09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2902 í B-deild Alþingistíðinda. (2459)

382. mál, norrænt samstarf á sviði menningarmála

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég verð að benda hv. 4. þm. Norðurl. e. á það, að þegar menn eru lengi búsettir erlendis sjá þeir á bensínútsölustöðum að verð er auglýst daglega með skiltum úti á götu. Þannig gengur það fyrir sig þar að fólk getur valið um ódýrustu innkaup. Hitt er aftur verra, ef ég sný mér að hæstv. ráðh. aftur, að enginn væri ánægðari en hann ef hægt væri að fá olíubirgðir til landsins án þess að það kostaði íslenska neytendur nokkurn hlut. Þetta var sagt líka þegar Tollvörugeymslan var sett á laggirnar. Ef hæstv. viðskrh. er eitthvað að efast um það, að hægt sé að fá stóra og smáa framleiðendur og vörueigendur erlendis til þess að eiga birgðir hér á landi án þess að það kosti íslenska neytendur nokkurn skapaðan hlut, þá bið ég hann hér með að koma inn í Tollvörugeymslu og skoða hvað þar fer fram. Olía er ekkert öðruvísi vara en önnur neysluvara hér á landi. (Viðskrh.: Hana vantar, það er ekki of mikið af henni.) Það er framboð á henni. Það er einmitt þess vegna sem ég fann mig knúinn til að koma hér upp.

Ég vil geta þess um þann aðila sem ég kynnti fyrir ríkisstj. á sínum tíma og bauð hér mjög góð viðskipti við Ísland í olíumálum — og hans ágæti var dregið í efa, að ég fékk um það staðfestingu frá virtum svissneskum banka með skeyti, sem ráðherrar hafa tekið mark á, að maðurinn var í alla staði marktækur og engin ástæða til að gera hann að einhverjum braskara, einhverjum hópi manna sem ganga um og græða fé á opinberum sakleysingjum eins og íslensku ríkisstjórninni. Hvernig á að vera hægt að ná eðlilegum samskiptum milli manna ef ráðherrar — og sérstaklega viðskrh. hæstv. er með þann hugsunarhátt að allir séu vondir menn sem tala við hann, ef það eru útlendingar, og séu bara hingað komnir til þess að græða á aumingja litlu Íslendingunum?