09.03.1982
Sameinað þing: 61. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 2912 í B-deild Alþingistíðinda. (2473)

187. mál, framkvæmd orkumálakafla stjórnarsáttmálans

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég skil ráðh. þannig að hann telji eðlilegan áfanga í stöðunni að verð til húshitunar verði um þrisvar sinnum hærra en hitaveituverðið eins og það er lægst og þetta muni þýða að hann beiti sér fyrir þessum áfanga. Út af fyrir sig finnst mér þetta svar hans nokkurs virði. Ég vil þó benda á að það væri hægt að komast enn þá neðar kannske, eins og Þorvaldur Garðar, hv. 4. þm. Vestf., sagði, og gera húshitunarkostnaðinn tvisvar til tvisvar og hálfum sinnum meiri í þessum áfanga en þar sem lægst er. Það liggur skjallega fyrir að þær hitaveitur, sem eru taldar dýrar hitaveitur, en eru þó þjóðhagslega og landfræðilega mjög mikils virði fyrir þá íbúa sem búa á þeim svæðum, þ.e. Hitaveita Akureyrar og Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar, miða verð sitt við 60% af olíuverði. Ég segi það sem mína skoðun, að ég tel að það væri strax viðunandi fyrir aðra íbúa þessa lands, sem búa á „köldum svæðum“, ef þeir nytu hliðstæðra aðgerða, þ.e. verðlagið væri miðað við að það væri hvergi hærra en 60% af niðurgreiddu olíuverði eins og það liggur fyrir. Þetta teldi ég merkan áfanga, og ég vil lýsa því yfir, að það er útilokað fyrir okkur, sem sitjum á Alþingi, að fara af þessu þingi án þess að sá áfangi náist. Ég tel það alveg óviðunandi ef okkur tekst ekki að sameinast um að ná þeim áfanga. Að því tel ég að við verðum að stefna og hvika ekki frá því. Allar yfirlýsingar núv. ríkisstj. og stjórnvalda yfirleitt á þessu sviði hafa hnigið í þessa átt. Við gætum svo rætt sérstaklega um Landsvirkjun sem orkufyrirtæki landsins, það er sérmál, en það verður að vera stefnumið á þessu þingi að við náum þeim áfanga sem ég nefndi.