aðila sem hlut áttu að málinu. Ef frekari breytingar verða gerðar er vonandi að það takist með þeim hætti að samkomulag geti einnig tekist um þær.

Ég legg svo til, herra forseti, að frv. þessu verði vísað til 2. umr. og hv. landbn.