08.03.1982
Neðri deild: 49. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2887 í B-deild Alþingistíðinda. (2441)
196. mál, Orlofssjóður aldraðra
Flm. (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Frv. þetta er á þskj. 323 og flm. þess auk mín er hv. þm. Magnús H. Magnússon. Frv. var áður flutt á síðasta þingi, en hlaut þá ekki afgreiðslu, þannig að ástæðulaust ætti að vera að hafa mörg orð um það nú.
Efni frv. er mjög einfalt. Það kemur fram í 1. gr. frv. að efni þess er að stofna sjóð sem nefnist Orlofssjóður aldraðra og sé sá sjóður í vörslu félmrn. Hlutverk sjóðsins er að styðja með framlögum. lánum og annarri fjárhagslegri fyrirgreiðslu orlofs- og sumardvalarstarfsemi fyrir aldrað fólk, sem skipulögð er af sveitarfélögum, félögum, fyrirtækjum eða öðrum þeim sem félmrn. viðurkennir. Í öðru lagi er hlutverk sjóðsins að styðja efnalítið aldrað fólk til þátttöku í slíkri orlofsstarfsemi og í þriðja lagi að opna möguleika fyrir sjóðinn til að reka á eigin vegum orlofsbúðir fyrir aldrað fólk. Ef svo fer skal menntmrn. leggja sjóðnum til yfir sumartímann endurgjaldslaust afnot af húsnæði, vélum og tækjum a.m.k. tveggja heimavistarskóla samkv. nánara samkomulagi og ríkissjóður greiða laun starfsfólks og þjónustufólks.
Í 2. gr. frv. er skýrt frá því, hverjar tekjur sjóðsins skuli vera, en þær eiga að vera auk vaxtatekna og frjálsra framlaga einstaklinga og annarra aðila árlegt framlag úr ríkissjóði eins og það er ákveðið í fjárlögum hverju sinni.
Í 3. gr. frv. er lagt til að ráðh. setji með reglugerð nánari fyrirmæli um starfsemi sjóðsins og stjórn hans. Eins og ég sagði áðan, herra forseti, er efni þessa frv. ákaflega einfatt og hefur það áður verið flutt í þessari deild. Þarf því ekki að hafa mörg orð um frv. Megintilgangur þess er að veita nokkra aðstoð við aldrað fólk sem heldur þó fullri heilsu og þarf á að halda möguleikum til þess, eins og segir í grg., „að bæta lífi við árin“, m.a. með þeim hætti að taka þátt í skipulagðri orlofsdvalarstarfsemi fyrir þennan aldurshóp.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að mikið ófremdarástand ríkir nú í málefnum aldraða fólksins, sérstaklega í vistheimilismálum þess og málefnum þess aldraða fólks sem hefur ekki ferlivist. En jafnvel þó að vandinn sé ekki jafnmikill varðandi það aldraða fólk sem nýtur fullrar heilsu, a.m.k. miðað við aldur sinn, skapar það engu að síður ákveðin vandamál, hversu litla möguleika þetta aldraða fólk hefur á því að ferðast um og nota frítímana sem það hefur öðrum þjóðfélagsþegnum meiri til að taka þátt í félagsstarfsemi, til þess að ferðast um og taka þátt í skipulagðri orlofsstarfsemi. Málum þessa hóps er allt of litið sinnt og málum hans allt of lítill gaumur gefinn. Þó að jafnan sé rætt mikið um vandamál þeirra aldraðra, sem við sjúkleika búa, má ekki gleyma því gamla fólki sem hætt er störfum, er á heimilum barna sinna eða ættingja, heldur fullri heilsu, en hefur mjög lítið við að vera. Sveitarfélög mjög víða reyna að koma til móts við þetta fólk, m.a. hér í Reykjavík, með nokkurri félagsmálastarfsemi. Enn fremur reyna mörg frjáls félagasamtök í landinu, bæði í einstökum sveitarfélögum og á landsvísu, að sinna málefnum þessa fólks, m.a. með því að bjóða því í lengri eða skemmri orlofsferðir, sem sumt af þessu fólki á þó erfitt með að taka þátt í, m.a. vegna fjárhagslegra aðstæðna. Tilgangur þessa frv. er sá ein að greiða fyrir því, að slík sérstök starfsemi fyrir aldraða fólkið geti átt sér stað. Er þá bæði ætlað að styðja við bak þeirra aðila, sem félmrn. samþykkir, til þess að standa fyrir slíkri skipulagðri orlofsstarfsemi fyrir aldraða fólkið, bæði innanlands og erlendis, og enn fremur er það hlutverk sjóðsins að greiða fyrir fátæku öldruðu fólki sem vill gjarnan taka þátt í slíkri orlofsstarfsemi, en á þess ekki kost vegna fjárhagslegra aðstæðna.
Herra forseti. Ég hef ekki fleiri orð um þetta mál að svo stöddu nema frekara tilefni gefist til, en legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.