28.10.1981
Neðri deild: 7. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 325 í B-deild Alþingistíðinda. (245)
Umræður utan dagskrár
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal í einu og öllu taka undir orð hv. síðasta ræðumanns. Ég hef hins vegar ekki talið rétt að taka þátt í umr. um þetta gífurlega vandamál sem er hrollvekja hér í dag, vegna þess að mér er kunnugt um að ekki liggur enn þá fyrir h já hæstv. ráðh. afstaða þeirra hagsmunaaðila sem hafa komið við sögu með mótun sinna skoðana, t. d. í morgun, og á ég þar bæði við ráðgjafarnefnd, sem stendur að baki hluta stjórnar Hafrannsóknastofnunar, og reyndar stjórn Hafrannsóknastofnunar sjálfrar, sem er nýkomin af fundi. Ég efast um að ráðh. hafi borist vitneskja um viðbrögð þeirra aðila enn þá, þannig að ég sé ekki ástæðu til að ræða það nú, en vil heils hugar taka undir þau orð sem hv. þm. Árni Gunnarsson sagði, því að þar er hrollvekja á ferðinni ef satt reynist og rétt er.
Vegna þeirra orða, sem hæstv. ráðh. viðhafði um tekjur sjómanna og aflaaukningu og framleiðslu o. fl., o. fl., vil ég benda hv. þd. á að það er nú komið á annað ár síðan hæstv. ráðh. varð vel kunnugt um að það eru framkvæmd lögbrot á hverjum einasta degi um borð í togurunum vegna aukins vinnutíma fram yfir það sem lög segja. Þetta veit hæstv. dómsmrh. líka og hann vissi það þá. Þeir hafa ekkert hafst að í þessu efni frekar en þeir hafi snúist gegn öðrum lögbrotum sem blasa við ráðherrum frá degi til dags. Það er alveg sama hvort það er í sambandi við vídeótæknina eða eitthvað annað. Þeir bara horfa á þetta og brosa.
Það er alveg rétt, og ég tek heils hugar undir það með ráðh. vegna þess að ég þekki nokkuð til þeirra hluta, eins og hann náttúrlega manna best gerir, að ekki er hægt að tala um tekjur manna öðruvísi en taka til greina hver er sá vinnutími fólks sem liggur að baki þessum tekjum. En það liggur fyrir á togurunum, að þótt orðið hafi tekjuaukning hjá þeim hefur aflaaukningin orðið meiri í prósentum og vinnutíminn hefur líka stóraukist þar. Þótt seint sé í rassinn gripið hjá hæstv. ráðh. fagna ég því, að hann skuli ætla sér nú að láta fara fram alvarlega rannsókn á því, hvað þessi stétt manna hefur aukið vinnutíma sinn mikið. Krafa þjóðfélagsins alls er að stytta vinnutímann, eiga frí bæði kvöld og helgar, en það eru ekki nema örfáar stéttir í þjóðfélaginu sem verða að leggja á sig lengri vinnutíma meðan aðrir eru komnir niður á allt annan grundvöll og gera allt aðrar kröfur vegna þess að þeir geta það. Ákveðnar stéttir í þjóðfélaginu geta ekki sagt nei, en verða að vinna til að bjarga þeim verðmætum sem þjóðin lifir á. M. a. þess vegna hef ég hreyft þessu máli á annan hátt í hv. Sþ., með þáltill. sem ég hef þar flutt ásamt hv. þm. Halldóri Blöndal.
Það er alveg rétt, að framleiðnin hefur aukist gífurlega á togurunum vegna þeirrar tæknibyltingar sem þar hefur orðið. En það þarf enginn að láta sér detta í hug að það sé hægt að auka framleiðni í neinni atvinnugrein neins staðar eða á neinu skipi þannig að vinnuaflið verði þar afskipt. Það þekkist ekki árið 1981 neins staðar í heiminum. Vinnuaflið verður að fá sitt út úr þessari auknu framleiðni vegna þess að vinnuaflið leggur til svo og svo mikið til þess að framleiðnin aukist. Þegar verið er að tala um miklar tekjur sjómanna held ég að fólk verði að hafa í huga hve miklu þeir verða að fórna til þess að hinum miklu tekjum sé náð. Hæstv. ráðh. er meira en vel kunnugt um hver vinnutíminn er. Ég man ekki betur en að í sambandi við Vestfjarðadeilu, sem er ekki mjög langt undan í fortíðinni, hafi honum verið tjáð og hann hafi vitað að þá voru vökulögin brotin, þ. e. lög um vinnutíma sjómanna á togurum.
Ég skal svo ekki fara að etja frekar orðum út af ákvörðunum um það loðnuverð sem gildir, vegna þess að komið hefur hér alveg réttilega fram, að það er auðvitað hreinn hégómi hjá hinu sem blasir við ef rétt reynist það sem fiskifræðingar segja nú.