09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2902 í B-deild Alþingistíðinda. (2458)

382. mál, norrænt samstarf á sviði menningarmála

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Þetta er nú orðið hálfgert stagl um það, hver skilur hvern í þessari umr. Ég skil hæstv. viðskrh. mætavel. Mér er alveg ljóst að hann hefur engan áhuga á að lækka olíu- eða bensínverð hér á landi vegna þess að það mundi minnka hagnað ríkissjóðs. Svo einfalt er þetta mál.

Ég vil hins vegar vegna þess í hvaða farveg þessi umr. hefur farið, benda hæstv. viðskrh. á að það er til aðferð til þess að lækka olíuverð í landinu. Hún er sú sem Alþfl. hefur margoft lagt til og ég held jafnvel Alþb. líka. Það er að fækka olíufélögunum. Það eru þrjú olíufélög í landinu, þrefalt skrifstofubákn, þrefalt dreifikerfi og kannske þrefaldur hagnaður. En við skulum líka horfast í augu við það, að það eru stjórnmálalegir hagsmunir sem valda því, að það er ekki hægt að fækka olíufélögunum. Stjórnmálaflokkarnir eiga hagsmuna að gæta og þá kannske ekki síst flokkur hæstv. viðskrh.

Það er auðvitað fáránlegt í litlu landi, þar sem búa 230 þús. menn, að vera með þrefalt olíudreifingarkerfi. Það er fáránlegt. Og það byggist á áratugagömlum hagsmunum stjórnmálaflokkanna í landinu að þessu kerfi er við haldið og það fæst ekki niður lagt. Þetta hljóta allir menn að viðurkenna.

Kostnaðurinn við það, að þrjú olíufélög skuli vera hér með dreifingu á olíunni, hlýtur að bitna á neytendum. Ef menn eru að hugsa um hagsmuni neytenda í þessu máli, vilja þeim vel, þá vilja þeir fækka olíufélögunum en ekki hafa þau þrjú með öllum þeim ærna tilkostnaði sem því fylgir. Svo einfalt er þetta mál. Ég vil skora á hæstv. viðskrh. að hann hugleiddi hvort ekki væri hægt að lækka olíuverð með því að fækka olíufélögum.