09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2911 í B-deild Alþingistíðinda. (2472)
187. mál, framkvæmd orkumálakafla stjórnarsáttmálans
Ingólfur Guðnason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. svör hans við þeim spurningum sem ég bar fram á þskj. 313. Hér hafa ýmsir tekið til máls við þessa umr., og er það sérkennandi fyrir málflutning manna að þeir eru í raun og veru fylgjandi því að jöfnuður náist á sviði upphitunarkostnaðar.
Mér er það ljóst, að nokkuð hefur miðað í rétta átt, en nokkra leið eigum við þó fyrir höndum þannig að jöfnuður náist að fullu. Ég vil sérstaklega taka undir þau orð ráðh., að það þurfi að gera átak í rannsóknum — ég hef þetta ekki orðrétt eftir — á gerð húsa með tilliti til hitunarkostnaðar þeirra. Ég tel mjög brýnt að þetta verði gert. Við erum furðulega íhaldssöm á gamlan byggingarmáta. Ég hygg að þó nokkru fé væri varið til þessara mál mundi það fé skila sér fljótt til baka vegna þess að þarna er víða pottur brotinn.
Að öðru leyti vildi ég segja að ég tel að jafnaði aðgengilegri leið til verðjöfnunar að þar sem verð er hæst lækki það heldur en að það hækki þar sem það er lægst, en eins og fram hefur komið hér í umr. um Hitaveitu Reykjavíkur er hún búin að biðja um hækkun á sínum töxtum og einnig Rafmagnsveita Reykjavíkur, og þar minnki bilið. Þó að ég sé ekki með þessu að efast um að það sé full þörf á þessum ráðstöfunum tel ég það skemmtilegri leið að þar sem verð er hæst lækki það og jöfnuður náist á þann hátt.
Ég vil sem sagt þakka hæstv. ráðh. svörin og einnig vil ég þakka öðrum sem tekið hafa þátt í þessari umr. Hér hafa komið fram nokkur sjónarmið um þessi vandamál svo og önnur tengd, og mætti þetta e.t.v. verða okkur til upplýsinga í frekari umræðu og ákvarðanatöku um þessi mál.