09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2910 í B-deild Alþingistíðinda. (2470)

187. mál, framkvæmd orkumálakafla stjórnarsáttmálans

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það vil ég að sé alveg skýrt, að hvatanum til hagkvæmrar lausnar vil ég ekki á nokkurn hátt vinna gegn eða gera hæstv. iðnrh. erfitt fyrir að koma þeim boðskap til þjóðarinnar, að það beri að einangra hús á Íslandi.

Ég bar fram einfalda spurningu og fékk flókið svar, en einfalda spurningu með og ég ætla að svara þeirri einföldu spurningu. Ég gréti það ekki þó fækkað yrði rafveitum á Íslandi ef það yrði til að lækka raforkuverð fyrir alla heildina. En ég held að iðnrh. verði að gera sér grein fyrir því, að meðan Rafmagnsveitur ríkisins selja á jafnháum taxta og þær selja gerist það að sjálfsögðu aldrei. En ef Rafmagnsveitur ríkisins seldu á lægri taxta en aðrir er mjög trúlegt að hinir mundu vilja sameinast. Það hygg ég að væri vænleg leið til árangurs.

Jafnræði sem mest, var það svar sem ég fékk. En ég ítreka spurningu mína. Hvaða verðhlutfall telur hæstv. ráðh. að eigi að vera á milli þess rafmagns, sem Rafmagnsveitur ríkisins selja, og þess heita vatns, sem selt er hér á höfuðborgarsvæðinu? Ég óska eftir hreinu hlutfalli vegna þess að okkur er nauðsyn að vita á hverju við eigum von meðan hæstv. iðnrh. gegnir þessu embætti.