09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2909 í B-deild Alþingistíðinda. (2468)
187. mál, framkvæmd orkumálakafla stjórnarsáttmálans
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Hæstv. ráðh. sagði margt fróðlegt í sínu svari, en hann lét alveg ósvarað því sem skiptir höfuðmáli, og það er hver eru viðhorf hæstv. ráðh. til þess hlutfalls sem hann telur að eigi að vera á milli raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis og kyndingarkostnaðar með heitu vatni á aðalþéttbýlissvæði landsins. Þessi spurning brennur á vörum allra í dreifbýlinu, og ég sem stjórnarsinni tel mig hafa fulla þörf á að fá skýr svör við því, hvaða hlutföll ráðh. telur æskileg. Það er fráleitt að mér detti í hug að amast við því, að Reykjavíkurborg fái þær hækkanir sem hún þarf fyrir sína hitaveitu. Það vil ég jafnframt að komi fram. En það hlýtur að vera að ráðh. sé búinn að móta sér einhverja skoðun á þessu máli. Hvað telur hann rétt í þessum efnum? Við því þurfum við að fá svar. Þetta er líka spurning um annað. Hvaða hlutfall telur hann að eigi að vera á milli raforku til stóriðju annars vegar og til raforku til upphitunar á íbúðarhúsnæði hins vegar?
Ég vænti þess, að ráðh. svari þessu þann veg að við verðum öll að nokkru fróðari.