09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2896 í B-deild Alþingistíðinda. (2449)
382. mál, norrænt samstarf á sviði menningarmála
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég vil aðeins að gefnu tilefni vekja athygli á því, að oft hefur það borið á góma hér á hv. Alþingi af hálfu Alþb.-manna og fyrr meir a.m.k. af hálfu Alþfl.-manna, að rétt kynni að vera að við tækjum upp ríkisverslun með olíu og létum það ekki viðgangast lengur að hér væru þrjú fyrirtæki sem flyttu inn olíu til landsins og versluðu með hana innanlands undir því yfirskini að þar væri um samkeppni að ræða um verð og þjónustu, — hitt kynni að vera heppilegra, að ríkið sjálft flytti inn þessa nauðsynjavöru og sæi um dreifingu á henni á sem hagkvæmastan og ódýrastan hátt. Kynni þá að hafa farið svo að innkaupum væri hagað, m.a. til birgðasöfnunar, eftir því hvenær hagstæðast væri að kaupa og á hvaða stað. Fram að þessu og enn í dag er olíuverslunin í landinu rekin fyrst og fremst með gróðasjónarmið fyrir augum, með hvaða hætti þau fyrirtæki, sem með olíuna versla, geti náð inn sem mestum hagnaði. Trúi því hver sem vill að það sé hagstæðasta verslunin með olíu að hafa þrefalt dreifikerfi innanlands, hvað sem öðru líður. Hitt er hv. alþm. öllum kunnugt um, að áratugum saman var samið af hálfu íslenska ríkisins um kaup á olíu í Sovétríkjunum á einu og sama föstu verði, hún síðan afhent þessum þremur olíufélögum til að versla með hana innanlands, ekki til að tryggja nægar olíubirgðir í landinu handa skipaflotanum eða til upphitunar á húsum, heldur til að tryggja þessum fyrirtækjum verslunargróða.