08.03.1982
Efri deild: 52. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2881 í B-deild Alþingistíðinda. (2426)
90. mál, Hæstiréttur Íslands
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég vil gera stuttlega grein fyrir þeim viðhorfum sem liggja að baki brtt. sem hv. þm. Eiður Guðnason, 5. þm. Vesturl. og fulltrúi Alþfl. í þeirri nefnd sem hefur haft með þetta frv. að gera, hefur flutt.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að þetta frv. er fyrst og fremst um tvö atriði: annars vegar um að fjölga hæstaréttardómendum úr 7 í 8 og hins vegar um heimild til að ráða til bráðabirgða 2–3 varadómara allt að 6 mánuðum á ári hvort árið 1982 og 1983. Önnur atriði varða heimild til að ráða sérfróða menn að dóminum til aðstoðar og eins reyndar að fækka þeim dómurum sem geta dæmt eða réttara sagt kannske að hækka refsimörkin sem við skuli miða þegar 3 dómarar geta dæmt í opinberu máli.
Það er skoðun okkar Alþfl.-manna að það hafi orðið svo óheyrilegur dráttur á afgreiðslu mála hjá Hæstarétti að ekki verði við það unað, það verði að grípa til ráðstafana til að leysa úr þeim mikla drætti vegna þess að það séu svo margir í þjóðfélaginu sem líða fyrir þennan drátt. Nú hefur gengið illa að ná samstöðu um hvernig ætti að leysa úr þessum vanda, en við viljum ekki að sá mikli fjöldi fólks, sem þegar líður fyrir þennan drátt, fái ekki eins skjóta úrlausn og frekast er unnt. Þess vegna erum við sammála því eftir atvikum að sett verði ákvæði til bráðabirgða sem geri heimilt að ráða til bráðabirgða í rauninni 2–3 varadómara í allt að 6 mánuði á hvoru árinu 1982 og 1983 til að vinna upp þann hala af málum sem liggur fyrir hjá Hæstarétti.
Við teljum líka að það sé sjálfsagt að Hæstiréttur fái heimild til að ráða sérfróða menn sér til aðstoðar, og við sjáum ekkert athugavert við það að refsimörk verði hækkuð. Það hlýtur ævinlega að vera matsatriði á hverjum tíma. Hins vegar teljum við að með hliðsjón af því, að þessi mál öll, dómskerfið, eru ekki útkljáð, þá sé ekki ástæða til að binda í lög fjölgun hæstaréttardómara til langs tíma, eins og felst í 1. gr. frv. Við teljum að með því að samþykkja aðrar greinar frv. en þá sem um þetta fjallar, þ.e. 2.–9. gr. frv. og ákvæði til bráðabirgða, sé leyst úr þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir, en á hinn bóginn sé ekki ástæða til að fjölga hæstaréttardómurum á þessu stigi, meðan önnur atriði að því er varðar dómskerfið liggja ófrágengin.
Það er á þessum grundvelli sem hv. þm. Eiður Guðnason hefur fyrir hönd okkar Alþfl.-manna flutt ákaflega einfalda brtt., nefnilega þá, að 1. gr. frv., sem fjallar um raunverulega fjölgun hæstaréttardómara, sem séu skipaðir af forseta Íslands ævilangt, falli niður, sú fjölgun dómaranna taki ekki gildi.